Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Fé á afrétti í Skaftárhreppi.
Fé á afrétti í Skaftárhreppi.
Mynd / HKr.
Á faglegum nótum 19. apríl 2017

Núverandi staða varnarhólfa

Höfundur: Sigrún Bjarnadóttir, dýralæknir sauðfjár- og nautgripasjúkdóma
Eins og flestir búfjáreigendur vita er landinu skipt upp í 26 varnarsvæði með svokölluðum varnarlínum sem ýmist eru girðingar eða náttúrulegar hindranir. Til að auðvelda eftirlit eru mismunandi litir hafðir á eyrnamerkjum í sauðfé eftir því hvaða varnarhólfi það tilheyrir.
 
Samkvæmt núgildandi reglugerðum og lögum er ekki heimilt að flytja lifandi jórturdýr milli varnahólfa, þ.e.a.s. yfir varnarlínur nema sótt sé um leyfi hjá Matvælastofnun. Varnarlínurnar gegna mikilvægu hlutverki í aðgerðum sem lúta að upprætingu sjúkdóma á borð við riðuveiki og garnaveiki. Sömuleiðis geta varnarlínurnar haft mikla þýðingu við að stemma stigu við útbreiðslu nýrra smitsjúkdóma.
 
Sjúkdómastaða sauðfjár með tilliti til riðu og garnaveiki er misjöfn á milli varnarsvæðanna og jafnvel innan sama svæðis og gilda því mismunandi reglur um flutninga á lifandi jórturdýrum frá og innan þessara svæða. 
 
Ef riðuveiki greinist á bæ er varnarsvæðið talið sýkt í 20 ár frá næstu áramótum þess árs sem síðasta tilfelli er staðfest. Ósýkt varnarsvæði eru svæði þar sem riða hefur ekki greinst síðastliðin 20 ár. 
 
Á fjórum varnarsvæðum á landinu hefur aldrei greinst riða og eru þetta einu svæðin sem flytja má líflömb frá, yfir varnarlínur, með leyfi frá Matvælastofnun. Hvorki er leyfilegt að flytja líffé inn í þessi líflambasöluhólf né á milli þeirra til að verja þau eftir fremsta megni gegn smitsjúkdómum.
 
Á ósýktum svæðum eru engar takmarkanir settar á flutninga með lifandi fé milli hjarða innan svæðanna. Ekki má hinsvegar flytja fé yfir varnarlínur. Til að kaupa líflömb inn á ósýkt varnarsvæði þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar, sbr. reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða, með síðari breytingum.
 
Á sýktum svæðum eru allir flutningar á fé milli hjarða innan svæðanna og frá þeim (yfir varnarlínur) bannaðir, sbr. reglugerð nr. 651/2001. Til að kaupa líflömb inn á sýkt varnarsvæði þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar.
 
Sé fé flutt án leyfis yfir varnarlínur eða innan sýktra svæða er fénu lógað og getur brotið varðað sekt og jafnvel brottfellingu úr gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu. Línubrjótum er lógað skv. ákvæðum reglugerðar.
Ef garnaveiki eða riða greinist taka í gildi ákveðnar takmarkanir varðandi flutning á gripum, búfjáráburði og heyi, heykögglum, hálmi, túnþökum, gróðurmold, ull, tækjabúnaði og jarð- og heyvinnslutækjum.
 
Ef garnaveiki greinist
er óheimilt að: 
  • Láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi frá bænum í tíu ár frá síðustu greiningu eða vanrækslu á bólusetningu. Bæir sem taka við jórturdýrum frá garnaveikibæjum í andstöðu við þetta ákvæði teljast garnaveikibæir jafn lengi og sá bær sem gripirnir eru frá. 
  • Flytja af garnaveikibæjum búfjáráburð og hey, heyköggla, hálm, túnþökur og gróðurmold af landi sem húsdýraáburður hefur verið borinn á eða jórturdýr gengið á. 
  • Flytja ull frá garnaveikibæjum óunna á aðra bæi.
  • Flytja af garnaveikibæjum tæki sem hafa verið notuð til moksturs, flutnings, dreifingar eða niðurplægingar á húsdýraáburði á garnaveikibæjum nema fullnægjandi sótthreinsun hafi farið fram.
  • Flytja af garnaveikibæjum jarð- og heyvinnslutæki nema fullnægjandi þrif hafi farið fram.
 
