Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, undirrita samninginn. Markaðsstofan og Austurbrú fá 20 milljónir hvort félag til að vinna að markaðssetningu flugvallanna á Akureyri og Egilsstöðum. Samningurinn var undirritaður í flugturninum á Egilsstaðaflugvelli.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, undirrita samninginn. Markaðsstofan og Austurbrú fá 20 milljónir hvort félag til að vinna að markaðssetningu flugvallanna á Akureyri og Egilsstöðum. Samningurinn var undirritaður í flugturninum á Egilsstaðaflugvelli.
Mynd / Aðsend
Fréttir 23. mars 2022

Fá 40 milljónir til að markaðssetja flugvelli

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði samning við Markaðsstofu Norður­lands og Austurbrú um mark­aðs­setningu Norðurlands og Austurlands í tengslum við flug­vellina á Akureyri og Egils­stöðum og aukið millilanda­flug þar. Markaðsstofan fær 20 millj­ónir til að sinna þessu verk­efni á Norðurlandi á þessu ári og Austurbrú fær sömu upphæð fyrir Austurland.

Markaðsstofan hefur undanfarin ár haldið utan um flugklasaverkefnið Air 66N, sem hefur reynst mjög vel. Breska ferðaskrifstofan Super Break stóð fyrir beinum ferðum frá Bretlandi til Akureyrar tvö ár í röð og hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel var byrjuð á slíkum ferðum frá Amsterdam fyrir Covid heimsfaraldurinn og hefur haldið þeim áfram á þessu ári. Þá var nýlega tilkynnt um stofnun flugfélagsins Niceair á Akureyri, sem mun styðja enn frekar við markaðssetningu á Norðurlandi og Akureyrarflugvelli sem valmöguleika í millilandaflugi til og frá Íslandi.

Vilja auka dreifingu ferðamanna um landið

„Við viljum stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um land allt,“ segir Lilja Dögg ferðamálaráðherra í tilkynningu frá ráðuneytinu. Bein millilandaflug séu skilvirk tæki til þess. Norður- og Austurland hafi upp á margt að bjóða fyrir ferðalanga, gæði gisti- og veitingastaða séu mikil, innviðir hafi eflst verulega og afþreying aukist til muna.
„Við viljum skapa hagfelld skilyrði fyrir eflingu ferðaþjónustu um allt land og á sama tíma stuðla að fleiri möguleikum í samgöngum til útlanda fyrir íbúa svæðanna. Í því felast ákveðin lífsgæði,“ segir Lilja Dögg.

Fagnaðarefni að finna stuðninginn

„Það er mikið fagnaðarefni að ráðherra skuli styðja vel við bakið á okkur í markaðssetningu á Norður- og Austurlandi sem áfangastöðum fyrir beint flug. Nú stefnir í það að flugvöllurinn á Akureyri verði tilbúinn fyrir aukna umferð og þurfum við að geta fylgt því eftir af krafti. Ferðaþjónustan og sveitarfélögin fyrir norðan hafa lagt mikla vinnu í að ná árangri í þessu en það er nauðsynlegt að stjórnvöld standi með okkur af fullum þunga og sýni þannig viljann til að opna nýjar gáttir til landsins og ná árangri á alþjóðlegum markaði,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, fram­kvæmda­stjóri Markaðsstofu Norður­lands.

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...