Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Fyrsti hópur veiðileiðsögumanna sem útskrifaðist.
Fyrsti hópur veiðileiðsögumanna sem útskrifaðist.
Í deiglunni 5. júní 2019

Veiðileiðsögumenn útskrifast úr Ferðamálaskóla Íslands

Höfundur: Gunnar Bender
Fyrir skömmu  útskrifaði Ferða­mála­skóli Íslands hóp 22 veiði­leiðsögumanna sem stundaði nám í vetur.
Námið er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og voru fyrirlesarar meðal annars frá Landssambandi veiðifélaga  (LV) og  hinum ýmsu veiðiám, t.d. Ytri Rangá, Vatnsdalsá og Breiðdalsá og Jöklu.  
 
Námið var alls 70 stundir og er hugsað fyrir þá sem hug hafa á að gerast veiðileiðsögumenn við ár og vötn fyrir jafnt íslenska sem og erlenda veiðimenn.  
 
Meðal kennsluefnis var til dæmis undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska ásamt ýmsum öðrum fróðleik.  Og síðast en ekki síst var lögð mikil áhersla á skyndihjálp og áfallahjálp og sérstaklega til þátta sem tengst gætu hættum við ár og vötn.  Að lokum var síðan tveggja daga ferð í Ytri Rangá þar sem nemendur fengu að spreyta sig í kasttækni með mismunandi veiðarfærum, einhendum, tvíhendum og kaststöngum undir handleiðslu kennara. Nú þegar hafa veiðileyfissalar haft samband og óskað eftir nýútskrifuðum veiðileiðsögumönnum til starfa á komandi sumri.
 
Allir leiðbeinendurnir hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn við ár og vötn eða vísindamenn hver á sínu sviði.
 
Reynir Friðriksson kennir á nám­skeiðinu.
Eitt stærsta landeldi heims  í Vestmannaeyjum
Fréttaskýring 26. október 2026

Eitt stærsta landeldi heims í Vestmannaeyjum

Uppbygging fiskeldisstöðvarinnar Laxeyjar í Vestmannaeyjum er komin langt á veg,...

Kolefniseiningar úr endurheimt votlendis og nýskógrækt
Fréttaskýring 22. október 2026

Kolefniseiningar úr endurheimt votlendis og nýskógrækt

Kolefnismarkaðir eru af tvennum toga; lögbundnir og valkvæðir. Á lögbundnum mörk...

Ábyrgð og tækifæri bænda í landnotkun
Fréttaskýring 14. október 2026

Ábyrgð og tækifæri bænda í landnotkun

Bráðabirgðaniðurstöður úr losunarbókhaldi Íslands fyrir síðasta ár voru kynntar ...

Eitt sláturhús selur alvöru vambir
Fréttaskýring 9. október 2026

Eitt sláturhús selur alvöru vambir

Aðgengi fólks að alvöru vömbum til sláturgerðar hefur minnkað á undanförnum árum...

Hvaða flaska er best fyrir umhverfið?
Fréttaskýring 28. september 2026

Hvaða flaska er best fyrir umhverfið?

Umbúðir vega gjarnan þungt þegar kolefnisspor matar- og drykkjarvara er skoðað. ...

Fyrsti innflutningur á frjóvguðum laxahrognum í áratugi
Fréttaskýring 24. september 2026

Fyrsti innflutningur á frjóvguðum laxahrognum í áratugi

Nokkur fiskeldisfyrirtæki hafa óskað eftir leyfi til innflutnings á frjóvguðum l...

Spurningar um vernd og vind
Fréttaskýring 24. september 2026

Spurningar um vernd og vind

Fyrsta vindorkuver Íslands, Vaðölduver, var gangsett 15. september síðastliðinn....

Markaðurinn stækkar ef fleiri rækta til manneldis
Fréttaskýring 11. september 2026

Markaðurinn stækkar ef fleiri rækta til manneldis

Bændur í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, á Sandhóli í Vestur-Skaftafellsssýslu og ...