Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Kristján Fr. Kristjánsson og sonur hans og aðstoðarmaður, Kristján Fannar Kristjánsson, á nýju 30 metra löngu göngubrúnni sem ætlað er að koma göngufólki á þurrum fótum inn í Þórsmörk.  Eins og sést er hún á hjólum og því auðvelt að færa hana úr stað og f
Kristján Fr. Kristjánsson og sonur hans og aðstoðarmaður, Kristján Fannar Kristjánsson, á nýju 30 metra löngu göngubrúnni sem ætlað er að koma göngufólki á þurrum fótum inn í Þórsmörk. Eins og sést er hún á hjólum og því auðvelt að færa hana úr stað og f
Mynd / Jakob Yngvason
Fréttir 30. september 2015

Færanleg göngubrú yfir Krossá fyrir Þórsmerkurfara

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Rangárþing eystra ákvað að láta lagfæra nokkrar eldri brýr í Þórsmörk og smíða þrjár nýjar færanlegar göngubrýr sem áttu að vera á hjólum. Nú er búið að smíða eina slíka hjólabrú sem væntanlega á eftir að nýtast gangandi ferðamönnum vel. 
 
Í aðdraganda að smíð nýrra göngubrúa var farið í vettvangskönnun síðla árs 2014 til að kanna aðstæður og meta ástand þeirra brúa sem lagfæra þyrfti. Þessi framkvæmd var hugsuð til  að bæta aðgengi fótgangandi ferðamanna um svæðið. Niðurstaðan var sú að í fyrstu atrennu yrði smíðuð 30 metra löng færanleg brú á hjólum. 
 
Hugmyndin var að uppistaðan í brúarsmíðinni yrði gamlar kranabómur eða álíka grindur. Var Vélsmiðjan Magni ehf. á Hvolsvelli fengin til verksins. Undirverktaki vélsmiðjunnar er K2 tækniþjónusta. Hefur eigandinn, Kristján Fr. Kristjánsson, annast útfærslu og stærstan hluta brúarsmíðinnar, en haft starfsmenn Vélsmiðjunnar Magna sér til aðstoðar. 
 
Kristján segir að stálgrindurnar sem fengust hafi ekki reynst haft nægan styrk einar og sér. Voru þær því styrktar með skúffubitum að neðanverðu og eins var smíðað handrið sem er hluti af burðarvirkinu. Jafnframt var brúin lítillega forspennt. Hjólabúnaður brúarinnar eru framöxlar úr Mercedes Benz vörubíl með beygjubúnaði sem hægt er að tengja við dráttarbeisli.
 
Kristján segir að smíðin hafi verið miðuð við að hafa þetta sem einfaldast en um leið að brúin yrði örugg fyrir þá sem sem nota hana. Hún er hönnuð til að þola þriggja tonna þunga. Tekur hann fram að brúin sé eingöngu hugsuð sem göngubrú fyrir fólk og alls ekki ætluð fyrir hross né annað búfé.
Brúin var flutt inn að Krossá í lok júlí í tveim hlutum sem dregnir voru með dráttarvél frá Hvolsvelli. Síðan var allt boltað saman á staðnum.
 
Helstu stærðir.
  • Breidd um  0,9 metrar.
  • Lengd: 30 metrar
  • Burður: 3 tonn.
  • Burðarefnið er stál, en brúargólf er úr timbri.
Fram undan er síðan smíði á tveim færanlegum göngubrúm til viðbótar og að lagfæra eldri göngubrýr á svæðinu sem hafa látið mjög á sjá. Greinilega veitir ekki af í ljósi aukins ferðamannastraums og því að ein göngubrú sem er við Langadal í Þórsmörk skemmdist í vatnavöxtum í Krossá á dögunum. 
 
 
Brúin er með samanbrjótanlegum stigum á báðum endum til að auðvelda flutning á henni með skömmum fyrirvara.
Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...