Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
"Það er klárlega pláss fyrir aukna innlenda framleiðslu en regluverkið hefur gert okkur mjög erfitt að komast í gegnum leyfismál og byggja ný bú frá grunni,“ segir Ingvi Stefánsson, formaður svínabænda, sem er lengst til hægri á myndinni.
"Það er klárlega pláss fyrir aukna innlenda framleiðslu en regluverkið hefur gert okkur mjög erfitt að komast í gegnum leyfismál og byggja ný bú frá grunni,“ segir Ingvi Stefánsson, formaður svínabænda, sem er lengst til hægri á myndinni.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 26. mars 2026

Eftirspurn eykst en innlenda framleiðslan stendur í stað

Höfundur: Þröstur Helgason

Innflutningur á svínakjöti hefur stóraukist og er nú um þrjátíu prósent af markaðnum. Eftirspurnin eykst því jafnt og þétt en innlenda framleiðslan hefur staðið í stað á sama tíma. Þetta eru á meðal áskorana sem svínabændur ræddu á deildarfundi sínum á Búnðarþingi.

Ingvi Stefánsson, formaður búgreinadeildar svínabænda, sagði í viðtalið við Bændablaðið á fundinum að staða svínaræktar væri að mörgu leyti góð. „Það er mikil eftirspurn eftir svínakjöti þannig að eftirspurnin er næg eins og staðan er í dag.“

Áskoranirnar í rekstrinum eru hins vegar margar. „Já, þróunin hefur verið sú að eftirspurn eftir svínakjöti eykst stöðugt en því miður hefur innlenda framleiðslan staðið í stað á sama tíma. Því hefur innflutningur á svínakjöti stóraukist og er nú um 30% af heildarsölu.“

Eru möguleikar á framleiðsluaukningu í greininni? 

„Já og nei, það er klárlega pláss fyrir aukna innlenda framleiðslu en regluverkið hefur gert okkur mjög erfitt að komast í gegnum leyfismál og byggja ný bú frá grunni.“

Eru einhverjir hvatar í kerfinu til framleiðsluaukningar eða í hvaða formi þyrftu þeir að vera? 

„Nei, engir hvatar í kerfinu eins og staðan er í dag. En maður lifir í voninni, við áttum góðan fund með Atvinnuvegaráðherra – Hönnu Katrínu Friðriksson- í dag (þriðjudag) þar sem við lögðum ákveðnar hugmyndir á borðið og leyfum okkur að vera bjartsýn á framhaldið.“

Ingvi segir að ein af helstu áskorunum síðustu ára hafi verið þær miklu fjárfestingar sem greinin hefur þurft að takast á við til að bæta dýravelferð enn frekar. „Leyfismál og þungt regluverk hefur því miður tafið okkur talsvert í því ferli,“ segir hann og bætir við að gróflega megi áætla að um 20% af gyltubúunum séu búin að uppfylla regluverkið, aðrir bændur eru að vinna í sínum málum og komast vonandi allir af stað á þessu ári. „Tíminn er naumur þar sem undanþágan rennur út 1. Janúar 2028. Hér má ekki gleyma því að við erum komin mun lengra í því að auka velferð svína í samanburði við þær þjóðir sem við keppum um hillupláss við. En við viljum klárlega gera enn betur.“

Ingvi bar upp tillögu á fundinum um að óskað yrði eftir samtali við deildir kjúklinga- og eggjabænda um að þessar þrjár búgreinar yrðu sameinaðar í eina deild. Í því samhengi þyrfti að skoða sérstaklega fjölda fulltrúa á búnaðarþingi. Tillagan var samþykkt og Ingva falið að vinna málið áfram.

Ingvi var endurkjörinn formaður svínabænda en með honum í stjórn eru Björgvin Þór Harðarson og Geir Gunnar Geirsson.

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar
Fréttir 6. nóvember 2026

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar

Könnun á viðhorfi almennings til sauðfjárræktar stendur nú yfir. Hún er hluti af...

Verð heldur áfram að hækka
Fréttir 6. nóvember 2026

Verð heldur áfram að hækka

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 2. nóvember hélt jafnvægisverð áfram a...

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...