Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Meira en 70 prósent aðspurðra hafna því að veitt séu einkaleyfi á náttúrulega fyrirliggjandi genum.
Meira en 70 prósent aðspurðra hafna því að veitt séu einkaleyfi á náttúrulega fyrirliggjandi genum.
Mynd / Bbl.is
Fréttir 8. maí 2026

Könnun sýnir yfirgnæfandi andstöðu við einkaleyfi á fræjum

Höfundur: Þröstur Helgason

Um 80 prósent borgara í Evrópusambandinu eru andvíg því að veita einkaleyfi á lifandi lífverum, svo sem plöntum og dýrum, samkvæmt nýrri könnun sem samtökin No Patents on Seeds! hafa birt. Könnunin var framkvæmd í fimm aðildarríkjum ESB, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi og Póllandi. Eubusiness.com segir frá.

Niðurstöðurnar sýna jafnframt að meira en 70 prósent aðspurðra hafna því að veitt séu einkaleyfi á náttúrulega fyrirliggjandi genum. Andstaðan var mest í Póllandi og Þýskalandi, en minni í Frakklandi og á Ítalíu.

Þá svöruðu yfir 90 prósent þátttakenda því játandi að fjölbreytni í plöntukynbótum og fæðuframboði skipti sköpum og að umhverfisvernd væri sérstaklega mikilvæg þegar kemur að einkaleyfum á erfðabreyttum plöntum og markaðssetningu þeirra. Í þessum efnum mældist stuðningurinn mest í Póllandi og á Ítalíu, en næstmestur í Þýskalandi og Frakklandi.

„Afstaðan er svipuð í öllum fimm löndunum, almenningur hafnar einkaleyfum á fræjum,“ segir Nout van der Vaart frá Oxfam Novib. Hann segir meirihluta borgara í ESB vera mjög gagnrýna á einkaleyfi á náttúrulegum eiginleikum og vilja varúðarnálgun þegar kemur að einkaleyfum á erfðabreyttum plöntum og losun þeirra út í umhverfið. Hann kallar eftir því að stjórnmálamenn axli ábyrgð og stöðvi einkaleyfi á fræjum í Evrópusambandinu og leggi jafnframt meiri áherslu á fjölbreytni í plöntukynbótum og vernd almannaeigna.

Könnunin var framkvæmd af skoðanakönnunarfyrirtækinu Civey. Ein helsta ástæða þess að ráðist var í hana er sú að aðildarríki ESB og Evrópuþingið standa frammi fyrir því að greiða atkvæði um ný lög um málið. Þau myndu undanskilja matjurtaplöntur sem verða til með nýrri erfðatækni – nýjum erfðamengisaðferðum (NGT) – frá gildandi reglum um áhættumat og merkingar. Niðurstaðan gæti leitt til þess að einkaleyfum á fræjum fjölgi verulega.

Evrópuþingið hafði upphaflega krafist þess að einkaleyfi á plöntum og erfðaauðlindum yrðu annaðhvort bönnuð eða takmörkuð. Samkomulagstextinn sem Evrópuráðið og Evrópuþingið munu nú greiða atkvæði um heimilar þó að allar NGTplöntur verði einkaleyfisverndaðar, þar á meðal plöntur með náttúrulega fyrirliggjandi gen. Flestar NGTplöntur gætu þá farið á markað án sérstaks umhverfisáhættumats.

„Allar erfðabreyttar nytjaplöntur, þar á meðal NGTplöntur, eru einkaleyfisvarðar, en fræjarisarnir Bayer, BASF og Syngenta sækjast jafnframt eftir einkaleyfum á hefðbundnum nytjaplöntum,“ varar Nina Holland hjá Corporate Europe Observatory við. Hún segir að með þessu knýi stórfyrirtækin aðra fræframleiðendur út af markaðnum og styrki þannig enn frekar markaðsráðandi stöðu sína. Hún segir einkaleyfin hindra aðgengi plöntukynbótamanna að fjölbreyttum fræjum sem nauðsynleg séu fyrir seigfært fæðukerfi og að almenningur hafni þess vegna slíkum einkaleyfum skýrt.

„Ljóst er að sjónarmið almennings voru ekki tekin nægilega til greina við undirbúning núverandi tillögu um framtíðarlöggjöf á sviði NGTplantna,“ segir Martha Mertens hjá Friends of the Earth. Hún krefst þess að tillögutextinn verði breyttur þannig að einkaleyfi á fræjum verði stöðvuð, eða að tillögunni verði hafnað alfarið.

Skylt efni: Erfðabreytt | fræ | Evrópa

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...