Eitt stærsta skordýrasafn landsins er í eigu Páls Halldórs Benediktssonar, bónda á Hákonarstöðum á Efri-Jökuldal. Hann leggur áherslu á að safna fiðrildum, en á líka mikið af öðrum skordýrum.
Eitt stærsta skordýrasafn landsins er í eigu Páls Halldórs Benediktssonar, bónda á Hákonarstöðum á Efri-Jökuldal. Hann leggur áherslu á að safna fiðrildum, en á líka mikið af öðrum skordýrum.
Mynd / ál
Líf og starf 22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Páll Halldór Benediktsson, bóndi á Hákonarstöðum á Efri-jökuldal, á stórt safn fiðrilda og skordýra sem hann hefur safnað frá barnsaldri. Í safninu eru 80 ólíkar tegundir af fiðrildum sem hafa fundist hérlendis, þar af 53 sem hafa fundist á Jökuldal. Fyrsta eintakið fann Páll árið 1969 og er það enn þá í safninu. 

„Áhuginn byrjaði af alvöru þegar það var sýning á Höfn árið 1974 í tengslum við 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar,“ segir Páll. „Þá kom Hálfdán Björnsson, náttúrufræðingur frá Kvískerjum í Öræfum, með skordýrasafnið sitt og var með til sýnis. Seinna ólst upp í Hornafirði. Hann segist ekki hafa sinnt fiðrildasöfnuninni af miklum krafti eftir að hann hóf búskap með eiginkonu sinni á Jökuldal í kringum 1980, en eftir að fiðrildagildrur á vegum Náttúrustofu voru teknar í gagnið árið 2010 hefur safnmunum fjölgað kenndi hann mér aðferðina við að þurrka fiðrildin,“ segir Páll sem verulega. Ein þessara gildra er á Hákonarstöðum. 

Fiðrildi koma oft með vöruflutningum

Hvert eintak er þurrkað í nokkrar vikur með sérstökum aðferðum og fest upp á pinna. Páll gengur svo frá safngripunum í sérstaka bakka með glerloki og merkir hann hvern grip með tegundarheiti og hvar og hvenær hann fannst. Þar má sjá að sum fiðrildin hafa fundist á lager verslana eða fyrirtækja á Austurlandi og Norðurlandi, en Páll segir að þau berist oft til landsins með vörum. Slík fiðrildi eru oft send Náttúrustofu Austurlands til rannsókna og síðan send Páli til varðveislu, þar sem stofnunin hefur ekki safnað skordýrum.

„Mikið af þessu er úr fiðrildagildrunni hérna fyrir ofan bæinn, sem er ljósagildra sem fangar mest á nóttinni,“ segir Páll. „Úr gildrunni fæ ég flest eintök af þeim tegundum sem finnast yfirleitt ekki á landinu, en ég nota líka háf þegar ég er að safna. Náttúrustofa Austurlands á þessar gildrur, en það er ein í Neskaupstað, ein hérna hjá mér og svo var ein í Hallormsstað sem var aflögð í fyrra. Í fyrra kom fiðrildi í gildruna í Neskaupstað sem hefur aldrei fundist hérlendis áður og það ber ekkert íslenskt nafn. Eins hafa komið skordýrategundir í gildrurnar sem ekki hafa sést á Austurlandi áður, eins og asparglytta sem er bjalla.“

Páll gengur frá skordýrunum í bakka sem hann smíðar sjálfur. Safnmunirnir eru vel merktir og varðir undir gleri.

Drekafluga sem fannst á Brú

„Ég hef ekki verið mikið að safna öðrum skordýrum en fiðrildum, nema ef það er eitthvað sérstaklega merkilegt, eins og engisprettan sem kom með gámi í álþynnuverksmiðjuna á Akureyri,“ segir Páll. „Þá er ég er með eina eintakið af drekaflugu sem ég veit til að hafi fundist á Íslandi. Hún var fönguð í garðinum á Brú á Jökuldal árið 2018 og er af tegund sem er algeng í sunnanverðri Evrópu.“

Páll vill ekki meina að hann sé forfallinn safnari, en viðurkennir að það sé alltaf gaman þegar hann rekst á nýja tegund. „Það vantar alltaf eitthvað,“ svarar Páll aðspurður um hvort honum finnist einhver göt vera í safninu. Gréta Dröfn Þórðardóttir, eiginkona Páls, skýtur inn í að hann sé alltaf með háf við höndina á ferðalögum um landið.

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir
Fréttir 16. september 2026

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir

Metfjöldi nemenda er skráður í Háskólann á Bifröst í haust. Þetta er annað árið ...