Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Demantshringurinn formlega opnaður
Mynd / Markaðsskrifstofa Norðurlands
Fréttir 25. september 2020

Demantshringurinn formlega opnaður

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

Demantshringurinn var opnaður við hátíðlega athöfn sunnudaginn 6. september, þegar þrír ráðherrar klipptu á borða sem var strengdur yfir nýjan Dettifossveg, mitt á milli Dettifoss og Ásbyrgis. Þessi ferðamannaleið er 250 kíló-metra löng og tengir saman Húsavík, Goðafoss, Mývatnssveit, Dettifoss og Ásbyrgi auk fjölda annarra einstakra áfangastaða. Ferðaþjónustufyrirtæki á þessum hring eru fjölmörg og bjóða upp á margvíslega möguleika í gistingu, afþreyingu, mat og drykk.

Nafnið Demantshringurinn hefur verið notað um árabil um þessa leið og ferðir verið seldar undir því nafni en Markaðsstofa Norðurlands hefur undanfarin misseri unnið að undirbúningi að markvissri markaðssetningu á ferðamannaleiðinni í samstarfi við Húsavíkurstofu og fyrr í vetur var nýtt merki fyrir hana kynnt. Sú vinna var unnin í samhengi við framkvæmdir við Dettifossveg en stefnt er að því að ljúka þar framkvæmdum á næstunni. Því verður hægt að keyra alla leiðin á bundnu slitlagi en í áraraðir hafa forsvarsmenn ferðaþjónustu á Norðurlandi og fleiri kallað eftir því að vegurinn á milli Dettifoss og Ásbyrgis yrði byggður upp. Gamli vegurinn var seinfær og lokaður stóran hluta ársins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsskrifstofu Norðurlands.

Kampakát með hluta úr borðanum góða. Katrín Jakobsdóttir,  Örlygur Hnefill Örlygsson og dóttir hans, Ylva Breiðfjörð, en  Örlygur stundar ferðaþjónustu á Húsavík.

Opnar norðausturhornið enn betur

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra klipptu á borð-ann að loknum ræðum.

„Demantshringurinn gerir okkur kleift að heimsækja fjölmargar náttúruperlur á einum degi og mun opna norðausturhornið enn betur fyrir innlendum og erlendum gestum,“ segir Katrín og gat þess að stórkostlegt hefði verið að heimsækja Dettifoss. Samgöngubótin yrði til þess að mun fleiri myndu heimsækja hann og aðra fallega staði í landshlutanum.

„Opnun Demantshringsins er stór áfangi fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi. Á óvissutímum í ferðaþjónustu er mikilvægt að huga að uppbyggingu til framtíðar. Ferðamannaleiðir á borð við þessa eru mjög góð nálgun til að vekja athygli á einstakri náttúru svæðisins. Allir sem hafa unnið lengi að þessu verkefni eiga hrós skilið. Ég gleðst fyrir hönd þeirra ferðamanna sem munu í fyllingu tímans upplifa náttúruperlur og menningu svæðisins fyrir tilstilli þessa verkefnis en hefðu mögulega annars farið á mis við þær,“ segir Þórdís Kolbrún.

Goðafoss er innan Demantshringsins, hér staldra þau við þann fagra foss, Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu ferðamála og nýsköpunar í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, Þórdís Kolbrún, Viggó Jónsson og Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit.

Styttir vegalengdir á milli byggða

„Með nýjum Dettifossvegi er langþráðum áfanga náð fyrir samfélagið á Norðausturlandi. Nýr heilsársvegur bætir samgöngur á svæðinu til mikilla muna og styttir vegalengdir á milli byggða. Vegurinn skapar mikil tækifæri og Demantshringurinn, stórbrotin 250 kílómetra leið um náttúru Íslands, verður fyrir vikið enn meira aðdráttarafl fyrir Íslendinga og gesti okkar í framtíðinni. Við samgleðj-umst íbúum svæðisins með glæsilega samgöngubót,“ segir Sigurður Ingi.

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...