Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Frá undirritun samnings um Áfangastaðastofur. Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Eyþór Björnsson, framkvæmdastjóri SSNE.
Frá undirritun samnings um Áfangastaðastofur. Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Eyþór Björnsson, framkvæmdastjóri SSNE.
Fréttir 3. júní 2021

Samningur um rekstur Áfangastaðastofu

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

Samningur á milli Markaðs­stofu Norðurlands og landshluta­samtakanna á Norðurlandi, Samtaka sveitarfélaga á Norður­landi vestra og Samtaka sveitar­félaga á Norðurlandi eystra um rekstur Áfangastaðastofu hefur verið undirritaður. Með því lýkur ferli sem formlega hefur staðið yfir allt frá árinu 2017 þegar hafinn var undirbúningur að gerð fyrstu áfangastaðaáætlana svæðanna.

Í raun nær ferlið til ársins 2015 þegar Markaðsstofur landshlutanna setur fram stefnu um að fá skýrari tengingu við stjórnvöld ferðamála, skilgreind hlutverk og öfluga fjármögnun til lengri tíma.

Áfangastaðastofur eru samstarfs­vettvangur sveitarfélaga, ríkis og atvinnugreinarinnar og er markmiðið með stofnun þeirra að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi hennar. Meðal hlutverka eru gerð áfangastaðaáætlana, taka þátt í gerð stefnumótunar í ferðaþjónustu, þarfagreining rannsókna, vöruþróun og nýsköpun, mat á fræðsluþörf auk þess að sinna svæðisbundinni markaðssetningu og vera grunneining í stoðkerfi ferðamála í landshlutunum.

Markaðsstofa Norðurlands hefur verið með samning við Ferða­málastofu um stoðkerfi ferðaþjónustu á starfssvæði sínu en nú hefur sá samningur verið færður yfir í samning atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Ferða­málastofu og Landshluta­samtakanna.
Samstarf við Íslands­stofu verður einnig eflt í þessu samhengi og gerður sér­stakur samningur um markaðs­setningarverkefni.

Samstaðan er fagnaðarefni

„Það er mikið fagnaðarefni að samstaða hefur verið á Norðurlandi um að halda áfram úti markvissu starfi fyrir landshlutann í heild sinni undir merkjum Norðurlands eða North Iceland eins og verið hefur frá árinu 2003 þegar Markaðsstofan var stofnuð. Stefna MN verður óbreytt, að aukning verði á vægi ferðaþjónustu allt árið sem tryggi uppbyggingu innviða, greiðar samgöngur, fleiri heilsársstörf og meiri framlegð í greininni. Ein af grundvallarforsendum þess er að beint áætlunarflug hefjist til Norðurlands,“ segir í tilkynningu.

Innviðaþróun og markaðssetning

„Segja má að verkefnin skiptist í tvær deildir við þessa samninga, annars vegar innviðaþróun og hins vegar markaðssetningu. Ekki er þó um grundvallarbreytingu á verkefnum Markaðsstofunnar að ræða. MN mun áfram vinna þétt með fyrirtækjunum og sveitarfélögunum á svæðinu að framgangi ferðaþjónustunnar og hvetjum ykkur til að vera í sambandi við okkur varðandi öll verkefni eða ef spurningar vakna um þessa nýju samninga um Áfangastaðastofu.“

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...