Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Ylræktin er ekki eina greinin þar sem mikilvægir fjárfestingarmöguleikar eru fyrir
hendi en hindranir fjármagnskostnaðar of háar.
Ylræktin er ekki eina greinin þar sem mikilvægir fjárfestingarmöguleikar eru fyrir hendi en hindranir fjármagnskostnaðar of háar.
Mynd / Sigurður Már Harðarson
Af vettvangi Bændasamtakana 9. mars 2026

Fjárfestum í landbúnaði

Höfundur: Axel Sæland
Axel Sæland

Miklar framfarir hafa orðið í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu í ylrækt. Séum við í stakk búin til að innleiða slíkar tækninýjungar opnast dyr okkar að fjölmörgum möguleikum til bættra gæða framleiðslu, aukinnar framleiðni, minni sóunar og samdráttar í losun og rekstrarkostnaði. Allt styrkir þetta samkeppnishæfni íslenskrar framleiðslu til framtíðar. Tækninýjungar sem þessar kalla ekki einungis á aukna fjármögnun til fjárfestinga í tækjabúnaði, heldur einnig í innviðum eða byggingum, þ.e. gróðurhúsum og vinnurýmum. Í dag keppum við á sama markaði og erlend framleiðsla. Aðstæður okkar eru þó aðrar en flestra okkar nágrannaríkja – varla samanburðarhæfar.

Á Íslandi eru einhver hæstu launakjör og hæstu vextir sem þekkjast í vestrænum heimi sem gerir allar fjárfestingar þeim mun þyngri og oft ómögulegar. Í slíku umhverfi skipta fjárfestingastyrkir sköpum. Á vormánuðum síðasta árs fékk ylræktin aðgang að fjárfestingastuðningi til orkusparandi aðgerða í gegnum Loftslags- og orkusjóð. Meðan ávinningur okkar bænda af LED væðingunni endurspeglast einna helst í bærilegum fjármagnsgjöldum og þar með möguleikanum á tækja- eða innviðafjárfestingum sem þessari, snerist verkefnið fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið annars vegar um raforkusparnað og hins vegar bætta nýtingu auðlinda. Fjöldi ylræktarbænda hafði horft til slíkra fjárfestinga svo árum skipti en ekki tekið af skarið sökum fyrrnefnds fjármagnskostnaðar.

Ylræktin er ekki eina greinin þar sem mikilvægir fjárfestingarmöguleikar eru fyrir hendi en hindranir fjármagnskostnaðar of háar. Fjárfestingaþörfin er víða, hvort heldur sem er í innviðum eða tæknivæðingu. Ávinningurinn er skýr. Aukin framleiðni og gæði skila sér einnig í takmarkaðri losun á hverja þá einingu sem við framleiðum. Fjárfestingar eru því lykilatriði í því að styrkja stoðir sjálfbærs búskapar hér á landi – hvort heldur sem er út frá loftslagsmálum, félagslegum forsendum eða efnahagslegri stöðu bænda.

Í dag skiptir höfuðmáli að byggingar (gróðurhús sem og vinnurými) séu rúmgóðar og háar til lofts því tækninni fleytir það hratt fram að garðyrkjubændur þurfa að hafa pláss og aðstöðu til að geta innleitt þá tækni sem er í sífellu handan við hornið. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta um að bæta gæði vörunnar, auka framleiðni og minnka losun,úrgang og rekstrarkostnað til þess að geta verið samkeppnishæfari á markaði.

Því er ljóst að markviss fjárfestingarstuðningur er ein af lykilforsendum þess að íslenskur landbúnaður geti þróast, vaxið og staðið sterkar í alþjóðlegri samkeppni. Framtíð landbúnaðar, óháð búgrein, ræðst af því hve vel okkur tekst að skapa skilyrði fyrir nýsköpun, sjálfbærni og stöðugan rekstur.

Höfundur er garðyrkjubóndi og stjórnarmaður í Bændasamtökum Íslands.

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...