Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Pálmar Örn Guðmundsson með verðlaunin.
Pálmar Örn Guðmundsson með verðlaunin.
Mynd / Elisabeth Bernard
Fréttir 11. apríl 2025

Hvatningarverðlaun skógræktar 2025

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson

Hvatningarverðlaun skógræktar 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Kvikunni, menningarhúsi Grindvíkinga, á alþjóðlegum degi skóga þann 21. mars.

Er þetta í annað sinn sem verðlaunin eru afhent, en þau eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, fyrirtækja, félaga eða stofnana sem unnið hafa óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Markmið með afhendingu þeirra er að hvetja skógræktarfólk til áframhaldandi starfa og vekja athygli á því margþætta góða skógarstarfi sem unnið er að um land allt.

Kallað var eftir tilnefningum að verðlaununum í janúar. Alls bárust tilnefningar að 20 aðilum og valdi dómnefnd úr þrjá aðila til kosninga á vef. Niðurstaða kosninga var sú að Pálmar Örn Guðmundsson, formaður Skógræktarfélags Grindavíkur, fékk flest atkvæði og hlýtur því verðlaunin í ár.

Hófst athöfnin á ávarpi Ásrúnar Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, sem bauð gesti velkomna og sagði stuttlega frá stöðu mála í bænum. Því næst tók Hjörtur Bergmann Jónsson, formaður búgreinadeildar skógarbænda hjá Bændasamtökunum, við og afhenti Pálmari verðlaunin formlega. Fékk Pálmar sem verðlaunagrip til eignar tvær fallegar skálar úr íslensku birki, sem gerðar eru af handverksmanninum Trausta Tryggvasyni, sem einnig er fyrrverandi formaður Skógræktarfélags Stykkishólms.

Pálmar hefur á eigin spýtur unnið mikilvægt og óeigingjarnt kynningarstarf í þágu skógræktar á Íslandi með Youtube-rás sinni, Skógurinn, þar sem hann hefur fjallað um ýmsa þætti skógræktar – einstaka trjátegundir, skóga og skógræktaraðila, svo sem gróðrarstöðvar. Þrátt fyrir að heimabærinn hans og skógar Skógræktarfélags Grindavíkur hafi skemmst vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga undanfarin ár, þá hefur hann ekki látið deigan síga. Öll vinna við myndböndin er unnin af honum einum án aðkomu annarra. Með sinni einlægu og smitandi ástríðu fyrir skógum og náttúru, kveikir Pálmar áhuga hjá hverjum þeim sem uppgötvar myndböndin hans og er sérlega lofsvert hvað hann hefur verið duglegur að setja enska texta við myndböndin, svo fleiri geti notið þeirra.

Að verðlaununum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (búgreinadeild skógarbænda).

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...