Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Óheimilt að hafa fleiri kýr en legubása
Fréttir 5. janúar 2016

Óheimilt að hafa fleiri kýr en legubása

Höfundur: Vilmundur Hansen

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti staðfesti nýlega synjun Matvælastofnunar á beiðni bónda á Norðurlandi eystra sem hafði um nokkurra ára skeið haldið yfir 100 kýr í fjósi sem var hannað fyrir 92 kýr með 92 legubásum.

Í frétt á heimasíðu Mast segir að Matvælastofnun hafði ítrekað gert athugasemdir við fjölda kúa í fjósi bóndans án þess að bóndinn sinnti því í nokkru. Bóndanum var að lokum veittur þriggja mánaða lokafrestur til úrbóta í mars 2015 og fækkaði þá bóndinn loks gripum sínum í samræmi við fyrirmæli Matvælastofnunar.

Bóndinn hafði hins vegar skömmu áður óskað eftir leyfi stofnunarinnar til að hafa 10% fleiri kýr en bása í fjósi í 16-20 mánuði til viðbótar á meðan unnið væri að úrbótum og taldi synjun stofnunarinnar ólögmæta. Hann taldi nýjar reglur íþyngjandi og fór fram á að viðurkenndur yrði réttur hans til bóta vegna tekjutaps sem væri afleiðing af niðurskurði á bústofni. Þessari beiðni synjaði Matvælastofnun.

Ráðuneytið taldi að Matvælastofnun hefði enga heimild haft til að víkja frá ákvæðum laga og reglugerða varðandi fjölda kúa í fjósi. Synjun stofnunarinnar hefði því verið réttmæt. Árum saman hefði staðið í reglugerðum að í lausagöngufjósum þar sem eru mjólkurkýr skuli allar kýr geta legið samtímis á legubásum eða á til þess gerðu legusvæði. Ekki væri því um hertar reglur í þessu tilliti að ræða. Óljósar hugmyndir um stækkun fjóss eða nýbyggingar dygðu ekki til að réttlæta umframfjölda kúa um eins og hálfs árs skeið til viðbótar. Að lokum taldi ráðuneytið ekki ástæðu til annars en að bóndinn bæri sjálfur það tap sem hann taldi að hann hefði orðið fyrir vegna málsins. Synjun Matvælastofnunar var því staðfest.

Skylt efni: Mast | Kýr | Fjós | legubásar

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...