Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Hann setur ekki grillið inn
Matarkrókurinn 7. ágúst 2026

Hann setur ekki grillið inn

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Við neitum að víkja frá grillinu hvað sem lægðum og hæðum veðurfarsins líður. Fyrirsögnin er tekin að láni úr texta meistarans Prins Póló og Hjálma við lagið stórgóða „Grillið inn“ sem er auðvitað tilvalið að hlusta á yfir glóðarsteikingunni, enda var skáldinu grillið ofarlega í huga og tengdi alltaf þráðbeint í þjóðarsálina með þetta sem önnur yrkisefni.

Lamb er í efstu hillu þess sem við getum yljað á grillgrindinni í okkar íslensku sól eða rigningu, enda víðast uppáhalds hér á skerinu af ofureðlilegum ástæðum.

Kótelettur eru í uppskriftinni en þið vitið auðvitað að hér er lítið mál að skipta þeim út fyrir aðra og minna þekkta bita af lambakjöti. Eins og t.d. framhryggjarsneiðar sem eru bragðmiklar og innihalda töluverða fitu sem skilar sér í safaríkri steik.

Vegna fitunnar í lambakjöti er mjög mikilvægt að passa grillið og fylgjast með til að kjötið brenni ekki. En nóg er nú komið af bullinu, hellum okkur í sjálfa uppskriftina. Sósuóður landinn þarf ekkert að óttast þó engin sé rjóma eða smjörsósan, í bygginu eru bæði smjör og rjómi sem koma í stað sósunnar í þessu tilfelli.

Auk þess sem við notum ögn af edikssósu, svokallaðri „vinaigrette“ sem er líka fínasta tilbreyting.

Grillaðar kótelettur og spergilkál

1 kg lambakótelettur

¼ tsk. chiliduft

½ tsk. broddkúmenduft

½ tsk. hvítlauksduft

1 dl matarolía

1 spergilkál

Blandið kryddinu saman með ögn af olíu og penslið á kóteletturnar, látið standa á meðan þið undirbúið allt annað en það sem gerist á grillinu.

Skerið spergilkálið í nokkra stóra bita, leyfið stilknum að halda sér að mestu. Hitið grillið og saltið kjötið fyrir eldun, grillið eftir smekk og piprið eftir eldun.

Best er að pensla ögn af olíu á spergilkálið og salta fyrir eldun og sama gildir hér að elda eftir smekk, það getur verið þægilegt að ljúka elduninni á kálinu í ofninum eftir að það hefur fengið sinn tíma á grillinu.

Rjómasoðið bygg

150 g bygg frá Móðir Jörð

1 laukur

1 box sveppir

2 dl olía

2 msk. eplaedik

50 g smjör

handfylli Feykir

1 dl rjómi

Skolið byggið og setjið í pott ásamt 3 dl af vatni, saltið og sjóðið þar til er orðið mjúkt, tekur um 30-40 mín. Saxið sveppi og steikið í olíunni þar til brúnast, saxið lauk og bætið í pottinn og svitið. Bætið ediki við og svo byggi og ögn af vatni. Hitið að suðu og bætið þá við rjóma og rífið ostinnn fínt yfir, takið af hitanum, hrærið smjöri við og smakkið til með salti og e.t.v. meira eplaediki.

Edikssósa

2 dl góð ólífuolía

1dl balsamic edik

Salt

Pískið saman og smakkið til með salti.

Auka meðlæti á grillið

Oft er fólk fast í sama farinu hvað meðlæti á grillið varðar og eru kannski að rembast eins og blessuð rjúpan við staurinn með hráar risastórar bökunarkartöflur á pínulitlu grilli sem eðlisfræðin afgreiðir fljótt sem alls ómögulegt. Nema fólk hafi ótakmarkaða þolinmæði eða kunni vel við að borða hráar kartöflur? Kannski mætti prófa eitthvað af þessu í staðinn:

  • Rótargrænmeti skorið í stóra munnbita, kryddað með hvítlauk og blóðbergi og eldað í bakka á grillinu.
  • Sætar kartöflur í um ½ cm sneiðum, penslaðar með olíu og grillaðar
  • Portobellosveppi, takið stilkinn úr og penslið með hvítlauksolíu og grillið þar til eru eldaðir í gegn.
  • Nýtt hvítkál er tilvalið á grillið. Skerið í báta þannig að rótin haldi sér. Penslið með olíu, saltið og grillið á öllum hliðum þannig að brúnist, færið á lægri hita og klárið eldunina þar. Kreistið sítrónusafa yfir áður en kálið er borið fram.
  • Nýtt smælki, eldað í bakka á grillinu.
  • Rauðlaukur, eldið laukinn heilan í hýðinu á grillinu þar til er mjúkur. Skrælið áður en þið berið fram.

Skylt efni: lambakjöt | matarkrókur

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...