Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Hreinsistöðin er á grjótvarinni landfyllingu við Sandgerðisbót. Stærð lóðarinnar gerir ráð fyrir möguleika á frekari hreinsun skólps í framtíðinni. Þakgluggar stöðvarinnar á móti suðri eru svipaðir þeim sem voru á gömlu Sambandsverksmiðjunum á Gleráreyrum, en það er tilvísun í að stór hluti af verksmiðjuhúsunum var urðaður á staðnum til að mynda uppfyllingu fyrir hreinsistöðina.
Hreinsistöðin er á grjótvarinni landfyllingu við Sandgerðisbót. Stærð lóðarinnar gerir ráð fyrir möguleika á frekari hreinsun skólps í framtíðinni. Þakgluggar stöðvarinnar á móti suðri eru svipaðir þeim sem voru á gömlu Sambandsverksmiðjunum á Gleráreyrum, en það er tilvísun í að stór hluti af verksmiðjuhúsunum var urðaður á staðnum til að mynda uppfyllingu fyrir hreinsistöðina.
Mynd / Norðurorka
Fréttir 20. maí 2021

Ný fyrsta þreps hreinsistöð fráveitu komin í gagnið á Akureyri

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

„Við erum afskaplega stolt af þessum áfanga. Það er mikill áfangi fyrir samfélagið hér við Eyjafjörð að ná því markmiði að uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til okkar í þessum efnum,“ segir Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku. Kostnaður við verkefnið nemur rúmum milljarði króna, en ávinningurinn, hreinni strandlengja, er mikill fyrir samfélagið.

Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku.

Ný hreinsistöð fyrir fráveitu á Akureyri var tekin í notkun í nóvember síðastliðnum. Forsagan er nokkur en fyrir 30 árum, árið 1991, var lagt af stað í heildarskipulagningu á fráveitukerfinu á Akureyri hvað varðaði hreinsun og aðskilnað, „og nú loks höfum við náð lokapunkti framkvæmdarinnar,“ segir Helgi.

Norðurorka tók við rekstri fráveitu á Akureyri árið 2014 og þá þegar var hafinn undirbúningur að gerð hreinsistöðvarinnar og hönnun hennar. Framkvæmdin þurfti að fara í gegnum umhverfismat. „Það er langur ferill að baki, en nú höfum við náð þeim langþráða áfanga að mengun við strandlengjuna verður innan þeirra marka sem skilgreind eru í reglugerð um fráveitur og skólp,“ segir Helgi.

Útrásin er um 400 metra frá landi og á rúmlega 40 metra dýpi

Hreinsistöðin er á grjótvarinni landfyllingu við Sandgerðisbót. Hún er með þeim stærri hér á landi en allt skólp frá bænum fer um stöðina og er grófhreinsað þar. Hreinsibúnaðurinn kemur frá Svíþjóð og er um að ræða þrepahreinsun, svokallaða fyrsta þreps hreinsun, sem felur í sér að allir fastir hlutir í fráveituvatninu eru síaðir frá með þriggja millimetra þrepahreinsun. Úrgangi sem berst í stöðina um fráveitukerfið er pakkað og hann fluttur til urðunar. Fráveituvatninu er síðan veitt um 400 metra frá landi og á 40 metra dýpi þar sem það fer út í sjávarstrauma og dreifist.

Mikilvægt í þröngum firði með mikla matvælaframleiðslu

Stöðin er með tvískipt innrennsli, sem þýðir að hægt er að loka helmingi hennar í einu fyrir skólprennsli og vinna að hreinsun og viðhaldi þróa án þess að stöðva reksturinn. Fráveituvatni er dælt upp á hreinsibúnaðinn og síðan tekur sjálfsrennsli við um útrennslispípu. Rásirnar eru tvær, auk áðurnefndrar 400 metra útrásar er önnur álagsútrás sem er 90 metrar að lengd og tekur toppa, m.a. þegar um ræðir asahlákur og háa sjávarstöðu. Útrásir liggja í forsteyptum sökklum á sjávarbotni.

Helgi segir það stóran áfanga að ná að hreinsa allt fráveituvatn áður en því er veitt út í fjörðinn.

„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem búum við langan og þröngan fjörð þar sem stundaður er öflugur matvælaiðnaður að hafa þessa hluti í góðu lagi. Það er á okkar valdi að ganga vel um náttúruna,“ segir hann. 

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...