Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Kjötframleiðsla eftir mánuðum
Kjötframleiðsla eftir mánuðum
Fréttir 11. október 2024

Mest aukning í svínakjöti

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Samkvæmt nýútgefnum tölum Hagstofu Íslands jókst innlend kjötframleiðsla um þrjú prósent í ágúst, miðað við sama mánuð á síðasta ári.

Kjötframleiðsla í ágúst 2024 var samtals 1.790 tonn, þremur prósentum meiri en í ágúst á síðasta ári. Munar þar mestu að svínakjötsframleiðslan var 28 prósentum meiri en í ágúst 2023.

Framleiðsla alifuglakjöts var hins vegar tveimur prósentum minni en fyrir ári og nautakjötsframleiðslan þrettán prósentum minni. Þá var engin sauðfjárslátrun í ágústmánuði.

Útungun alifugla til kjötframleiðslu var á hinn bóginn jafnmikil í ágúst og í sama mánuði í fyrra.

Skylt efni: kjötframleiðsla

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta
Fréttir 29. apríl 2026

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta

Skeifudagurinn fór fram á sumardaginn fyrsta að Mið-Fossum í blíðskaparveðri. Vi...

Kílómetragjald á dráttarvélum
Fréttir 25. apríl 2026

Kílómetragjald á dráttarvélum

Bændasamtök Íslands auglýsa eftir bændum sem hafa orðið varir við að kílómetragj...

Nýtt myndband um burðarhjálp
Fréttir 24. apríl 2026

Nýtt myndband um burðarhjálp

Nýtt myndband hefur verið sett inn á YouTube-rásina Leiðbeiningar um burðarhjálp...

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar
Fréttir 24. apríl 2026

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að starfsfólk þess hafi orðið fyrir ...

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 22. apríl 2026

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins

Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík...

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki
Fréttir 22. apríl 2026

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki

Hertar reglur um innflutning á vörum sem innihalda skordýraeitrið thiamethoxam t...

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor
Fréttir 21. apríl 2026

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor

Nýlega kom fyrsti kálfur vorsins í heiminn hjá Nautís á Stóra-Ármóti í Flóahrepp...

Útskriftarhelgi Reiðmannsins
Fréttir 21. apríl 2026

Útskriftarhelgi Reiðmannsins

Laugardaginn 25. apríl fer fram útskriftarhelgi Reiðmannsins að Mið-Fossum í Bor...