Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 11. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Ríkisstjórnin virðist ætla að taka alla slagi sem bjóðast í íslenskri pólitík. Nú síðast er hjólað í ferðaþjónustuna með meiri álögum og skattpíningu. Í fyrra var það auðlindagjald á sjávarútveginn, aukinn áhersla á virkjanaframkvæmdir og uppbyggingu gagnavera og í sumar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Allt hafa þetta verið harðir slagir og allt útlit fyrir að haustið verði stjórninni erfitt. Ofan í kaupið hefur henni tekist að reita verkalýðsforystuna til reiði með því að leggja ekkert til lausnar þess hnúts sem kjarasamningar eru lentir í. Atvinnulífið er sömuleiðis meira og minna á móti þessari stjórn og ofuráhersla á hallalaus fjárlög virðist ekki róa stjórnendur hagsmunasamtaka eða fyrirtækjarekendur.

Það er eitthvað kunnuglegt við þessar kringumstæður. Hin svokallaða Jóhönnustjórn, sem tók við landinu eftir hrun, var í svipaðri stöðu. Hún tók einnig svo að segja alla slagi sem buðust á þeim tíma, allt frá stjórnarskrármáli til Evrópusambandsaðildar. Hún lifði í eitt kjörtímabil. Slagirnir voru dýrkeyptir og þó að efnahagur almennings tæki smám saman að vænkast eftir skellinn í hruninu tókst stjórninni ekki að sannfæra fólk um að hún væri á réttri leið. Kannski var ástæðan einmitt sú að tíminn og orkan fór að of miklu leyti í risavaxin mál sem á endanum náðust ekki fram.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur virðist heldur ekki hafa tiltrú landsmanna. Þjóðin segir nei við Evrópusambandsviðræðum. Veiðigjaldamálið virtist ekki skipta því máli fyrir ríkiskassann sem almenningi var talin trú um, þó að mikill meirihluti þjóðarinnar væri sammála réttlætisrökunum. Undir kraumar óánægja með virkjanastuð ríkisstjórnarinnar, gagnaverauppbyggingu fyrir alþjóðleg tæknifyrirtæki, skort á náttúruverndarsjónarmiðum – og nú fær hallalausa fjárlagafrumvarpið falleinkunn hjá svo að segja öllum hagsmunaaðilum og greiningardeildum, meira að segja menningarlífinu. 

Á þriðjudag komu svo þær fréttir að árangur íslenskra nemenda hafi aldrei verið verri í PISA-könnuninni en einmitt nú. Tölustafaþruglið í mennta- og barnamálaráðherra skilaði sem sagt engu – fyrirsjáanlega auðvitað. Könnunin leiðir í ljós að um 40% íslenskra barna útskrifast úr grunnskóla án þess að búa yfir grunnhæfni í stærðfræði og lesskilningi. Og færri sýna afburðahæfni.

Þetta eru auðvitað ekki nýjar fréttir. Íslensk börn hafa komið illa út úr PISA-könnuninni árum saman. Það sem núverandi ríkisstjórn hefur helst dottið í hug til að vinna á lélegum lesskilningi íslenskra barna fyrir utan að breyta einkunnagjöf er að draga verulega úr framlögum til menningarmála en niðurskurðurinn var boðaður strax í fyrstu fjármálaáætlun stjórnarinnar í febrúar í fyrra. Hann kemur meðal annars fram í minnkuðum Bókasafnssjóði höfunda um 36,6% en úr honum fá til dæmis barnabókahöfundar greitt og sömuleiðis barnabókaþýðendur.

Íslensk menning á ekki einu sinni skjól hjá þessari aumu ríkisstjórn. Enda standa á henni öll spjót.

Kosningarnar um ESB töpuðust á því að utanríkisráðherra háði sína kosningabaráttu í Brussel en ekki hér heima. Áhugi forsætisráðherra á málinu var heldur ekki meiri en svo að hann opnaði ekki munninn um efni kosninganna fyrr en í ensku hlaðvarpi í lok júlí. Mikilvægar skýrslur um áhrif aðildarviðræðna komu viku fyrir kosningar. Það var engin raunveruleg sannfæring á bak við þessa kosningabaráttu hjá stjórninni. Nú fagnar þessi sama stjórn fjárlagafrumvarpi með stóru handteiknuðu núlli. Í fljótu bragði virðist það súmmera upp þessa ríkisstjórn á írónískan hátt. 

Skylt efni: jarmið

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...