Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Weronika Balcerak og Lukas Bury standa fyrir listasýningunni Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg sem verður opin til 25. maí. Þar skoða þau tengslin milli Íslands og Póllands sem hafa haldist lengi þrátt fyrir að löndin lentu hvort sínum megin við járntjaldið.
Weronika Balcerak og Lukas Bury standa fyrir listasýningunni Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg sem verður opin til 25. maí. Þar skoða þau tengslin milli Íslands og Póllands sem hafa haldist lengi þrátt fyrir að löndin lentu hvort sínum megin við járntjaldið.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Viðtal 11. maí 2026

Brúin milli Íslands og Póllands á listasýningu

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Listamannatvíeykið Austur-Íslendingar, sem samanstendur af parinu Lukas Bury og Weronika Balcerak, standa fyrir sýningunni Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg. Þar skoða þau langvarandi og lítið rædd tengsl milli Póllands og Íslands, en þrátt fyrir að hafa lent hvort sínum megin við járntjaldið eftir seinni heimstyrjöld hélst alla tíð viðskiptasamband milli ríkjanna tveggja.

Þau sjónarhorn sem þau nota til að sýna tengsl landanna eru meðal annars innflutningur á Ursus traktorum, Fiat bílum sem framleiddir voru í Póllandi, innflutningur á Prins Polo nammi í staðinn fyrir útflutning á fiski og fólksflutningur til Íslands eftir fall járntjaldsins.

Lukas og Weronika, sem bæði eru af pólsku bergi brotin, miðla efninu með málverkum, útsaumi, vídeóverkum og með skúlptúr. Þegar þau áttuðu sig á því að Pólverjar og Íslendingar gátu haft aðgang að sömu vörunum hvort sínum megin við járntjaldið vakti það áhuga þeirra á að skoða málið frekar. Eitt af þeim viðfangsefnum sem skipa stærstan sess í sýningunni eru Ursus traktorar, en þau kynntust Baldri Þorsteinssyni sem starfaði hjá Vélaborg sem hafði umboð fyrir Ursus. 

Eitt af þeim sjónarhornum sem listamannatvíeykið nýtti sér til að skoða tengsl Íslands og Póllands voru Ursus dráttarvélar sem framleiddar voru í Póllandi og nutu mikilla vinsælda hérlendis. Mynd / Austur-Íslendingar

Leituðu að Ursus í sveitum landsins

Listamennirnir lögðu í kjölfarið land undir fót til þess að hafa uppi á traktorunum eftir að Baldur benti þeim á bæi sem keyptu Ursus á sínum tíma. Leitin að Ursus traktorum reyndist erfið, en fá eintök voru eftir í notkun og sögðu bændurnir að ef þau hefði verið á ferðinni 15 árum fyrr hefðu mun fleiri dráttarvélar enn þá verið til. Auglýstu Lukas og Weronika því eftir upplýsingum um Ursus traktora í Bændablaðinu sem skilaði sér í ábendingu um bónda á Suðurlandi sem átti nokkur nothæf eintök af Ursus. Afurðin úr þessari rannsóknarvinnu er stuttmynd sem hægt er að sjá í sýningarrýminu í Hafnarborg.

Samhliða þessu skoðuðu þau sögu Ursus í Póllandi, en framleiðslu þeirra hrakaði undir lok kalda stríðsins þegar ríkisrekin verksmiðjan gerði óhagstæðan samning við Massey Ferguson um kaup á vélbúnaði. Weronika ólst upp í landbúnaðarhéraði í miðju Póllands og segir að Ursus traktorar séu enn þá algeng sjón þar. Á síðustu árum hefur vörumerkið Ursus verið endurvakið, en það fyrirtæki er óskylt því sem framleiddi traktorana á 20. öldinni.

Útsaumuð smáauglýsing og frétt

Titill sýningarinnar er sóttur beint í smáauglýsingu sem birtist í Tímanum árið 1991. Hún var á ensku, en í íslenskri þýðingu getur hún hljómað svona: „Heiðvirðir einstaklingar frá Póllandi leita að sumarvinnu á Íslandi ‘91, svo sem í skógrækt.“ Weronika segir þessa auglýsingu lýsa pólskri þjóðarsál á ákveðinn hátt, en jafnframt styrkja ákveðnar steríótýpur. Pólverjar séu almennt þekktir fyrir að vera heiðvirðir, bjartsýnir og duglegir til vinnu, en sá sem skrifaði auglýsinguna hafi í einfeldni talið góð atvinnutæki í skógrækt á Íslandi árið 1991.

Þessi auglýsing var innblástur að stóru útsaumuðu verki sem sjá má á sýningunni. Þar má jafnframt sjá sams konar verk þar sem Weronika saumaði út frétt sem birtist í Fréttablaðinu árið 2004. Þar er greint í örstuttu máli frá því að barnlaus og ógift pólsk kona hafi fundist látin í höfninni á Blönduósi. Meðhöndlun blaðsins á þessum sorglega atburði hafi að hennar mati verið aumkunarverð, en með því að sauma hana út á mjög stóru formi hafi textinn mun meiri áhrif. Weroniku finnist þessi tiltekna frétt sérstaklega áhugaverð í samanburði við minningargreinar sem séu oft mjög langar hjá einstaklingum sem hafi átt stóra fjölskyldu á Íslandi.

Eitt Prins Polo fyrir hvern Pólverja

Á sýningunni er skúlptúr sem gerður er úr rúmlega 33.000 Prins Polo stykkjum sem staflað er í horn. Listamönnunum finnst áhugavert að vinna með Prins Póló í ljósi þess að þetta pólska nammi sé sérstaklega vinsælt á Íslandi á meðan það finnist varla í nokkru landi utan Póllands.

Weronika bendir á að viðskipti milli Íslands og Póllands hafi verið hagstæð eftir seinna stríð þar sem gjaldmiðlar beggja ríkjanna voru veikir. Lengi vel var greitt fyrir Prins Póló með síld og þorski. Það hafði þau áhrif að einkennisrétturinn í Cieszyn, þar sem Prins Póló er framleitt, er smurbrauð með síld. Fiskneysla í héraðinu, sem er syðst í Póllandi og lengst inn í landi, er mun meiri en alls staðar í kring.

Enn fremur má sjá málverk á sýningunni þar sem viðfangsefnin eru meðal annars Ursus dráttarvélar, Polski Fiat og fleiri hluti sem listamannatvíeykið sér sem brú milli austurs og vesturs. Bæði Lukas og Weronika eru útskrifuð frá Listaháskóla Íslands. Samhliða listsköpun sinni rekur parið Myndlistarvöruverslunina Art Suppplies við Laugalæk í Reykjavík.

Skylt efni: Pólland | menning | viðtal | listasyning

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð...

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Fjögur sunnudagsskákmót
23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Græðgin er óseðjandi púki
23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

Hátíðin Hamraborg Festival
22. september 2026

Hátíðin Hamraborg Festival