Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Þeir leyfðu sér að brosa glaðhlakkalega þeir Sigurbjörn Haraldsson og Magnús E. Magnús- son þegar fyrir lá að gullið væri þeirra, Íslands- meistarar í tvímenningi tvö ár í röð.
Þeir leyfðu sér að brosa glaðhlakkalega þeir Sigurbjörn Haraldsson og Magnús E. Magnús- son þegar fyrir lá að gullið væri þeirra, Íslands- meistarar í tvímenningi tvö ár í röð.
Mynd / AJ
Líf og starf 23. mars 2026

Maggi og Bessi bestir

Höfundur: Björn Þorláksson

Íslandsmótið í tvímenningi 2026 í bridge fór fram í Síðumúlanum, höfuðstöðvum Bridgesambands Íslands, síðustu helgina í febrúar. Íslandsmeistarar síðasta árs, landsliðsmennirnir Magnús MagnússonSigurbjörn Haraldsson, gjarnan kallaðir Maggi og Bessi, hömpuðu gullinu annað árið í röð af nokkru öryggi, skoruðu 61,74 prósent. Gunnar B. Helgason-Hrannar Erlingsson tóku silfrið og Matthías ÞorvaldssonBjarni H. Einarsson bronsið.

Í spili 70 í mótinu mátti vinna 3 spaða á 4-3 samlegu en aðeins 7 slagir eru í grandsamningi. Sigurbjörn og Bessi sátu í AV í spilinu. Sagnir gengu þannig að opnað var á grandi, Sigurbjörn í vestur passaði fumlaust á þessum hættum og velti öðru aldrei fyrir sér. Í mótinu bar nokkuð á því að spilarar beittu innákomum á sterkt grand með háskalegum afleiðingum á hættunni. Eftir pass Bessa sagði norður 2 spaða sem var áskorun í geim en neitaði fjórlit í hálit. Pass hefði verið betra! Suður sló af í 2 gröndum en eftir laufútspil Sigurbjörns fór sá samningur einn niður og ágætt skor til Íslandsmeistaranna.

Allir fjórir á þessari mynd koma að norðan. Mynd/Gabríel.

Stórfrétt úr Úrvalsdeildinni

Sá merki viðburður varð á dögunum að sigurvegarar í Úrvalsdeildinni í bridds, sem fram fer í beinni sjónvarpsútsendingu hjá Símanum klukkan 19 á föstudagskvöldum, eru fallnir úr keppni eftir tvö töp í röð. Sveit Infocapital, skipuð mörgum öflugustu spilurum landsins, hefur alla jafna verið nánast ósigrandi. En allt getur gerst í bridds og liðsmenn Infocapital urðu undir í viðureignum sínum, annars vegar við Sölufélag garðyrkjumanna og hins vegar gegn Seníorum. Útspil Stefáns Jónssonar frá hjartadrottningu þriðju gegn 3 gröndum þegar hann átti fjórlit í spaða tryggði SFG sigurinn í annars jöfnum leik.

Allt getur enn þá gerst í Úrvalsdeildinni. Lesendur Bændablaðsins með áhuga á bridds eru hvattir til að nýta sér hlekk á bardagana sem birtur er á Facebook-síðunni Bridgespjallið rétt fyrir viðureignir ef þeir eru ekki með sjónvarpsáskrift frá Símanum.

Gaman hefur verið að sjá Úrvalsdeildina taka á sig fjölþjóðlegan blæ með þátttöku vina okkar Færeyinga. Ekki er útilokað að fleiri erlendar sveitir taki þátt ef Úrvalsdeildin heldur áfram næsta haust. Vinsældir bridds sem sjónvarpsefni eru að aukast.

Umsjón: Björn Þorláksson.

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: Hugaríþrottir

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...