Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Hey – Ferðaþjónustu bænda.
Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Hey – Ferðaþjónustu bænda.
Fréttaskýring 31. júlí 2019

Mikið áfall fyrir alla

Höfundur: Vilmundur Hansen

Berglind Viktorsdóttir, gæða­stjóri hjá Hey – Ferða­þjónustu bænda, segir að Efstidalur II sé innan Hey Iceland fjölskyldunnar, sem saman­stendur af félögum á um 170 stöðum um land allt.

„Síðustu daga og vikur hefur hugur hópsins verið bæði hjá fjölskyldum þeirra barna sem urðu fyrir sýkingu og hjá stórfjöl­skyldunni í Efstadal II.“

Býlið hefur sannarlega verið undir smá­sjánni undanfarið enda á þessi faraldur sér ekki fordæmi hér á landi. Allt frá upphafi ferðaþjónustunnar á bænum, sem má rekja til ársins 2002, hefur fjölskyldan lagt áherslu á að tengja saman ferðaþjónustu og landbúnað og það varð til þess að Efstidalur II komst á kortið sem eftirsóknarverður staður til að heimsækja. Það er því erfitt að setja sig í spor fjölskyldunnar núna en ljóst er að áfallið er mikið, bæði fyrir þau persónulega og fyrir rekstur staðarins.

Það liggur ljóst fyrir að E-coli bakterían finnst víða í umhverfinu og því er mikilvægt að koma í veg fyrir að sambærileg tilfelli gerist aftur hér á landi. Öll getum við dregið okkar lærdóm af þessu og saman leggjum við okkar af mörkum til að tryggja að þetta gerist ekki aftur. Til dæmis þurfa eftirlitsaðilar að fylgja skýrum og samræmdum reglum og hafa virkt eftirlit, staðarhaldarar þurfa að brýna mikilvægi handþvotta og tryggja viðeigandi aðstöðu til þess. Þá er það ábyrgð okkar allra að passa upp á hreinlæti og handþvott með sápu og vatni auk spritts. Þá væri vert að koma upp skýrum samræmdum leiðbeiningum til gesta varðandi umgengni við dýrin.

Við viljum ekki glata þeim mögu­leika sem felst í því að heimsækja dýrin í sveitinni og bragða á matvælum beint frá býli. Þetta er jarðtengingin okkar við náttúru landsins og lífið í sveitinni og með því að læra af reynslunni, bregðast við og halda áfram veginn tryggjum við öruggara umhverfi fyrir okkur öll.“

Neikvæð áhrif sauðfjárbeitar mögulega ofmetin
Fréttaskýring 11. júní 2026

Neikvæð áhrif sauðfjárbeitar mögulega ofmetin

Landnám plantna hefur aukist samkvæmt rannsóknum sem unnar hafa verið á gróðurþe...

Ómögulegt að koma algjörlega í veg fyrir strok
Fréttaskýring 2. júní 2026

Ómögulegt að koma algjörlega í veg fyrir strok

Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri hjá fiskeldisdeild Matvælastofnunar (MAST)...

Erfið samkeppnisstaða  íslenskra kartöflubænda
Fréttaskýring 1. júní 2026

Erfið samkeppnisstaða íslenskra kartöflubænda

Mikið magn óseldra íslenskra kartaflna liggur undir skemmdum í geymslum kartöflu...

Leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum umdeilt
Fréttaskýring 27. maí 2026

Leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum umdeilt

Matvælastofnun (MAST) hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skil...

Alvarleg staða í túngrasatilraunum
Fréttaskýring 27. maí 2026

Alvarleg staða í túngrasatilraunum

Undanfarin ár hafa talsverð umsvif verið í kornræktartilraunum í gegnum verkefni...

Heildstætt söfnunarkerfi fyrir dýraleifar
Fréttaskýring 15. maí 2026

Heildstætt söfnunarkerfi fyrir dýraleifar

Stjórnvöld ætla að setja upp heildstætt söfnunarkerfi fyrir dýraleifar sem mun n...

Varað við innflutningi á vinnuvélum án CE-merkinga
Fréttaskýring 14. maí 2026

Varað við innflutningi á vinnuvélum án CE-merkinga

Að undanförnu hefur Vinnueftirlitið varað sérstaklega við innflutningi á vinnuvé...

Skýrslubeiðni um jarðir í eigu ríkisins í ábúð
Fréttaskýring 5. maí 2026

Skýrslubeiðni um jarðir í eigu ríkisins í ábúð

Á Alþingi hefur verið lögð fram skýrslubeiðni frá frá fjármála- og efnahagsráðhe...