Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Sýkta kjötið í verslunum Assa og Sainburys er einungis talið vera toppurinn á ísjakanum.
Sýkta kjötið í verslunum Assa og Sainburys er einungis talið vera toppurinn á ísjakanum.
Fréttir 11. október 2016

MRSA-bakteríur greinast í svínakjöti í verslunum Asda og Sainburys

Höfundur: Vilmundur Hansen
Sýni sem nýlega voru tekin úr svínakjöti í verslunum Asda og Sainburys á Bretlandseyjum sýndu að hluti kjötsins var sýkt af sýklalyfjaónæmu afbrigði af MRSA-bakteríum sem finnst í búfé.
 
MRSA stendur fyrir Methicillin-resistant Staphylococcus aureus, eða Staphylococcus aureus-baktería, sem er ónæm fyrir Methicillin-sýklalyfjum. Bakterían getur valdið alvarlegum sýkingum í mönnum og talið að hún valdi dauða um 300 manns á ári á Bretlandseyjum. 
 
Blaðamenn The Guardian, í samvinnu við Bureau of Investigative Journalism, segjast einnig hafa fundið galla í innflutningsreglugerðum Breta sem gerir kleift að flytja til landsins lifandi svín frá löndum eins og Danmörku þar sem afbrigði sömu bakteríu, sem kallast MRSA CC398, er mjög algeng.
 
Þrátt fyrir að MRSA-bakterían drepist sé kjötið vel eldað er mikil hætta á smiti sé það meðhöndlað hrátt. Starfsmenn svínabúa og svínasláturhúsa eru sagðir vera í mestri hættu á smiti og að vera smitberar.
 
Sýkta kjötið í verslunum er því einungis talið vera toppurinn á ísjakanum. 
Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...