Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Grípum tækifærin í íslenskum landbúnaði
Skoðun 12. júní 2026

Grípum tækifærin í íslenskum landbúnaði

Höfundur: Hanna Katrín Friðriksson
Hanna Katrín Friðriksson. Mynd / ál

Það var ánægjulegt að undirrita í liðinni viku samkomulag um að framlengja gildandi búvörusamninga til eins árs og renna þeir því út í lok árs 2027. Fyrirkomulagið er að mestu óbreytt fyrir utan að fallið er frá því að draga árleg framlög saman um 1% á árinu 2027. Með því skapast svigrúm upp á tæpar 200 milljónir króna. Það verður nýtt til þess að auka framlög til nýliðunarstuðnings í landbúnaði og til fjárfestingastuðnings í nautgripa- og sauðfjárrækt.

Tilgangur framlengingarinnar er að skapa rými til viðræðna um það fyrirkomulag starfsskilyrða landbúnaðarins sem tekur við í ársbyrjun 2028. Undirbúningur þeirra viðræðna hefur staðið um nokkurt skeið. Stjórnvöld munu einkum taka mið af þeim áherslum sem finna má í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, landbúnaðarstefnu til ársins 2040 og reynslu núverandi kerfis.

Nýliðun, kynslóðaskipti og fæðuöryggi samofið

Ég hef áður sagt hér á síðum Bændablaðsins að í mínum huga er eitt mikilvægasta viðfangsefnið í viðræðunum hvað er hægt að gera til þess að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti í íslenskum landbúnaði. Í síðustu búvörusamningum var í fyrsta sinn samið um nýliðunarstuðning og sérstakir fjármunir eyrnamerktir til að auðvelda kynslóðaskipti, en ég heyri það á bændum að þær aðgerðir hafa ekki skilað nægilegum árangri. Því er nauðsynlegt að skoða af fullri alvöru hvort og hvernig hægt sé að gera hlutina öðruvísi.

Ástæðan er sú að það er algjört lykilatriði fyrir samfélagið okkar að ungt fólk sjái framtíð og tækifæri í því að starfa við búskap. Nýliðun og kynslóðaskipti eru að mínu mati samofin allri umræðu um hvernig við tryggjum fæðuöryggi þjóðarinnar til framtíðar.

Tækifæri sem okkur ber að nýta

Hvað varðar þennan mikilvæga þátt þá sé ég einnig tækifæri til þess að liðka fyrir nýliðun og kynslóðaskiptum í tengslum við endurskoðun á jarðalögum. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að jarðalögum verði breytt til að vinna gegn samþjöppun og til að stuðla að nýtingu á ræktarlandi til búsetu. Ég mun leggja slíkt frumvarp fram á næsta þingvetri. Skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi sem þau Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir unnu fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) skv. samstarfssamning við atvinnuvegaráðuneytið er mikilvægt plagg inn í vinnu við frumvarpið. Niðurstöður varpa ljósi á vannýtt tækifæri þegar kemur að nýtingu ræktunarlands hérlendis. Þannig sýnir ný flokkun landbúnaðarlands að um 486 þúsund hektarar á Íslandi teljast gott eða mjög gott ræktunarland, en aðeins ríflega 90 þúsund hektarar eru nýttir til ræktunar í dag.

Í þessu samhengi bendir skýrslan á þörfina fyrir betri yfirsýn. Við þurfum að vita hver á landið og við þurfum að vita hvernig landið er nýtt, því landnýting snýst í dag um margt fleira en landbúnað, eins og bændur þekkja vel. Engu að síður er það staðreynd að mikið af góðu ræktarlandi er í lítilli nýtingu, og Ísland er í raun eitt fárra landa í heiminum þar sem mikið af góðu ræktarlandi er ekki nýtt nægjanlega vel. Í því felast tækifæri sem okkur ber að nýta betur.

Ljóst er að spennandi tímar eru fram undan í landbúnaði á Íslandi, tækifærin eru fjölmörg og við skulum grípa þau saman.

Höfundur er atvinnuvegaráðherra

Skylt efni: búvörusamningar

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...