Nýtt fræframleiðsluhús að rísa á Vöglum í Fnjóskadal sem verður nýtt til að framleiða fræ af úrvalslerki (Hrym) til notkunar um land allt.
Nýtt fræframleiðsluhús að rísa á Vöglum í Fnjóskadal sem verður nýtt til að framleiða fræ af úrvalslerki (Hrym) til notkunar um land allt.
Mynd / Helga Ösp Jónsdóttir
Á faglegum nótum 21. september 2026

Kvæmarannsóknir og kynbætur á trjátegundum fyrir íslenska skógrækt

Höfundur: Brynjar Skúlason

Kvæmi er hugtak sem notað er yfir erfðafræðilega aðgreindan hóp einstaklinga innan sömu trjátegundar sem á uppruna sinn á ákveðnu landfræðilegu svæði. Tré af sömu tegund geta því verið mjög ólík eftir því hvaðan þau koma, meðal annars hvað varðar vöxt, lifun, vaxtartakt, frostþol og aðlögun að loftslagi. Þessi munur skiptir miklu máli í skógrækt, þar sem markmiðið er að velja þann efnivið sem hentar best þeim aðstæðum sem ríkja á hverjum stað. 

Kvæmarannsóknir hafa verið mikilvægur þáttur í íslenskum skógræktarrannsóknum frá upphafi skipulegrar skógræktar. Einkum var mikið um slíkar rannsóknir og tilraunir á síðari hluta 20. aldar, þegar leitað var að trjátegundum og kvæmum sem gætu nýst við íslenskar aðstæður. Stórar kvæmatilraunir voru meðal annars gerðar með sitkagreni, stafafuru, lerki, birki, fjallaþin og elri þar sem kvæmin voru prófuð víða um land við fjölbreytt umhverfisskilyrði.

Þekking á kvæmum er grundvallaratriði fyrir markvissa skógrækt. Rétt val á kvæmi getur haft áhrif á það hvort tré lifa af, hversu hratt þau vaxa, hvenær þau hefja og ljúka ársvexti og hversu vel þau standast íslenskt veðurfar. Þetta er sérstaklega mikilvægt á Íslandi þar sem vaxtartíminn er stuttur, sumur tiltölulega svöl og veðurfar breytilegt eftir landshlutum. Með því að velja vel aðlöguð kvæmi má því bæta árangur skógræktar verulega og draga úr hættu á vanþrifum og skemmdum.

Þessi þekking verður jafnframt sífellt mikilvægari þegar horft er til loftslagsbreytinga. Breytt hitafar, lengri vaxtartími, aukin tíðni veðuröfga og mögulegar breytingar á sjúkdómum og skaðvöldum kalla á skóga sem geta aðlagast breyttum aðstæðum. Með rannsóknum á uppruna og erfðabreytileika trjáa er hægt að velja þann efnivið sem hefur bestu möguleikana á að dafna við framtíðarskilyrði. Þannig verða kvæmarannsóknir mikilvægur grunnur að aðlögun íslenskrar skógræktar að loftslagsbreytingum.

Kvæmarannsóknir eru einnig undirstaða kynbótastarfs. Þegar sýnt hefur verið fram á að ákveðin kvæmi standa sig vel er hægt að leita innan þeirra að einstaklingum sem skara fram úr hvað varðar vöxt, beinleika, lifun eða aðra æskilega eiginleika. Þessir úrvalseinstaklingar geta síðan orðið upphaf að kynbótaverkefnum og fræframleiðslu. Dæmi um þetta er kynbótastarf með lerki, þar sem valin voru afburðatré bæði úr reitum með sérlega góðum kvæmum og úr kvæmatilraunum, annars vegar rússalerki og hins vegar evrópulerki. Tegundablendingurinn Hrymur er einmitt afurð stýrðra víxlana milli úrvalseinstaklinga evrópulerkis og rússalerkis og hefur sýnt góð þrif á Vesturlandi og Suðurlandi þar sem venjulegt rússalerki hefur átt erfitt uppdráttar.

Á síðustu um það bil 20 árum hefur verið unnið markvisst að uppbyggingu frægarða utandyra fyrir helstu trjátegundir sem notaðar er í skógrækt á Íslandi s.s. birki, sitkagreni, sitkabastarð, evrópulerki og fjallaþin. Frægarðar gera kleift að framleiða fræ úr völdum og prófuðum erfðaefniviði og draga þannig úr þörfinni fyrir óprófað eða óaðlagað innflutt fræ. Samhliða uppbyggingu frægarðanna hefur fræ í auknum mæli verið tínt í innlendum vel hirtum reitum þar sem gróðursett hafa verið viðurkennd og þaulreynd kvæmi. Þetta markar mikilvægt skref í átt að sjálfbærari skógrækt með erfðaefni sem farið hefur í gegnum náttúruúrval á Íslandi og er þannig betur aðlagað íslensku umhverfi.

Kvæmarannsóknir, úrval, kynbætur og frægarðar mynda þannig eina samfellda keðju. Fyrst þarf að þekkja breytileikann, síðan velja bestu einstaklingana, prófa afkvæmi þeirra við íslenskar aðstæður og að lokum tryggja að gott erfðaefni sé tiltækt til framtíðar í sérstökum frægörðum til almennra nota. Þessi vinna er ein mikilvægasta undirstaða þess að íslensk skógrækt geti orðið markvissari, afkastameiri og betur í stakk búin að takast á við loftslagsbreytingar.

Skylt efni: Trjárækt | Land og skógur

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir
Fréttir 16. september 2026

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir

Metfjöldi nemenda er skráður í Háskólann á Bifröst í haust. Þetta er annað árið ...