Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Fyrsta skóflustungan var tekin í tilefni af 500. fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar nú nýverið. Fundurinn var haldinn úti undir beru lofti að viðstöddum fulltrúum Vegagerðarinnar, hjólreiðamönnum og öðrum gestum.
Fyrsta skóflustungan var tekin í tilefni af 500. fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar nú nýverið. Fundurinn var haldinn úti undir beru lofti að viðstöddum fulltrúum Vegagerðarinnar, hjólreiðamönnum og öðrum gestum.
Fréttir 17. október 2017

Framlag til útivistar og mikið öryggisatriði

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Framkvæmdir eru hafnar við nýjan göngu- og hjólreiðastíg sem tengir Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit og Akureyri. Fyrsta skóflustungan var tekin í tilefni af 500. fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar nú nýverið. Fundurinn var haldinn úti undir beru lofti að viðstöddum fulltrúum Vegagerðarinnar, hjólreiðamönnum og öðrum gestum. Jón Gunnarsson samgönguráðherra tók fyrstu skóflustunguna.
Stígurinn, ásamt ljósleiðara­tengingu allra heimila í sveitarfélaginu, er eitt stærsta framkvæmdaverkefni Eyjafjarðarsveitar á kjörtímabilinu en sveitarfélagið stendur að framkvæmdinni við stíginn ásamt Vegagerðinni.
 
Fullbúinn stígur í sumarbyrjun 2018
 
Stígurinn er um 7,5 kílómetra langur og liggur meðfram Eyjafjarðarbraut vestari frá Hrafnagilshverfi að bæjarmörkum Akureyrar. Stígurinn verður 4,5 metra breiður og þar af verða 2,5 metrar klæddir slitlagi. Verkið verður unnið í tveimur áföngum, þ.e. undirbygging og fleiri verkþættir í fyrri áfanga sem áætlað er að verði lokið fyrir jól. Sá verkhluti var boðinn út fyrr í sumar og átti Finnur ehf. lægsta tilboð, 81,5 milljónir króna. Síðari áfangi verksins er slitlagslögnin og verður hún boðin út síðla næsta vetrar. Gert er ráð fyrir að stígurinn verði fullbúinn í sumarbyrjun 2018.
 
Öryggisatriði og framlag til bættrar lýðheilsu
 
Jón Stefánsson, oddviti sveitar­stjórnar, sagði framkvæmdina í senn framlag til útivistar almennings og mikið öryggisatriði. Umferð gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda á veginum milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar sé mikil og nauðsynlegt að aðskilja hana með þessum hætti. Fram kom í máli hans að framan af undirbúningi var Akureyrarbær einnig þátttakandi í verkefninu en tók ákvörðun á síðari stigum um að draga sig út úr því. Jón þakkaði sérstaklega landeigendum á vegstæðinu, en gott samstarf við þá og velvilji hefur reynst mikilvægur fyrir framvindu verkefnisins.
 
Hreinn Haraldsson vegamála­stjóri sagði í ávarpi við þetta tækifæri að rekja megi aðdraganda þessarar framkvæmdar til þeirrar lagabreytingar sem gerð var fyrir 10 árum þegar Vegagerðinni var heimilað að taka þátt í gerð göngu- og hjólastíga í samráði við sveitarfélögin. „Fram að því höfðu slík verkefni verið alfarið á borði sveitarfélaganna en það var ekki síst með tilliti til umferðaröryggisins og aukinnar áherslu á þann þátt sem við unnum að því að fá þetta inn í lög,“ sagði Hreinn en fram til þessa hafa flest slík verkefni verið á suðvesturhorni landsins. Fyrstu tvö stígaverkefnin utan höfuðborgarsvæðisins líta dagsins ljós í ár og er stígurinn í Eyjafjarðarsveit það stærsta.
 
Verkefnið til fyrirmyndar
 
Jón Gunnarsson samgöngu­ráðherra sagði til fyrirmyndar hversu ötullega sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hafi unnið að framgangi verkefnisins. „Sú leið sem við erum að fara, sem er ekki alveg óþekkt, þ.e. að til verður samstarfsverkefni þar sem allir leggjast á eitt um að bæta lífsgæði fólks, er til fyrirmyndar og eitthvað sem við viljum sjá gerast í ríkara mæli. Svona verkefni er, þegar upp er staðið, mikilvægt til að ýta undir bylgju breytts lífsstíls og alls þess jákvæða sem fylgir því að greiða fyrir almenningssamgöngum og að hjólið og gangan verði raunhæfur samgöngumáti. Það skilar sér að lokum til okkar í bættri lýðheilsu. Þannig verður samfélagslegur ávinningur að svona framkvæmdum umfram það sem við höfum almennt lagt mat á í samgöngumálum til þessa,“ sagði Jón Gunnarsson samgönguráðherra.    

Skylt efni: hjólastígur

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...