Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
(Ó)skipulag mótar líf okkar og umhverfi  – en hvar eru skipulagsfræðingarnir?
Mynd / Edda Kristín Sigurjónsdóttir
Lesendarýni 24. apríl 2026

(Ó)skipulag mótar líf okkar og umhverfi – en hvar eru skipulagsfræðingarnir?

Höfundur: Dr. Harpa Stefánsdóttir

Hvernig við veljum að byggja upp og móta byggð á næstu misserum mun hafa langtímaáhrif á lífsgæði, sjálfbærni og öryggi. Það á ekki aðeins við um stefnumál í orði heldur um það hvernig þau birtast í raun – í byggðu umhverfi, innviðum og nýtingu lands. Á tímum þar sem samfélagið stendur frammi fyrir stórum skipulagstengdum áskorunum skiptir máli að ákvarðanir séu teknar á faglegum og upplýstum grunni. Skipulagsfræði er lykilgrein í þeirri vegferð.

Hvers vegna er skipulagsfræði lykilgrein fyrir sjálfbæra þróun Íslands?

Á bak við hverja ákvörðun um skipulag byggðar og lands ætti að liggja mat á valkostum, forgangsröðun og langtímahugsun. Góð skipulagsákvörðun getur bætt lífsgæði, en slæm ákvörðun getur haft neikvæð áhrif sem vara í kynslóðir.

Skipulagsfræði snýst um það hvernig við skipuleggjum byggðir, þróum innviði og nýtum landið á ábyrgan hátt til framtíðar og höfum þar með áhrif á samspil umhverfis, efnahags og samfélags. Skipulagsfræði er því lykilgrein þegar kemur að sjálfbærri þróun.

Sem dæmi getur vel ígrundað skipulag stutt við sjálfbærar samgöngur sem draga úr losun. Einnig getur það aukið aðgengi að þjónustu, bætt lýðheilsu, styrkt félagslega samheldni og dregið úr ójöfnuði.

Þéttleiki og dreifing byggðar og starfsemi geta til dæmis ýmist aukið eða dregið úr þörf fyrir bílferðir. Þetta hefur þannig bein áhrif á bæði umhverfi og lífsgæði.

Aðgengi að þjónustu, grænum svæðum og öruggum almenningsrýmum skiptir jafnframt verulegu máli fyrir heilsu og vellíðan. Skipulag hefur einnig mótandi áhrif á félagslega samsetningu og velferð. Markvisst framboð og dreifing fjölbreytts húsnæðis, aðlagað að ólíkum þörfum og efnahag heimila, getur stuðlað að félagslegri blöndun og jöfnu aðgengi að tækifærum.

Skipulag mótar jafnframt efnahagslega þróun, þar sem staðsetning atvinnu, innviða og þjónustu hefur bein áhrif á hagkvæmni og samkeppnishæfni. Á sama tíma þarf að taka mið af náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga til að tryggja öryggi og seiglu byggðar.

Vönduð og upplýst ákvarðanataka í skipulagsmálum er því lykilatriði. Með vaxandi áskorunum, svo sem vegna loftslagsbreytinga, fólksfjölgun og auknum umsvifum ferðaþjónustu, eykst þörfin fyrir sérþekkingu á sviðinu.

Hvað er skipulagsfræði?

Skipulagsfræði er þverfagleg grein sem snýr að skipulagi, hönnun og stjórnun þróunar byggðar og landnýtingar með sjálfbærni að leiðarljósi. Hún byggir á heildarsýn þar sem horft er til langtímamarkmiða, samfélagslegrar virkni og lífsgæða. Skipulagsfræðingar vinna að því að meta þörf fyrir uppbyggingu, umfang hennar og áhrif á umhverfi og samfélag, og leggja þannig grunn að ábyrgri og hagkvæmri þróun til framtíðar.

Fræðigreinin á rætur að rekja til örra breytinga í iðnaðarborgum 19. aldar, einkum í Bretlandi, þegar þörf varð á markvissri stýringu vaxandi byggðar. Í upphafi var áherslan fyrst og fremst tæknileg og hönnunarleg, með tengsl við arkitektúr, verkfræði og landmælingar. Smám saman þróaðist greinin í átt að víðari nálgun þar sem tekið var mið af félagslegum og efnahagslegum þáttum. Meðal þeirra sem höfðu áhrif á þá þróun var Patrick Geddes, sem lagði áherslu á samspil hins byggða umhverfis og samfélagsins. Í dag byggir skipulagsfræði á fjölbreyttum þekkingargrunni og nýtir meðal annars aðferðir úr landafræði, félagsfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Rannsóknir gegna sífellt stærra hlutverki og mikilvægt er að ákvarðanir byggi á traustum vísindalegum grunni.

Skortur á skipulagsfræðingum

Á Íslandi er starfsheitið skipulagsfræðingur lögverndað og krefst því viðurkenndrar menntunar. Skipulagsfræðingafélag Íslands veitir faglega umsögn um menntun umsækjenda með hliðsjón af viðmiðum félagsins og alþjóðlegum kröfum. Skipulagsfræðingar starfa bæði hjá sveitarfélögum, opinberum stofnunum og í einkageiranum og koma að fjölbreyttum verkefnum sem snerta skipulagstengd málefni.

Fjöldi starfandi skipulagsfræðinga á Íslandi er enn lítill og þörfin fyrir sérfræðinga í greininni fer vaxandi. Menntaðir skipulagsfræðingar eiga því yfirleitt greiða leið inn á vinnumarkað.

Höfundur er prófessor í skipulagsfræði við LbhÍ og námsbrautarstjóri MS námsbrautar í skipulagsfræði.

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...