Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Angus-holdanaut frá NautÍs fædd 2021
Á faglegum nótum 29. júní 2022

Angus-holdanaut frá NautÍs fædd 2021

Höfundur: Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt

Hér er nú kynntur fjórði árgangur Angus-holdanauta frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti. Þessir gripir eru tilkomnir með sæðingu hreinræktaðra Angus-kúa með sæði úr Jens av Grani NO74061 og því um að ræða sérvalda úrvalsgripi. Ekki þarf að fjölyrða um þær miklu og ströngu kröfur sem gerðar eru á einangrunarstöðinni á Stóra- Ármóti hvað smitvarnir varðar. Þessir gripir hafa nú lokið einangrun og fengið grænt ljós hvað snertir sæðistöku og dreifingu þess. Auk þessa er hérna einnig kynntur Skugga-Sveinn -ET 1662741-1585 sem fæddur er á Tilraunabúinu á Stóra-Ármóti eftir uppsetningu fósturvísis þar. Hann var keyptur á Nautastöðina á Hesti þar sem hann neitaði því miður að stökkva á önnur naut.

Kynið hentar vel þar sem áhersla er lögð á nýtingu beitar og gróffóðurs ásamt góðum móðureiginleikum, mjólkurlagni og léttan burð. Það hentar því vel í t.d. blendingsrækt þar sem burðarerfiðleikar eru fremur fátíðir.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands (NautÍs) hefur frá upphafi lagt sérstaka áherslu á góða dætra eiginleika þeirra nauta sem notuð hafa verið þar til uppbyggingar á Angusholdagripastofni hérlendis. Má þar nefna létta burði og kjötgæði að ógleymdum mæðraeiginleikum.

Á árinu 2018 fæddust kálfar undan Li‘s Great Tigre NO74039 og First Boyd fra Li NO74033 og á árinu 2019 var um að ræða gripi undan Hovin Hauk NO74043 og Horgen Erie NO74029.

Á árinu 2020 var eingöngu um að ræða kálfa undan Emil av Lillebakken NO74028. Allt eru þetta naut sem gefa góðar mæður. Á árinu 2021 litu dagsins ljós kálfar undan Emil av Lillebakken sem og Jens av Grani NO74061.

Hins vegar brá svo við að undan Emil komu bara kvígur og allir nautkálfarnir því undan Jens. Jens av Grani, f. 21. janúar 2014, hjá Kirsti Mæland og Harald Dahl í Holter í Nannestad í Akershus sem útleggja mætti á íslensku sem að Jens væri frá Holtum í Nönnustað í Akurhúsum.

Faðir Jens er HIOE8 Ayrvale Bartel E8 frá Ástralíu og móðirin Evy av Grani undan Hovin Velixir NO74011 sem var aftur undan Ankonian Elixir frá Bandaríkjunum.

Jens er gott alhliða kynbótanaut sem gefur léttan burð, bæði hjá kúm og kvígum, auk góðra kjötgæða- og mæðraeiginleika. Fæðingarþungi kálfa er undir meðallagi en vaxtarhraði góður.

Því eru fallþungatölur afkvæma Jens mjög góðar en holdflokkun um meðallag og gripirnir í feitari kantinum.

Að þessu sinni er kynning nautanna aðeins ítarlegri en áður en birtar eru tölur úr línulegu mati sem Kristian Heggelund, ræktunarráðgjafi hjá TYR í Noregi, framkvæmdi nú í lok maí sl.

Þegar þetta er skrifað er sæðistaka úr þessum nautum nýlega hafin og því liggur ekki fyrir hver árangur úr henni verður.

Vegna innbyrðis skyldleika þessara nauta var ákveðið að þeir muni ekki allir koma til sæðistöku.

Ekki verður tekið sæði úr Janusi 1662742-0033 þar sem hann hefur ekki til að bera jafnmikil lærahold og hin nautin þó þau séu með þeim hætti að hann sómir sér vel sem þarfanaut.

Skugga-Sveinn -ET (1662741-1585)
Skugga-Sveinn -ET (1662741-1585)

Fæddur 2. nóvember 2020 á Tilraunabúinu á Stóra-Ármóti.

