Landbúnaður þrautseigur samkvæmt fyrirtækjakönnun landshlutanna
Skoðun 10. ágúst 2026

Landbúnaður þrautseigur samkvæmt fyrirtækjakönnun landshlutanna

Höfundur: Vífill Karlsson
Vífill Karlsson.

Niðurstöður Fyrirtækjakönnunar landshlutanna 2025 benda til þess að landbúnaður standi fremur sterkur í samanburði við margar aðrar atvinnugreinar, þrátt fyrir að nýsköpun mælist almennt minni en víða annars staðar í atvinnulífinu.

Könnunin sýnir að ráðningaráform í landbúnaði eru stöðugri en í flestum öðrum greinum. Af þeim tíu atvinnugreinum sem bornar voru saman var landbúnaður eina greinin þar sem ráðningaráform drógust ekki saman frá síðustu könnun árið 2022. Þótt ekki sé gert ráð fyrir mikilli fjölgun starfsfólks er stöðugleikinn meiri en í öllum öðrum greinum þar sem fyrirtæki hafa dregið úr ráðningaráformum á undanförnum árum.

Sérstaklega vekur athygli mikill fjárfestingahugur innan greinarinnar. Landbúnaður er meðal þeirra atvinnugreina sem sýna hvað mestan vilja til fjárfestinga á næstu misserum og jafnframt ein af aðeins tveimur greinum þar sem fjárfestingaráform hafa aukist frá síðustu könnun. Þetta bendir til þess að bændur og landbúnaðarfyrirtæki sjái tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi og kannski vegna þess. Landbúnaður hefur lengi gengið í gegnum hagræðingarferli sem að sumra mati hefur gengið of hægt en annarra of hratt. Ef horft er rúmlega 100 ár aftur þá starfaði um 80% við landbúnað en í dag innan við 2% sé horft til gagna Hagstofu Íslands yfir fjölda starfandi eftir atvinnugreinum (Landbúnaður og skógrækt). Þar af eru karlar um 65% á móti konum, innflytjendur 8% á móti Íslendingum. Athygli vekur samt að meðal innflytjenda eru konur fleiri starfandi í landbúnaði en karlar, eða 55%.

Þegar litið er til mannafla kemur fram að landbúnaður býr við minni skort á formlega menntuðu starfsfólki en flestar aðrar atvinnugreinar. Aðeins um 12% fyrirtækja í greininni töldu sig skorta starfsfólk með tiltekna menntun, sem er lægsta hlutfall allra atvinnugreina í könnuninni. Samt jókst það hlutfall á milli kannana. Þörf greinarinnar fyrir starfsfólk með ákveðna færni aðra en þá sem hægt er að fá í skólakerfinu er hins vegar nærri meðaltali allra atvinnugreina og enn jókst einna mest á milli kannana. Þar komu orð sem endurspegluðu almenna reynslu af bústörfum, sjálfstæð vinnubrögð og vélar oftast fyrir. 

Á hinn bóginn benda niðurstöðurnar til þess að nýsköpun í landbúnaði sé minni en í mörgum öðrum greinum og að hún hafi dregist saman frá fyrri könnun. Það á einkum við um þróun nýrra vara og þjónustu. Undantekning frá þeirri þróun virðist þó vera þróun nýrra vinnuferla þar sem landbúnaður kemur tiltölulega vel út. Þó eru til mörg skemmtileg dæmi, t.d. í Dölunum, þar sem bændur eru að stíga skref í átt að aukinni garðyrkju og úrvinnslu ullar sem gætu talist til nýsköpunar þar sem afurðirnar eru nýjar á markaði hérlendis.

Könnunin sýnir einnig að fyrirtæki í landbúnaði telja sig njóta talsverðs stuðnings frá Byggðastofnun og eru meðal þeirra atvinnugreina sem meta stuðning stofnunarinnar hvað mest.

Heildarmyndin sem dregst upp er því sú að landbúnaður einkennist af stöðugleika, fjárfestingarvilja og aukinni þörf fyrir hæft starfsfólk, en að á sama tíma sé tækifæri til að efla nýsköpun og þróunarstarf innan greinarinnar.

Fyrirtækjakönnun landshlutanna 2025 var framkvæmd á tímabilinu apríl til október og tóku alls 2.165 fyrirtæki þátt – þar af 168 í landbúnaði – og 164 fyrirtæki í landbúnaði svöruðu könnuninni 2022. Könnunin náði til fyrirtækja um allt land; hún var send til fyrirtækja á landsbyggðinni í gegnum tengslanet landshlutasamtakanna og til tæplega 3.700 fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt fyrirtækjaskrá Creditinfo. Til að auka þátttöku innan einstakra atvinnugreina komu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Bændasamtök Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar og Landssamband smábátaeigenda einnig að dreifingu könnunarinnar.

Höfundur er hagfræðingur og atvinnuráðgjafi.

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki
Fréttir 10. ágúst 2026

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki

Landbúnaðarstyrkir Evrópusambandsins virðast ætla að halda velli í næstu sjö ára...

Háskóli Íslands gerir moltu
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vé...

Þröstur Norðurlandameistari
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tid...

Atvinnulífssýning dagana  19. og 20. september
Fréttir 10. ágúst 2026

Atvinnulífssýning dagana 19. og 20. september

Atvinnulífssýning verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðarkróki í haust eða dagana...

Selja blóm, steina og tré
Fréttir 10. ágúst 2026

Selja blóm, steina og tré

Hjónin Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir hafa verið í plöntuframlei...

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna
Fréttir 7. ágúst 2026

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna

Þrettán sóttu um starf forstjóra Stofununnar atvinnuveganna. Starfið var auglýst...

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera
Fréttir 7. ágúst 2026

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa fengið veglegan Evrópustyrk vegna sjálfbær...

Moskítóflugur og mítlar
Fréttir 6. ágúst 2026

Moskítóflugur og mítlar

Vöktun á moskítóflugum, mítlum og lúsmýi heldur áfram í sumar. Almenningur er hv...