Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Endalaus tækifæri í kornrækt
Fréttir 22. september 2022

Endalaus tækifæri í kornrækt

Höfundur: Vilmundur Hansen

Mikil bjartsýni ríkir um framtíð kornræktar hér á landi og segja þeir sem til þekkja ekkert því til fyrirstöðu að tvöfalda ræktunina á næstu árum, bæði til fóðurframleiðslu og manneldis. Auk þess sem hálmur er vannýttur.

„Uppskera á korni lítur mjög vel út,“ segir Björgvin Þór Harðarson, iðntæknifræðingur og bóndi, sem ræktar tveggja- og sexraða bygg, hveiti og nepju við Gunnarsholt á Rangárvöllum. „Ég er með bygg á um 80 hekturum og hveiti og nepju á um 40 hekturum hvora tegund.“

Á von á góðri uppskeru

„Uppskeran var sein til í ár og ekki alveg tilbúin og stafar það líklega af köldum júlí. Vorið var gott og spírun og vorvöxtur góður og öxin fín og þéttleiki þeirra ágætur.

Ég geri ráð fyrir að byrja að þreskja í síðustu vikunni í september ef veður leyfir og ég á von á að fá milli 800 og 900 tonna uppskeru sem er mjög gott.“

Björgvin segir að til að ná árangri í kornrækt hér á landi sé nauðsynlegt að vanda vel til verka í upphafi og fylgjast vel með vextinum og vera með réttu tækin. „Ég fylgist vel með ökrunum og úða plönturnar til að koma í veg fyrir sjúkdóma og illgresi því annars nær maður ekki árangri.“

Að sögn Björgvins er ekki spurning um hvort auka eigi kornrækt í landinu. „Allt korn sem ég rækta er notað í eldi á grísum undan 200 gyltum og ef við gefum okkur að það séu ríflega 2.000 gyltur í landinu þá er ekki spurning um hvort það megi auka ræktunina.

Það eru einnig ónýttir möguleikar til ræktunar korns til manneldis en óvíst hvernig það yrði unnið og sett á markað og varla á færi einstakra bænda að standa fyrir því. Til að byrja með væri hægt að búa til viskí og bjór úr íslensku byggi og vinna sig áfram út frá því.

Heimsmarkaðsverð á korni byrjaði að hækka um síðustu aldamót þegar þrengja tók að ræktunarlandi í heiminum og það hefur margfaldast síðan þá. Innrás Rússa í Úkraínu olli áframhaldandi hækkun og ég á ekki von á að korn eigi eftir að lækka um meira en 15% þrátt fyrir að stríðið taki enda.“

Björgvin segir að hann stefni að því að auka við kornræktina hjá sér um 150 til 200 hektara á komandi árum.

Hækkun verðs skapar tækifæri

Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Ásafls, segir að hér á landi eftir áratugi þar sem kornrækt hefur verið í kringum 4.000 á hektara hafi með stórhækkuðu kornverði skapast tækifæri til að hefja nýja sókn og setja okkur markmið um að tvöfalda ræktunina á næstu fimm árum í að lágmarki 8.000 á hektara

„Verð á byggi er núna á bilinu 55 til 65 krónur fyrir kílóið í stað 35 til 40 krónur eins og það hefur verið og það gerbreytir afkomu ræktunarinnar og þar sem fátt bendir til annars en að hækkað verð á matvælum og hráefnum sé komið til að vera ætti að vera mjög áhugavert fyrir landeigendur að skoða möguleika á stóraukinni kornrækt hérlendis.

Yfirfært á hektara þá erum við að tala um tekjur af bygginu á bilinu 150 til 250 þúsund krónur á hektara á meðan kostnaðurinn við ræktunina og þurrkun gæti legið á bilinu 100 til 150 þúsund krónur. Ef jarðræktarstyrknum er bætt við á tekjuhliðina þá bætast við þar 30 til 35 þúsund krónur á hektara.“

Finnbogi segir að miðað við þessar forsendur virðist vel mögulegt í meðalári að eiga 80 til 100 þúsund krónur á hektara í afgang og þá eru ótaldar tekjur af hálmi, sem er að hans mati stórlega vannýtt auðlind.

„Mín skoðun er að tvöföldun ræktunar sé fyllilega raunhæft markmið.“

Nýtt Bændablað kom út í dag

Skylt efni: Korn

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...

Steypan í Þverárrétt rannsökuð
Fréttir 13. maí 2024

Steypan í Þverárrétt rannsökuð

Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir framkvæmdi rannsókn á gæðum steypunnar sem notuð v...

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki
Fréttir 8. maí 2024

Nýtt verknámshús byggt á Sauðárkróki

Verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Sauðárkróki mun stækka ve...

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni
Fréttir 7. maí 2024

Torfæra til styrktar björgunarsveitinni

Laugardaginn 11. maí fer hin árlega Sindratorfæra fram við Gunnarsholtsveg rétt ...

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli
Fréttir 6. maí 2024

Nýtt erfðapróf fyrir bógkreppu í sjónmáli

Í sjónmáli er nýtt erfðapróf til greiningar á arfberum erfðagallans sem veldur b...

Jarðgerð á lagernum
Fréttir 3. maí 2024

Jarðgerð á lagernum

Krambúðin í Mývatnssveit er nú með jarðgerðarvél fyrir lífrænan úrgang í verslun...

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins
Fréttir 2. maí 2024

Fyrsti skipulegi raforkumarkaður landsins

Opnuð hefur verið íslensk raforkukauphöll, sú fyrsta á Íslandi og með það að mar...

Vöktun íslenskra skóga viðamest
Fréttir 2. maí 2024

Vöktun íslenskra skóga viðamest

Á sviði rannsókna og þróunar hjá Landi og skógi eru fjölmörg verkefni og þeirra ...