Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Berglind Sigurðardóttir.
Berglind Sigurðardóttir.
Fréttir 25. maí 2016

Hestamennska í höndum kvenna á Vopnafirði

Höfundur: Else Möller
Frá landnámstíð hefur hesturinn skipt miklu máli á Íslandi sem samgöngutæki og vinnudýr. Hesturinn og hestamennska var þá aðallega í höndum karlmanna þótt konur færu á bak þegar þær þurftu að fara milli bæja, til kirkju eða á milli landshluta. Margt hefur breyst á Íslandi síðan þá, ekki síst hestamennskan. 
Íslenski hesturinn er ekki lengur notaður sem vinnudýr og sjaldan til að fara á milli bæja eða landshluta nema um skipulagðar hestaferðir sé að ræða. 
 
Á Vopnafirði hefur hestamennska aukist undanfarin ár síðan hestamannafélagið Glófaxi var endurlífgað fyrir rúmum 15 árum. Eftir að Berglind Sigurðardóttir flutti í Refstað frá Ólafsfirði fyrir nokkrum árum, hefur heldur betur færst líf í félagsstarfið hjá Glófaxa.  Reiðnámskeið fyrir börn og fullorðna eru haldin árlega á félagssvæðinu á Skálanesi rétt innan við þorpið. Á Refstað var gömlu refahúsi breytt í glæsilegt hesthús og komið upp kaffistofu og snyrtingu.  Hross eru tekin á hús rétt eftir áramótin og konur á staðnum, úr þorpinu og erlendis frá byrja að temja, þjálfa og ríða út. Farið er í kvennareið nokkrum sinnum á ári og  karlareið einu sinni til tvisvar.  Jónsmessureið og bæjareið eru fastir viðburðir en í bæjareið er riðið á milli bæja í sveitinni og jafnvel í önnur byggðarlög. Þessi reið er gjarna farin seinni part sumars og fá hrossin þar góða þjálfun fyrir göngur haustsins.
 
 Síðustu ár hefur „kvennareið“ orðið sífellt vinsælli hjá konum á staðnum, en hún er eitt af því fjölmörgu sem Berglind hefur innleitt í félaginu.
 
Föstudaginn 29. apríl var svo farið í fyrstu kvennareið ársins. Þrátt fyrir snjó og kulda voru 12 konur mættar og lagt var af stað í vel skipulagðan reiðtúr í kringum Refstað með bjórstoppi á leiðinni. Á meðan var formaður Glófaxa, Halldór Jónasson, ásamt grillmeistara frá Sláturhúsi Vopnfirðinga, Sören Jeppesen, að sjá um að kvöldverðurinn væri tilbúinn þegar hópurinn kæmi til baka. Hesthúsið og hnakkageymslan breyttist í veislustofu, nokkrar konur úr þorpinu og nágrannar bættust við og stemningin var þveröfug við veðurfarið úti – hlý og skemmtileg. 
 
Hópurinn hjá Glófaxa á Vopnafirði í kvennareið 29. apríl. 
 
Karlar eru að sjálfsögðu líka velkomnir í „kvennareið“ segir Berglind, þeir verða bara að virða að þetta er fyrir konur og koma þannig búnir, til  dæmis með varalit, í pilsi og með sítt hár. Hingað til hefur enginn af körlunum sem stunda hestamennsku á Vopnafirði haft tíma eða kjark til að taka þátt  en það kemur kannski með hækkandi sól. 
Sama sláturhús sektað þrisvar
Fréttir 17. maí 2024

Sama sláturhús sektað þrisvar

Matvælastofnun (MAST) hefur þrisvar sinnum á þessu ári lagt stjórnvaldssekt á sv...

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna
Fréttir 17. maí 2024

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna

Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga af rekstri félagsins á árinu 2023 reyndist rúml...

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...