Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Í dag er hlutfall innflutnings á svínakjöti um 25–30 prósent, að mati Ingva. Ef tollvernd hyrfi telur hann líklegt að þetta hlutfall myndi breytast verulega.
Í dag er hlutfall innflutnings á svínakjöti um 25–30 prósent, að mati Ingva. Ef tollvernd hyrfi telur hann líklegt að þetta hlutfall myndi breytast verulega.
Fréttir 12. júní 2026

Hvað þýðir aðild að ESB?: „Svínaræktin myndi ekki standast breytingarnar“

Höfundur: Þröstur Helgason

– Rekstrargrundvöllur fjölmargra búa myndi veikjast eða hverfa

Ingvi Stefánsson, formaður svínabænda, segir í nýjasta þætti Útvarps Bændablaðsins að aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi líklega hafa veruleg áhrif á svínarækt, þar sem tollvernd hyrfi og íslensk framleiðsla ætti erfitt með að keppa við erlenda. Hann telur að rekstrargrundvöllur fjölmargra búa myndi veikjast eða hverfa og að íslensk svínarækt í núverandi mynd myndi ekki standast slíkar breytingar.

Ingvi Stefánsson, formaður svínabænda, hefur fylgst með umræðu um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu um árabil og segir reynslu og greiningar á málinu gefa tilefni til varúðar af hálfu svínabænda.

„Við höfum svo sem ekki fjallað um þetta með ítarlegum hætti síðustu misseri en tókum góðan snúning á þessu þegar umsóknarferlið var í gangi hérna á árunum 2009 til 2013,“ segir Ingvi. Þá hafi meðal annars verið unnin skýrsla og farið í kynnisferðir til Finnlands til að skoða reynslu þeirra eftir inngöngu í sambandið. „Því miður sjáum við okkar framtíð ekki vel borgið innan sambandsins,“ segir hann.

Tollvernd hyrfi

Að mati Ingva liggur helsti munurinn í tollverndinni.

„Tollverndin myndi hverfa,“ segir hann.

Hann bendir á að Ísland sé hálaunaland og að allur kostnaður við framleiðslu sé mun hærri en í þeim löndum sem íslenskir bændur þyrftu að keppa við.

„Við eigum bara ekki breik í þá samkeppni,“ segir Ingvi. „Allur tilkostnaður við okkar framleiðslu er svo langtum meiri.“

Þó hann viðurkenni að ekki sé allt neikvætt, til dæmis gætu vextir lækkað, telur hann það ekki nægja. „Það myndi hvergi hrökkva til til þess að við gætum keppt.“

Svínarækt gæti dregist saman verulega

Spurður hvort búum myndi fækka segir Ingvi það líklegt ef rekstrargrundvöllur hyrfi.

„Svínaræktin eins og við þekkjum hana í dag myndi ekki verða svipur hjá sjón,“ segir hann. Hann telur að einhver framleiðsla gæti haldist, einkum fyrir ferskvörumarkað, en að stærsti hluti greinarinnar – vinnsla á kjöti – myndi dragast verulega saman.

Í dag eru svínabú á Íslandi um 20 talsins, en samanlagt eru það færri en tíu aðilar sem stunda svínarækt.

„Þetta er orðið mjög samþjappað,“ segir Ingvi og bendir á mikla hagræðingu undanfarin ár. Þrátt fyrir það sé starfsemin afar smá í alþjóðlegum samanburði.

Hann nefnir dæmi frá Danmörku þar sem eitt sláturhús geti unnið alla íslenska framleiðslu á fáum dögum. „Þetta er svo rosalega erfitt að bera saman, við erum svo agnarsmá í þessu samhengi.“

Mikilvæg fyrir aðrar greinar

Ingvi bendir á að svínarækt skipti einnig máli fyrir aðrar greinar.

„Svínið er dálítið hryggjar- stykkið í vinnslunni,“ segir hann og nefnir að kjötvinnslur reiði sig á svínakjötið samhliða nauta- og lambakjöti. Samdráttur í svínarækt hefði því áhrif út fyrir greinina sjálfa.

Innflutningur myndi aukast

Í dag er hlutfall innflutnings á svínakjöti um 25–30 prósent, að mati Ingva. Ef tollvernd hyrfi telur hann líklegt að þetta hlutfall myndi breytast verulega.

„Það yrði langsótt að sjá annað en að hlutfallið myndi snúast við ef ekki meira,“ segir hann.

Neytendur og verð

Aðspurður hvort íslenskir neytendur myndu velja innlenda framleiðslu segir Ingvi að vissulega sé til hópur sem geri það en að flestir taki ákvörðun út frá verði.

„Þegar þetta er komið í hilluna, þá horfirðu bara á vöruna og verðið,“ segir hann. Hann bendir á að margir neytendur séu ekki upplýstir um mun á aðbúnaði dýra eða notkun sýklalyfja. Hann nefnir að notkun sýklalyfja sé margfalt meiri erlendis en á Íslandi og að strangar kröfur séu gerðar til dýravelferðar hér. „Allt þetta kostar krónur og aura,“ segir hann og því sé erfitt að keppa án verndar.

Takmarkaður ávinningur fyrir neytendur

Ingvi vísar til reynslu frá Finnlandi þar sem verð til neytenda lækkaði eftir inngöngu í ESB. Verð til bænda lækkaði hins vegar miklu meira.

„Verð til neytenda lækkaði um 11 prósent fyrsta árið á meðan það lækkaði yfir 40 prósent til bænda,“ segir hann. Hann óttast að sá ávinningur sem oft er nefndur í umræðunni skili sér ekki að fullu til neytenda.

Takmörkuð undanþágumöguleiki

Aðspurður um mögulegar undanþágur segir Ingvi að einhverjar reglur hafi verið settar fyrir svæði norðan ákveðinnar breiddargráðu en hann telur ekki raunhæft að Ísland fái varanlegar undanþágur sem skipti sköpum.

„Eins og ég skildi þetta á sínum tíma sá maður ekki mikið svigrúm þar,“ segir hann. Lítill ferskvörumarkaður Hann bendir á að þótt ferskvörumarkaður sé til staðar, þar sem íslensk framleiðsla gæti haft forskot, sé hann tiltölulega lítill.

„Svínakjötið fer rosalega mikið í vinnslu,“ segir Ingvi. 

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...