Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Uppskeruhorfur eru ekki vænlegar fyrir kartöflur á Suðurlandi og í Eyjafirði.
Uppskeruhorfur eru ekki vænlegar fyrir kartöflur á Suðurlandi og í Eyjafirði.
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppskera verði tæpast í meðallagi góð.

Helgi Jóhannesson.

Helgi Jóhannesson, garðyrkjuráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, segir um uppskeruhorfurnar fyrir kartöflur að einungis sé von á góðri uppskeru úr Hornafirðinum. Í Eyjafirði og á Suðurlandi, þar með talið Þykkvabæ þar sem umfang ræktunar er mest á Íslandi, séu horfur ekki góðar.

Óhagstætt tíðarfar í Þykkvabænum

„Kartöflur úr Hornafirði komu fyrstar á markað. Þurrkur í júlí dró úr vexti þar, en samt er útlit fyrir góða uppskeru – þeir hafa sloppið við næturfrost hingað til,“ segir Helgi.

„Í Eyjafirði er uppskera í seinna lagi, heildaruppskera verður líklega í slöku meðallagi þar. Í Þykkvabæ og almennt á Suðurlandi má segja að niðursetning hafi verið í seinna lagi vegna frosts í jörðu. Þá var júlí vætusamur á þessum svæðum. Næturfrost um síðustu helgi stöðvaði síðan vöxt sem þýðir að seinvaxnari tegundir skila smáum kartöflum og lélegri uppskeru. Eitthvað er þetta þó misjafnt milli bænda og svæða,“ segir Helgi enn fremur. 

Hvað varðar annað útiræktað grænmeti er uppskera í seinna lagi almennt en þó á allt að vera komið á markað núna. Svipað er í öllum landshlutum. Heildaruppskera er almennt í slöku meðallagi en ræðst þó tölvert af veðrinu næstu tvær til þrjár vikur.

Góð uppskera á síðasta ári

Langmest er ræktað af kartöflum í útiræktun grænmetis á Íslandi. Ekki liggja fyrir uppskerutölur fyrir yfirstandandi ræktunartímabil, eða gögn um umfang ræktunar, en á síðasta ári voru 415 hektarar undir kartöfluræktun en næstmest var ræktað af gulrótum þar sem 52 hektarar voru undir.

Rúmlega 7.800 tonn af kartöflum voru þá tekin upp en rúmlega 1.100 tonn af gulrótum. Þá var uppskeran með allra besta móti á heildina litið og sérstaklega komu gulræturnar vel út.

Skylt efni: grænmeti | grænmetisrækt

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...