Ætt:

F. Draumur -ET 18402
M. Birna-ET IS1662742-0007 Ff. First-Boyd fra Li NO74033 Mf. Li‘s Great Tigre NO74039 Fm. Lita av Høystad NO49747 Mm. Letti av Nordstu NO100514 Fff. US15347911 Boyd Next Day Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U Ffm. NO29125
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Horgen Erie NO74029
Mmf. Dunder av Bognes NO74025 Fmm. Høystad NO32325
Mmm. Janne av Nordstu NO39302

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með miklar og vel holdfylltar herðar. Hásinn er stuttur, sver og vöðvamikill. Bakið breitt og hold- gróið, malir langar og breiðar og holdfylltar. Lærvöðvinn er mikill, djúpur og vel kúptur. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Skugga-Sveinn er vel gerður, langvaxinn og gerðarlegur gripur.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 38 kg. Við vigtun 1. október 2021 vóg Skugga-Sveinn 446 kg og hafði því vaxið um 1.225 g/dag frá fæðingu. Skugga-Sveinn hefur alla tíð sýnt mikla og góða vaxtargetu.

Jeremías 21401 (1662742-0031)

Jeremías 21401 (1662742-0031)

Fæddur 24. febrúar 2021 á Nautgripa- ræktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.

Ætt:

F. Jens av Grani NO74061
M. Birna-ET IS1662742-0007
Ff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Mf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fm. Evy av Grani NO30798
Mm. Letti av Nordstu NO100514
Fff. AUVTMB219 Te Mania B.
Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U
Ffm. AUBVVB32 E Jedda B32
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Hovin Velixir NO74011
Mmf. Dunder av Bognes NO74025
Fmm. NO30796
Mmm. Janne av Nordstu NO39302

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með miklar og vel holdfylltar herðar. Hásinn er stuttur, sver og vöðvamikill. Bakið breitt og holdmikið, malir mjög langar, breiðar og holdfylltar. Holdfylling í lærum gríðarmikil og lærvöðvinn djúpur og vel kúptur. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Jeremías er ákaflega vel gerður, holdmikill og glæsilegur gripur.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 35 kg. Við vigtun 20. apríl 2022 vóg Jeremías 621 kg og hafði því vaxið um 1.395 g/dag frá fæðingu. Jeremías hefur alla tíð sýnt mjög mikla vaxtargetu.

Janus 1662742-0033
Janus 1662742-0033

Fæddur 5. mars 2021 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.

Ætt:
F. Jens av Grani NO74061
M. Steina-ET IS1662742-0003
Ff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Mf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fm. Evy av Grani NO30798
Mm. Letti av Nordstu NO100514
Fff. AUVTMB219 Te Mania B.
Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U
Ffm. AUBVVB32 E Jedda B32
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Hovin Velixir NO74011
Mmf. Dunder av Bognes NO74025
Fmm. NO30796
Mmm. Janne av Nordstu NO39302

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögugóður, hálsinn stuttur sver og vöðvaður. Holdfylling um herðar góð. Bakið er breitt og vel holdfyllt. Malirnar langar, breiðar og holdmiklar. Góður lærvöðvi. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Vel gerður gripur með mikla holdfyllingu.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 42 kg. Við vigtun 20. apríl 2022 vóg Janus 568 kg og hafði því vaxið um 1.280 g/dag frá fæðingu. Janus hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.

Jóakim 21403 (1662742-0034)
Jóakim 21403 (1662742-0034)

Fæddur 13. mars 2021 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.

Ætt:

F. Jens av Grani NO74061
M. Vísa-ET IS1662742-0006
Ff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Mf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fm. Evy av Grani NO30798
Mm. Lara av Høystad NO49943
Fff. AUVTMB219 Te Mania B.
Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U
Ffm. AUBVVB32 E Jedda B32
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Hovin Velixir NO74011
Mmf. Ivar fra Li NO74047
Fmm. NO30796
Mmm. Helle av Høystad NO34418

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og feikilega útlögumikill með stuttan, sveran og holdugan háls. Mikil holdfylling í breiðu bakinu. Malirnar eru breiðar og vel holdugar. Mikil og góð lærahold. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Breiðvaxinn, holdmikill og fallegur gripur.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 28 kg. Við vigtun 20. apríl 2022 vóg Jóakim 552 kg og hafði því vaxið um 1.300 g/dag frá fæðingu. Jóakim hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.

