Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Frá deildarfundi sauðfjárbænda á Búnaðarþingi 2026.
Frá deildarfundi sauðfjárbænda á Búnaðarþingi 2026.
Mynd / smh
Fréttir 26. mars 2026

Sátt ríkir um núverandi stuðningsfyrirkomulag

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Alls voru 18 tillögur til afgreiðslu hjá sauðfjárbændum á deildarfundi þeirra sem haldinn var á mánudaginn og þriðjudaginn á Búnaðarþingi.

Meðal samþykktra tillagna var að beina því til Bændasamtaka Íslands að beita sér fyrir niðurgreiðslu ríkissjóðs á arfgerðargreiningum, eins og heimilt er samkvæmt reglugerð 1570/2025. Í rökstuðningi með tillögunni kemur fram að nauðsynlegt sé að tryggja að þessar niðurgreiðslur verði áfram og ekki minni en undanfarin ár þar til markmiðum um almenna útbreiðslu verndandi arfgerða hefur verið náð í samræmi við Landsáætlun um útrýmingu riðu. Ný lög setji ákveðnar kvaðir varðandi ræktun verndandi arfgerða sem ómögulegt er að ná án þess að taka mikið af arfgerðarsýnum á næstu árum. Nauðsynlegt sé því að ríkissjóður fylgi því eftir með fjármagni.

Lagt er til að þessu verði komið til leiðar með þrýstingi af hálfu Bændasamtaka Íslands.

Kortlagning sauðfjársjúkdóma

Einnig var samþykkt að beina því til Bændasamtaka Íslands að beita sér fyrir því að ríkissjóður og Matvælastofnun skipuleggi og fjármagni kortlagningu sauðfjársjúkdóma á Íslandi með nákvæmum og faglegum hætti.  

Í rökstuðningi segir sala fjár með verndandi arfgerðir geti haft í för með sér  dreifingu sjúkdóma annara en riðu og skapað fjárhagslegt tjón fyrir bændur. Með fækkun varnarlína verði þessi kortlagning sífellt mikilvægari – og því sé komin tími á að vinna þessa vinnu. 

Mælst er til þessa að Bændasamtökin þrýsti á ríkisvaldið til að koma þessu til leiðar og að Matvælastofnun vinni þetta verkefni. 

Rafrænt kjötmat

Tilmælum var einnig beint til Bændasamtaka Íslands, fagráðs í sauðfjárrækt, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóla Íslands um að halda áfram að vinna að faglegu mati og þróun á rafrænu kjötmati.

Í tillögunni felast einnig tilmæli til sláturleyfishafa um að taka upp samræmt rafrænt kjötmat í öllum sláturhúsum landsins þar sem notuð er sambærileg tækni og aðferðir um leið og nægileg gögn liggja fyrir til að tryggja að rafrænt kjötmat sé rétt og faglegt.

Sátt um núverandi stuðningskerfi

Loks má nefna samþykkta tillögu deildarfundar þar sem brýnt er fyrir stjórn Bændasamtaka Íslands að halda því samningsmarkmiði til streitu við gerð nýrra búvörusamninga að ekki verði gerðar verulegar breytingar á núverandi stuðningskerfi, þar sem almenn sátt ríki um núverandi fyrirkomulag ríkisstuðnings við sauðfjárframleiðslu. 

Í tillögunni kemur fram að fyrirsjáanleiki opinbers stuðnings sé grundvöllur þess að búrekstur geti gengið til framtíðar enda erfitt hverjum rekstraraðila, sama hvort viðkomandi er í búrekstri eða öðrum rekstri, að búa við óstöðugleika rekstrarumhverfis. 

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar
Fréttir 6. nóvember 2026

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar

Könnun á viðhorfi almennings til sauðfjárræktar stendur nú yfir. Hún er hluti af...

Verð heldur áfram að hækka
Fréttir 6. nóvember 2026

Verð heldur áfram að hækka

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 2. nóvember hélt jafnvægisverð áfram a...

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...