Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
MAST nær ekki að sinna öllum lögbundnum skyldum sínum
Mynd / BBL
Fréttir 28. mars 2017

MAST nær ekki að sinna öllum lögbundnum skyldum sínum

Höfundur: smh

Skýrslu vegna stjórnsýsluúttektar á Matvælastofnun (MAST) var skilað til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins í gær. Í skýrslunni kemur  meðal annars fram að MAST nær ekki að sinna öllum lögbundnum skyldum sínum og mikið álag er á stjórnendum og starfsmönnum. Þá starfar stofnunin ekki nægilega vel sem samstillt heild, auk þess sem ímynd stofnunarinnar meðal eftirlitsþega og almennings sé ekki nægilega góð.

Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra síðustu ríkisstjórnar, setti í byrjun desembermánaðar á síðasta ári af staða vinnu á úttekt á starfsemi Matvælastofnunar í kjölfar svokallaðs Brúneggjamáls. Var þeim doktor Ólafi Oddgeirssyni, dýralækni og framkvæmdastjóra ráðgjafarfyrirtækisins Food Control Consultants Ltd. í Skotlandi, og Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa falið að gera úttektina.

Var þeim gert að fara yfir verkferla Matvælastofnunar hvað varðar eftirlit með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit, greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sambærilegum stofnunum í Evrópu. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi MAST, þróun, verklag og lagðar til leiðir til úrbóta. Það kemur fram að stofnunin býr að verðmætum mannauði en styrkja þurfi starf stofnunarinnar, meðal annars með markvissari stjórnun og stefnumótun, skýrari verklagsreglum og betri miðlun upplýsinga. Jafnframt sé þörf á heildstæðri matvælastefnu auk þess sem skipulag matvælaeftirlits sé of flókið.

MAST segir í tilkynningu vegna útgáfu skýrslunnar að stofnunin muni „vinna áfram með tillögur skýrsluhöfunda í skýrsluhöfunda í samstarfi við þriggja manna verkefnisstjórn sem ráðuneytið mun skipa í kjölfarið með það að markmiði að styðja frekar við starfsemi stofnunarinnar. Samhliða þeirri vinnu verður unnið áfram að nýjum lögum um Matvælastofnun sem skilgreina munu betur hlutverk stofnunarinnar, skyldur og heimildir.“

Hægt er að nálgast skýrsluna á vef ráðuneytisins:

Úttekt á Matvælastofnun

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...