Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Fjölbreyttir hópar velkomnir
Af vettvangi Bændasamtakana 21. apríl 2026

Fjölbreyttir hópar velkomnir

Höfundur: Stella Björk Helgadóttir

Bændasamtök Íslands hafa á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að opna dyr sínar fyrir fjölbreyttum hópum sem vilja fræðast um starfsemi samtakanna og íslenskan landbúnað.

Reglulega taka samtökin á móti bæði innlendum og erlendum gestum, sem eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á landbúnaði, matvælaframleiðslu og þróun greinarinnar.

Meðal þeirra hópa sem hafa heimsótt samtökin eru nemendur úr Listaháskóla og Landbúnaðarháskóla Íslands. Heimsóknir þessara skólahópa hafa reynst afar gagnlegar, enda gefst nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi samtakanna af fyrstu hendi, ræða við sérfræðinga og fá innsýn í áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði. Slík samskipti stuðla að auknum skilningi og skapa mikilvægan vettvang fyrir umræðu milli fræða og atvinnulífs.

Erlendir gestir eru einnig tíðir og koma víða að. Oft er um að ræða einstaklinga eða hópa sem starfa sjálfir við landbúnað eða tengdar greinar og vilja kynna sér íslenskar aðferðir, sjálfbærni og sérstöðu greinarinnar hér á landi. Þessar heimsóknir styrkja alþjóðleg tengsl og skapa tækifæri til þekkingarmiðlunar milli Íslands.

Bændasamtök Íslands líta á það sem mikilvægan hluta af hlutverki sínu að miðla þekkingu og efla samtal um landbúnað. Með því að taka á móti fjölbreyttum hópum stuðla samtökin að aukinni vitund um mikilvægi greinarinnar og efla tengsl við samfélagið í heild.

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...