Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Vetrarmynd frá Þingvöllum. Þar standa breytingar fyrir dyrum á því svæði þar sem um 99% ferðamanna koma.
Vetrarmynd frá Þingvöllum. Þar standa breytingar fyrir dyrum á því svæði þar sem um 99% ferðamanna koma.
Mynd / Deiliskipulag, Frá Haki að Leirum, Bláskógabyggð, 2025.
Fréttir 12. febrúar 2026

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Deiliskipulag fyrir vesturhluta Þjóðgarðsins á Þingvöllum felur í sér vernd, uppbyggingu og nýtt skipulag sem miðar að því að bæta aðstöðu gesta og tryggja sjálfbæra nýtingu svæðisins til framtíðar.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur samþykkt nýtt deiliskipulag sem nær frá Hakinu að Leirum og tekur til helstu aðkomusvæða þjóðgarðsins, þinghelginnar og þjónustusvæða. Skipulagið byggir á stefnu Þingvallanefndar 2018–2038 og er svar við mikilli fjölgun gesta undanfarin ár, auk síaukinnar þarfar fyrir skýra stýringu umferðar og verndun náttúru og menningarminja.

Afmörkun skipulagssvæðisins í þjóðgarðinum á Þingvöllum og staðhættir. Uppdráttur / Deiliskipulag, Frá Haki að Leirum, Bláskógabyggð, 2025.
Vegvísir til framtíðar

Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður og framkvæmdastjóri Þingvallanefndar, segir deiliskipulagið hafa verið nokkurn tíma í vinnslu.

„Það má segja að þetta sé vegvísir til framtíðar, byggður á aðalatriðum í stefnumörkun Þingvallanefndar sem endurskoðuð var og samþykkt árið 2018,“ segir hann. Skipulagið nái eingöngu til meginsvæðis heimsókna ferðamanna til Þingvalla og sé ekki skipulag yfir allan þjóðgarðinn.

„Svæðið sem það nær til er þó það svæði sem um 99% gesta okkar heimsækir. Af þeim sökum er það mjög mikilvægt,“ útskýrir hann.

„Aðalatriðin eru að skýra betur flæði og umferð gangandi og akandi innan þinghelgarinnar. Hluti af því er að skilgreina nýja aðkomu og bílastæði ofan Almannagjár á tveimur stöðum norðan við Öxarárfoss þar sem hægt verður að ganga niður að mest heimsóttu áningarstöðum innan þinghelgarinnar. Markmiðið er að minnka álag af völdum bíla og hópferðabíla fyrir neðan Almannagjá,“ segir Einar og heldur áfram:

„Einnig er þarna inni tillaga að nýju menningarhúsi; veitinga- og fundahúsi rétt sunnan við Gestastofuna á Haki, þar sem fallegt útsýni er yfir Þingvallavatn og yfir sigdældina. Það má líka kalla það hús þings og þjóðar, þar sem rætt hefur verið þar um aðstöðu fyrir Alþingi um leið að það geti þjónað hlutverki veitingahúss fyrir gesti, veislur, hópa og aðra sem vilja góðan viðurgjörning á Þingvöllum. Það hefur skort verulega á Þingvöllum síðan Hótel Valhöll brann árið 2009.“

Ekki gert á einni nóttu

Einnig eru tvö önnur mannvirkjasvæði á skipulaginu, ofan við Almannagjá þar sem bílar og rútur geta lagt, um leið og dregið verður úr bílastæðum fyrir neðan Almannagjá.

„Taka ber fram að þetta deiliskipulag verður ekki innleitt á einu sumri eða stuttum tíma, heldur er þetta eins og fyrr segir ákveðinn vegvísir að framkvæmdum til framtíðar. Það er stórt og mikið og margar útfærslur í því sem kalla á ítarlegri hönnun og yfirlegu,“ segir Einar enn fremur.

Þingvellir: nýtt deiliskipulag

  • Gert er ráð fyrir nýrri þjónustumiðstöð austan Þingvallavegar, með stóru bílastæði fyrir 300–350 bíla og 10–15 rútur. Nýjar gönguleiðir verða lagðar frá miðstöðinni niður hliðargjá og áfram í gegnum Furulund, þar sem trjátoppastígur í allt að sex metra hæð mun leiða gesti áfram í átt að þinghelginni. Aðalstígar verða 3 metra breiðir og lagðir með aðgengi fyrir alla þar sem unnt er.
  • Rafknúinn strætó mun ferðast um þjóðgarðinn á 15–30 mínútna fresti með stoppistöðvum við helstu svæði, þar á meðal Hakið, Furulund, Leira og nýju þjónustumiðstöðvarnar. Almenn bílastæði innan kjarnasvæðisins, svo sem við Valhallarplan, Þingplan og Nikulásargjá, verða lögð af og þjónusta færð út fyrir helstu minjasvæði.
  • Í skipulaginu er lögð rík áhersla á vernd fornleifa, en 347 minjastaðir eru skráðir á svæðinu, þar af 168 friðlýstir. Allar framkvæmdir í eða við minjar krefjast samráðs við Minjastofnun Íslands.
  • Auk nýrrar þjónustumiðstöðvar verður byggt menningarhús á Hakinu, með veitingaaðstöðu og fundarrými Alþingis. Þá verður aðstaða fyrir köfunarstarfsemi við Silfru endurskoðuð og færð á nýtt svæði.
  • Deiliskipulagið gerir jafnframt ráð fyrir skýrum skilmálum um fráveitu, vatnsvernd, lýsingu, byggingarefni og stýringaráform til að tryggja að uppbyggingin rýri hvorki ásýnd né sérstöðu svæðisins
Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...