Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Vel haldnar kindur í grösugum haga.
Vel haldnar kindur í grösugum haga.
Mynd / GMT
Fréttir 1. júlí 2024

Íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir og sektir

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Í apríl og maí í ár var úrskurðað um ellefu íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir á sviði eftirlits með dýravelferð og matvælaframleiðslu, níu í apríl og tvær í maí.

Á Vesturlandi var kúabú svipt mjólkursöluleyfi. Aðstæður í mjólkurhúsi þóttu ekki uppfylla kröfur laga og reglugerða og því var búið svipt leyfi til mjólkurframleiðslu.

Settar voru kröfur á sauðfjárbú á Vesturlandi og bændum á viðkomandi búi gert að fækka fé sínu verulega frá og með hausti 2024 vegna skorts á getu. Jafnframt var gert skylt að tryggja aðstoðarmann við sauðburð vorið 2024.

Sviptur heimild til dýrahalds

Matvælastofnun (MAST) lagði dagsektir á kúabónda á Norðvesturlandi til að knýja á um úrbætur í dýravelferð.

MAST kærði alvarlega vanrækslu á nautgripum á býli á Norðvesturlandi til lögreglu. Við eftirlit sem framkvæmt var með aðstoð lögreglu fundust 29 dauðir nautgripir í gripahúsi. Í kjölfarið aflífuðu starfsmenn stofnunarinnar 21 grip til viðbótar á staðnum sökum slæms ástands, allt gripi sem voru hýstir í húsinu. Aðrir nautgripir, sem hafði verið haldið úti við, voru hýstir yfir nóttina, en síðan voru þeir færðir til slátrunar daginn eftir. Hræjum og skrokkum hefur skv. upplýsingum MAST þegar verið fargað á viðurkenndum urðunarstað.

Matvælastofnun svipti umráðamanninn heimild til dýrahalds tímabundið, eða þar til dómur fellur í málinu. Í kæru til lögreglu gerir stofnunin þá kröfu að umráðamaður verði með dómi sviptur heimild til að hafa búfé í umsjá sinni, versla með þau eða sýsla með þau með öðrum hætti. Málið er nú til frekari rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra.

Kind, hross og slasaðir fuglar

Á Norðurlandi sektaði MAST bónda vegna vanrækslu á kind. Í kjölfar eftirlits sumarið 2023 fékk viðkomandi bóndi stuttan frest til að láta dýralækni líta á kind sem var hölt jafnt á framfótum sem afturfótum eða aflífa kindina ella. Bóndinn brást ekki við fyrr en seint og um síðir. Stjórnvaldssekt var lögð á hann að upphæð 300.000 kr.

Á Suðurlandi gerði MAST kröfu um að þrjú gömul hross á Suðurlandi yrðu felld. Við eftirlit kom í ljós óviðunandi ástand á hrossunum og var eigandanum gert að fella þau.

Þá var sláturhús á Suðvesturlandi sektað fyrir brot á velferð holdakjúklinga við slátrun. Starfsmenn sláturhússins höfðu hengt sýnilega slasaða fugla upp á sláturlínu en samkvæmt reglugerð ber að aflífa slíka fugla strax. Stjórnvaldssekt nam 150.000 kr.

Vægasta úrræði beitt

Meðalhófsregla stjórnsýslulaga segir svo til um að þegar íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun er tekin skuli beita vægasta úrræði sem völ er á og er nægjanlegt til að ná því markmiði sem er að stefnt (12. gr.).

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...