Janssen 21404 (1662742-0039)
Janssen 21404 (1662742-0039)

Fæddur 3. maí 2021 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.

Ætt:

F. Jens av Grani NO74061
M. Sveina-ET IS1662742-0004
Ff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Mf. Li‘s Great Tigre NO74039
Fm. Evy av Grani NO30798
Mm. Letti av Nordstu NO100514
Fff. AUVTMB219 Te Mania B.
Mff. CA1469322 HF El Tigre 28U
Ffm. AUBVVB32 E Jedda B32
Mfm. Else fra Li NO30822
Fmf. Hovin Velixir NO74011
Mmf. Dunder av Bognes NO74025
Fmm. NO30796
Mmm. Janne av Nordstu NO39302

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með stuttan, sveran og holdugan háls. Mikil holdfylling í breiðu bakinu. Malirnar eru ákaflega langar, breiðar og sérlega vel holdugar. Mikill og kúptur lærvöðvi. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Breiðvaxinn, holdmikill og fallegur gripur.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 30 kg. Við vigtun 20. apríl 2022 vóg Janssen 474 kg og hafði því vaxið um 1.261 g/dag frá fæðingu. Janssen hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu

Jenni 21405 (1662742-0040)
Jenni 21405 (1662742-0040)

Fæddur 16. júní 2021 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.

Ætt:

F. Jens av Grani NO74061
M. Vænting-ET IS1662742-0021
Ff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Mf. Horgen Erie NO74029
Fm. Evy av Grani NO30798
Mm. Maiken av Grani NO102576
Fff. AUVTMB219 Te Mania B.
Mff. Horgen Bror NO55754
Ffm. AUBVVB32 E Jedda B32
Mfm. Horgen Soria NO27377
Fmf. Hovin Velixir NO74011
Mmf. First-Boyd fra Li NO74033
Fmm. NO30796
Mmm. Kari av Grani NO100428

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og feikilega útlögumikill með stuttan, sveran og holdugan háls. Mikil holdfylling í breiðu bakinu. Malirnar eru langar, ákaflega breiðar og sérlega vel holdugar. Mikill, vel lagaður og kúptur lærvöðvi. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Breiðvaxinn, holdmikill og glæsilegur gripur.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 31 kg. Við vigtun 20. apríl 2022 vóg Jenni 399 kg og hafði því vaxið um 1.195 g/dag frá fæðingu. Jenni hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.

Jöfur 21406 (1662742-0045)
Jöfur 21406 (1662742-0045)

Fæddur 29. ágúst 2021 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.

Ætt:

F. Jens av Grani NO74061
M. Assa-ET IS1662742-0018
Ff. AUHIOE8 Ayrvale Bartel E8
Mf. Hovin Hauk NO74043
Fm. Evy av Grani NO30798
Mm. Mose av Grani NO102588
Fff. AUVTMB219 Te Mania B. Mff. AUTMB1 Te Mania Berkley B1 Ffm. AUBVVB32 E Jedda B32 Mfm. Hovin Victoria NO23868
Fmf. Hovin Velixir NO74011
Mmf. First-Boyd fra Li NO74033 Fmm. NO30796
Mmm. Kaja av Grani NO0794

Lýsing:

Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með stuttan, sveran og holdugan háls. Mikil holdfylling í breiðu bakinu. Malirnar eru langar, ákaflega breiðar og sérlega vel holdugar. Mikill og góður lærvöðvi. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Breiðvaxinn, holdmikill og falllegur gripur.

Umsögn:

Fæðingarþungi var 38 kg. Við vigtun 20. apríl 2022 vóg Jöfur 382 kg og hafði því vaxið um 1.464 g/dag frá fæðingu. Jöfur hefur ávallt sýnt mjög mikla og góða vaxtargetu.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...