Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Munið svo bara, kæru vinir, að án landbúnaðar væruð þið alltaf hungruð, nakin og edrú.
Munið svo bara, kæru vinir, að án landbúnaðar væruð þið alltaf hungruð, nakin og edrú.
Fréttir 20. janúar 2022

Of mikið af neikvæðum fréttum

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is

Í byrjun árs hafa Íslendingar almennt verið bjartsýnir og jákvæðir fyrir komandi ári, bjartsýni, gleði og ánægja skín almennt af öllum sem maður sér síðasta og fyrsta dag hvers árs. Því miður fannst mér þetta ekki vera svona í kringum síðustu áramót, baráttan við Covid-19 virðist vera að draga niður þá miklu bjartsýni og óskhyggju þjóðarinnar í böl, neikvæðni og þunglyndi.

Þegar þetta er skrifað er um 5% þjóðarinnar í sóttkví eða einangrun, eða um 18.000 manns í það heila samanlagt. Í nánast öllum fjölmiðlum er orðið erfitt að finna jákvæða og gleðilega umfjöllun eða frétt sem léttir lund. Það var skrítið að verða var við að fólk tók á sig lykkju til að vera ekki nálægt hvað öðru á gamlárskvöld þegar ég gekk fram og til baka á útsýnishól í hverfinu til að sjá betur flugeldasýningu bæjarbúa og aldrei hef ég séð svona fáa faðmast og kyssast um áramót. Hræðslan við smit virðist vera að heltaka megnið af þjóðinni.

Þungt yfir atvinnurekendum og áhyggjur af framhaldinu

Það sem hefur áunnist er að þeir sem eru bólusettir veikjast ekki mikið og í flestum tilfellum varla að fólk leggist í rúmið. Þarna er ávinningur bólusetninganna svo greinilegur að ekki verður efast um ágæti bólusetningarinnar. Ég fékk tölvupóst á síðasta ári frá andstæðingi bólusetninga og var vændur um meðvirkni og heilaþvottsstarfsemi sóttvarnalæknis og spurður hvað ég hefði fengið miklar mútur fyrir að stunda svona skrif.

Það er eðlilega þungt yfir mörgum sem reka fyrirtæki með marga starfsmenn þegar smit eru svona mörg á hverjum degi og að starfsemin sé í hættu ef upp kemur smit og þurfa að loka fyrirtækinu um tíma vegna sóttkvíar og smits meðal starfsmanna. Sem betur fer eru enn þá fáar sögur af slíku, en samt eitthvað um að það vanti allt að fjórðung starfsmanna vegna sóttkvíar.

Bæði stór og smá fyrirtæki þurfa að hafa það sem kallast „plan B“, en það eru alltof margir sem hugsa ekki um þetta og lenda svo í slæmum málum ef upp kemur smit á vinnustað. Sjálfur vinn ég á um 20 manna vinnustað og teljum við okkur hafa sloppið vel að talan hafi ekki farið yfir 15% enn þá. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þetta getur breyst á einum sólarhring í hreinlega lokun.

Sárt að geta ekki veitt þá þjónustu sem ætlast er til af fyrirtæki

Þótt landinn sé neikvæður í tali, með þungar áhyggjur af framhaldinu, eru ótrúlega margir sem hugsa á gamla háttinn, „Þetta reddast!“ Eitthvað er það samt óásættanleg hugsun, það verður að hugsa starfsemina upp á nýtt.

Allir starfsmenn gætu hugsanlega lent í sóttkví eða einangrun, sama hvort starfsemin er einn eða fleiri á sama stað. Í síðustu viku setti ég sjálfan mig í hálfgerða sóttkví vegna þess að ég hafði verið nálægt smituðum einstaklingi. Þar sem ég vinn almennt einn flest mín störf þá setti ég upp nýjar vinnunálgunarreglur þannig að þegar aðstoðar var óskað varð að forðast að koma nær mér en 3 metra og að vinnu lokinni átti viðskiptavinurinn til öryggis að setja lófana upp í loft á meðan ég kvaddi með sótthreinsispritti. Mér tókst að vinna öll verkin nema tvö, en þar var nálgun of mikil og a.m.k. tveggja manna verk. Sennilega var það ég sem var sárastur yfir því að geta ekki unnið þau verk, fremur en þessir tveir sem þurftu aðstoðina.

Er sólginn í jákvæðar og fyndnar fréttir

Þrátt fyrir allt bölsýnistal reyni ég alltaf að vera jákvæður, brosa og hafa gaman af lífinu, rétt eins og Magnús Hlynur fréttamaður, sem er sí og æ að redda fréttatíma Stöðvar 2 með jákvæðum og skemmtilegum fréttum. Eitt að lokum; það vakti athygli mína á gamlársdag að mest lesna fréttin á mbl.-fréttavefnum var um mynd sem hafði birst í Morgunblaðinu sumarið 2013 sem leiddi til hjónabands. Þarna var frétt fyrir mig, jákvæð og skemmtileg, sem bar fyrirsögnina; „Mynd í Mogga leiddi til hjónabands.“

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...