Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Arnar Sigurmundsson, Helgi Ólafsson og Hallgrímur Steinsson.
Arnar Sigurmundsson, Helgi Ólafsson og Hallgrímur Steinsson.
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. Greinarhöfundur skellti sér til Vestmannaeyja ásamt fjölmörgum skákmönnum frá Reykjavík og nágrenni, á 100 ára afmælishátíð Taflfélags Vestmannaeyja. Þar voru tefld tvö mót, atskák á laugardegi og hraðskák á sunnudegi. Helgi vann bæði mótin, Áss vann atskákina og Ólafsson vann hraðskákina. Það var mikið fjör í Eyjum og í þriðja sinn sem greinarhöfundur mætir þangað á skákmót og fjórða Eyjaferðin. Þær eiga eftir að verða fleiri, en næst hugsa ég að ég gefi mér meiri tíma til að skoða mig um. Helgi Áss átti góðu gengi að fagna, en hann hafði nokkrum dögum áður orðið Íslandsmeistari í atskák í fyrsta sinn frá árinu 2002.

Árbæjarsafnsmótið hélt sínu striki þrátt fyrir að vera fámennara en oft áður, og spilar þar inn í óvenju mikil taflmennska þessa helgi. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson vann í Árbænum í sögulegu umhverfi. Fyrr sama sunnudag hélt Skákfélag Mosfellsbæjar skákmót í tilefni af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Þar varð Eiríkur K. Björnsson hlutskarpastur. Skákfélag Mosfellsbæjar heldur skákmót mánaðarlega frá september og fram í maí, og skákæfingar fyrir börn eru einnig hafnar, skráning í gegnum Abler. Það var fræðilega hægt að taka þátt í báðum mótum, Mosfellsbæ og Árbæjarsafni, og nokkrir skákmenn nýttu sér það og tefldu fjórtán hraðskákir í beit! Skákfélag Akureyrar hóf líka sitt vetrarstarf með Startmótinu sínu sem ber nafn með rentu. Markús Orri Óskarsson vann það. Hann verður einn fulltrúa Íslands á Evrópumóti ungmenna í skák, sem verður á Krít í nóvember.

Í gamla daga var það þannig að vetrarstarfið í Reykjavík hófst með Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur. Mótið hefur séð fífil sinn fegurri þegar kemur að þátttöku titilhafa en þess í stað gefst nokkrum ungum skákmönnum færi á að tefla í lokuðum flokki. Hugsanlega þarf að fækka umferðum, stytta tímann sem mótið tekur, og leggja enn meiri áherslu á lokaða flokka að dönskum sið, til að efla mótið. En Haustmótið stendur fyrir sínu og hefur verið haldið frá 1934. Annað hvert ár rekst mótið á Ólympíuskákmótið sem getur haft einhver áhrif. Ísland er á leiðinni þangað seinna í mánuðinum með tvö lið, í opnum- og kvennaflokki. Fjallað verður um Ólympíuskákmótið í næsta pistli.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar
Fréttir 6. nóvember 2026

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar

Könnun á viðhorfi almennings til sauðfjárræktar stendur nú yfir. Hún er hluti af...

Verð heldur áfram að hækka
Fréttir 6. nóvember 2026

Verð heldur áfram að hækka

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 2. nóvember hélt jafnvægisverð áfram a...

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...