Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027 verður fjárveiting til innleiðingar loftslagsaðgerða 87 milljónir króna á næsta ári en ekki 127 milljónir eins og áður var gert ráð fyrir.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027 verður fjárveiting til innleiðingar loftslagsaðgerða 87 milljónir króna á næsta ári en ekki 127 milljónir eins og áður var gert ráð fyrir.
Mynd / smh
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert um 40 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027.

Gert er ráð fyrir 87 milljóna króna framlagi til verkefnisins að teknu tilliti til 40 milljóna króna aðhaldsráðstöfunar.

Í útgefinni aðgerðaáætlun stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aukna kolefnisbindingu er sérstakur flokkur helgaður aðgerðum í landbúnaði.

Undir þann málaflokk fellur sú losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við ýmsa ferla í landbúnaði, bæði við búfjárhald, landnotkun og áburðarnotkun og bruna jarðefnaeldsneytis við notkun tækja og vinnuvéla. Aðgerðir vegna losunar í landbúnaði skiptast í fjögur viðfangsefni; loftslagsvænni landbúnað, áburðarnotkun í landbúnaði, búfé og framræst ræktarland.

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt
Fréttir 9. nóvember 2026

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt

Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá áramótum og Runólfur Ólafsson, framkvæm...

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða
Fréttir 9. nóvember 2026

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða

„Verkefnið Mýrarlíf er sjálfstætt en fer vel með aðgerðum stjórnvalda um endurhe...

Áfram stutt við orkusparnað
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram stutt við orkusparnað

Fjárfestingaátak stjórnvalda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum garðyrkjubæ...

Kvóti verðlaunanaut
Fréttir 9. nóvember 2026

Kvóti verðlaunanaut

Hjónin Baldur Helgi Benjamínsson og Elin Nolsøe Grethardsdóttir fengu viðurkenni...

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár
Fréttir 9. nóvember 2026

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár

Rjúpnastofninn er stór í ár og einkum sterkur á Norðaustur- og Austurlandi. Nátt...

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...