Ef riða greinist er óheimilt að:
  • Flytja milli bæja innan sýktra svæða og áhættusvæða hvaðeina, sem getur borið smitefni milli staða, svo sem hey, heyköggla og hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold nema með leyfi héraðsdýralæknis og að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
  • a. hey sé allt í plöstuðum stór-
  • böggum eða rúllu, 
  • b. þökur séu aðeins notaðar á
  • svæðum þar sem sauðfé kemst ekki að. 
  • Flytja ull á milli bæja nema með leyfi héraðsdýralæknis.
  • Flytja fjárklippur, markatengur, lyfjadælur og annan tækjabúnað, sem óhreinkast hefur af fé eða hugsanlega smitmengast á annan hátt á sýktu svæði, til nota í landbúnaði á ósýktu svæði, án vottorðs frá héraðsdýralækni um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað.
Athugið að aðilar sem fara milli sóttvarnarsvæða, sýktra svæða, áhættusvæða eða ósýktra svæða, með tækjabúnað til landbúnaðarstarfa skulu fá leyfi héraðsdýralæknis og vottorð um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað. Þessi tæki og önnur sem óhreinkast af sauðfé á sýktum svæðum skulu sótthreinsuð samkvæmt fyrirmælum héraðsdýralæknis að lokinni notkun á hverjum stað/jörð.
 
Lesa má nánar um þessar takmarkanir í reglugerðum um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar nr. 651/2001 og í reglugerð um garnaveiki og varnir gegn henni nr. 911/2011.
Hér verður farið yfir stöðu sérhvers hólfs miðað við stöðuna í dag.
 
1. Landnámshólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Breiðabólstað árið 2003. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2023 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 
 
Sýkt svæði: 
Sveitarfélögin Ölfus, Hveragerði og Árborg og Grafningur í Grímsnes- og Grafningshreppi.
 
2. Vesturlandshólf
Bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu.
 
3. Snæfellsneshólf
Bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. Líflambasöluhólf.
 
4. Dalahólf
Hætt að bólusetja við garnaveiki árið 2011. Hreint hólf með tilliti til riðu.
 
5. Vestfjarðarhólf eystra
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. Líflambasöluhólf.
 
6. Vestfjarðarhólf vestra
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu.
 
7. Miðfjarðarhólf
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu.
 
8. Vatnsneshólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Neðra-Vatnshorni árið 2015. Riðusýkt til 31. desember, 2035 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
9. Húnahólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Kambhóli árið 2007. Riðusýkt til 31. desember, 2027 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
10. Skagahólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Stóra-Gröf ytri árið 2016. Riðusýkt til 31. desember, 2036 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
11. Tröllaskagahólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli í Dæli árið 2009. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2029 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 
 
Sýkt svæði:
Dalvíkurbyggð norðan Hámundarstaða.
 
12. Grímsey
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu.
 
13. Eyjafjarðarhólf
Bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu.
 
14. Skjálfandahólf
Bólusett við garnaveiki í Skútu­staðahreppi. Síðasta riðutilfelli á Lóni árið 1999. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2019 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 
 
Ósýkt svæði: 
Skútustaðahreppur, Engidalur og Lundarbrekka og bæir þar fyrir sunnan.
 
Sýkt svæði: 
Önnur svæði í hólfinu.
 
15. Norðausturhólf
Bólusett við garnaveiki í Jökuldal og Jökulsárhlíð austan (sunnan) Smjörfjallalínu. Síðasta riðutilfelli á Brú árið 1997. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2017 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. Líflambasölusvæði í N-Þingeyjarsýsluhluta hólfsins. 
 
Sýkt svæði:
Jökuldalur og Jökulsárhlíð austan (sunnan) Smjörfjallalínu. 
 
16. Héraðshólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli í Heiðarseli árið 1997. Riðusýkt til 31. desember, 2017 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
17. Austfjarðarhólf
Ekki bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli Hátún/Ós árið 1997. Riðusýkt til 31. desember, 2017 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
18. Suðurfjarðarhólf
Bólusett við garnaveiki í Breið­dals­hreppi austan Breiðdals­ár. Síðasta riðutilfelli á Gilsárstekk árið 2005. Riðusýkt til 31. desember, 2025 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
19. Suðausturlandshólf
Bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu.
 
20. Öræfahólf
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. Líflambasöluhólf.
 
21. Eyjafjalla- og 
Vestur Skaftafellssýsluhólf
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu.
 
22. Rangárvallahólf
Bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu.
 
23. Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf
Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli Hurðabak árið 2010. Riðusýkt til 31. desember, 2030 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp.
 
24. Biskupstungnahólf
Ekki bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli í Gýgjar­hólskoti árið 2004. Riðusýkt til 31. desember, 2024 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 
 
25. Grímsnes- og Laugardalshólf
Bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu.
 
26. Vestmannaeyjar
Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu.
 
Ítarefni má lesa inni á www.althingi.is og www.reglugerd.is.
 
Lög nr. 25/1993 um dýrasjúk­dóma og varnir gegn þeim 
Reglugerð nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, með síðari breytingum 
Reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni, með síðari breytingum 
Reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða 
 
Sigrún Bjarnadóttir,
dýralæknir sauðfjár- 
og nautgripasjúkdóma

Skylt efni: varnarhólf | riða

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...