Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. júní 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Verð á innfluttum kartöflum hefur ekki lækkað þó að innflutningstollar hafi staðið í stað í meira en tvo áratugi. Í búðum landsins eru innfluttu kartöflurnar jafndýrar eða dýrari en þær innlendu eins og fram kom í aðsendri grein í síðasta blaði. Samanburður við kartöfluverð í Danmörku leiðir í ljós talsverðan mun.

Meðalverð innfluttra kartaflna með flutningskostnaði (cif-verð) var árið 2025 um 240 krónur fyrir kílóið. Við það bætist sextíu króna magntollur á hvert kíló á ákveðnum tíma ársins. Í júnímánuði er enginn tollur og þá er mest flutt inn. Meðalinnflutningsverðið með flutningskostnaði í júní 2025 var 161 króna á kílóið. Í júnímánuði voru flutt inn um 321.000 kíló af kartöflum en alla hina mánuðina samanlagt voru flutt inn um 532.000 kíló. 

Samanburður á verði út úr búð á Solist kartöflum í Danmörku og Íslandi sýnir að kílóverðið í Danmörku er 192 íslenskar krónur en 399 krónur í Krónunni.

Í aðsendri grein Ólafs Stephensen í síðasta Bændablaði gerði hann verðsamanburð á íslenskum og innfluttum kartöflum í tveimur íslenskum stórmörkuðum. „Kostuðu innlendu kartöflurnar á bilinu 349-633 krónur kílóið (að lífrænt ræktuðum kartöflum undanskildum) en þær erlendu, fluttar inn með tollum, 531-879 krónur kílóið.“ Segir Ólafur að þetta sé til marks um að tollar og innflutningskostnaður bíti enn.

Sextíu króna magntollur á innfluttar kartöflur hefur ekki hækkað frá árinu 2002 þegar hann var settur á. Það sama ár var að auki settur á 30% tollur á innflutningsverðmæti en hann var felldur niður árið 2018 þegar tvíhliða samningur við Evrópusambandið um tolla á landbúnaðarvörum tók gildi. 

Neytendur þurfa líklega ekki að horfa lengi á þessar tölur til þess að átta sig á því að það eru ekki 60 króna tollar sem halda verði á innfluttum kartöflum háu í búðum landsins. Háu innkaupaverði er þar heldur ekki um að kenna.

Hvað sem því líður þá kemur það íslenskum kartöflubændum ekki illa að heildsalar og búðarekendur hér á landi skuli ákveða að halda verði á innfluttum kartöflum háu og jafnvel hærra en á íslensku framleiðslunni. Því betur standa íslensku kartöflubændurnir í samkeppninni. En það kemur sér ekkert sérlega vel fyrir íslenska neytendur að álagningin á innflutninginn skuli vera svo há sem raun ber vitni.

Kartöflubændur segjast þar að auki hafa rökstuddan grun um að verið sé að flytja inn ferskar venjulegar kartöflur í töluverðu magni á öðrum tollfrjálsum tollanúmerum, eins og fram kom í fréttaskýringu hér í blaðinu 28. maí. Þetta segjast þeir geta lesið úr innflutnings- og sölutölum. Þeir hafa ítrekað óskað eftir því við tollayfirvöld að þessi mál verði skoðuð en engin svör fengið. Bændablaðið hefur sömuleiðis reynt að fá svör hjá tollayfirvöldum um þessi mál en engin fengið. Tollurinn segist þó hafa móttekið fyrirspurnina en tekur fram að þetta mál sé ekki í forgangi. Hverjir skyldu vera í forgangi hjá Tollinum fyrst neytendur eru það ekki?

Skylt efni: Kartöflur | jarmið

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð...

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...