Ugg stígvél og Mu'muu' dress í sínu náttúrulegasta umhverfi. Á fótum brimbrettakappa og sem glaðlegur, litríkur kjóll Havaíbúa.
Ugg stígvél og Mu'muu' dress í sínu náttúrulegasta umhverfi. Á fótum brimbrettakappa og sem glaðlegur, litríkur kjóll Havaíbúa.
Líf og starf 23. júní 2026

Brotist úr viðjum hefðanna

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Sagan sýnir að togstreitan á milli þæginda og fegurðar í fatnaði er alls ekki ný af nálinni. Í a.m.k. tæp hundrað ár hafa neytendur reglulega snúið baki við ströngum tískustraumum og valið klunnalegar eða afar ósmartar flíkur í leit sinni að vellíðan. Þó verður að taka fram að það sem á einum áratug þótti algjört tískuslys hefur oft og tíðum breyst í ótvírætt stöðutákn.

Sú þróun endurspeglar ekki aðeins breytta smekkvísi heldur líka dýpri félagslegar breytingar á hverjum tíma fyrir sig. Ef horft er hundrað ár til baka má sjá fyrstu vísbendingar þessarar þróunar. Eftir strangar og virðulegar reglur þegar kom að klæðaburði var flesta farið að lengja í smá uppreisn. Sem birtist þá í von um víðari og lausari föt. Það var ekki lengi að bíða því Flappertímabilið kynnti til sögunnar kjóla sem sýndu hvorki mitti né línur og fór einmitt fyrir brjóstið á mörgum heldri borgurum. Á sama tíma fóru karlmenn einnig að klæðast heldur óásjálegum buxum, Oxford-buxum, sem voru svo víðar að þessar elskur hrösuðu nánast um eigin fald.

Hægt og rólega færðist svo frelsi þægindanna yfir í hversdagsleikann og álit á þeim sem litnir voru hornauga fyrir óhefðbundinn klæðaburð jafnaði sig svolítið.

Á sjötta áratug síðustu aldar, í kringum rokk og ról tímabilið, varð til sérstök unglingamenning þar sem fatnaður varð enn og aftur að uppreisnartákni – ekki síst meðal ungra kvenna sem vildu losna undan tískukröfum um fullkomnar línur. Unga fólkið hóf að ganga í galla- og strigaskóm (sem áður þóttu bara vinnuföt) og þó þetta þætti hvorki fágað né fallegt á þeim tíma bauð það (enn og aftur) upp á hreyfifrelsi sem fólk neitaði að gefa eftir.

Konur í mussum.

Í framhaldinu litu svo hippamussur dagsins ljós, klæðnaður allra kynja, gjörsamlega sniðlaus ... en fólki var nákvæmlega sama því þeim leið vel og frelsið yndislegt. Það er rétt að taka fram að hippamussurnar eru stigi ofar en það sem íslenskir frelsissinnar holdsins kalla múmú, en það er annars konar mussa sem kemur upprunalega frá Havaí og heitir þar Mu'umu'u. Mu'umu'uið var upphaflega úr léttu, hvítu bómullarefni og auk þess að vera undirflík þjónaði hann havaískum konum sem heimiliskjóll, náttkjóll og sundföt.

Mesta stökkbreytingin átti sér þó stað á níunda áratugnum þegar íþróttafatnaður varð að almennum hversdagsfatnaði. Um árið 1984 urðu jogginggallar úr skærlitum gerviefnum gífurlega vinsælir. Þessir gallar voru hannaðir með þægindi í fyrirrúmi en litasamsetningarnar og efnin þykja mörgum í dag eitt mesta tískuslys sögunnar. Samhliða þessu komu legghlífar og þykkir sokkar inn í daglegt líf, ekki síst ef gyrt var yfir venjulegar buxur, óháð því hvort það ætlaði í leikfimi eða bara út í búð að kaupa mjólk.

 Crocs-tísku Balenciaga.

Undir lok tuttugustu aldarinnar mætti síðan nýtt fyrirbæri sem átti eftir að skilgreina ljóta og þægilega tísku um ókomna tíð. Jú, flísefnið. Um árið 1995 mætti flísefnið af krafti og hefur hvergi farið. Annað dæmi sem hlýtur þægindabikarinn árlega er skófatnaður, eða stígvél sem annar hver heimsborgari átti um aldamótin síðustu. Upphaflega hönnuð í kringum 1930, en vöktu fyrst almenna athygli brimbrettakappa sjöunda áratugarins sem hituðu á sér fæturna í stígvélunum eftir kalda sjóferð. Þau eru klunnaleg og formlaus en hlýjan og mýktin hafa gert þau að ómissandi eign milljóna manna og gerir enn í dag. Jú, þetta eru engin önnur en áströlsku Ugg-stígvélin sem náðu heimsathygli í kringum árið 2000.

Hér má sjá demantskreyttan kósígalla úr velúr.

Við þessa dýrð gekk fólk helst um í velúr-jogginggöllum frá Juicy Couture með demantsskreytta afturenda. Þó má ekki alhæfa. Ugg skórnir fengu fljótt keppinaut, en árið 2002 komu Crocs skór á markað, táknmynd hinnar fullkomnu ljótu þæginda og enginn eftirbátur Uggs skóna þegar kom að vali skófatnaðar við Juicy Couture gallana. Margir töldu Crocs tímabundið tískuslys, en öllum heilvita neytendum að óvörum eiga þeir fastan sess ofarlega á vinsældalista skófatnaðar hverrar þjóðar. Í kringum árið 2017 fóru sum tískuhús jafnvel að hanna eigin útgáfur af Crocs og máttu áhorfendur tískupalla Parísar vara sig – enda þegar Balenciaga er farið að útfæra þennan hrylling er ekki snúið aftur. Frekar er mælt með að kíkja á úrval frá Birkenstock sem eru eilítið penni heimaskór en þeir fyrrnefndu.

 New Balance-strigaskór.

Annað frábært dæmi um tískuslys frá svipuðum tíma eru svokallaðir pabbaskór og minna helst á gömlu, þykku og klunnalegu íþróttaskóna sem feður notuðu til að slá blettinn á tíunda áratugnum. Slíkir skór þykja sumum enn smartir, meira að segja við dragtarbuxur, og hvað mest móðins frá merkinu New Balance.

Ugg-skór.

Að lokum má ekki gleyma faraldrinum sem dundi yfir heimsbyggðina árið 2020 og líklegast ýtt undir eitt mesta hóptískuslys samtímans. Loðnir inniskór af óræðum uppruna, hettupeysur í yfirstærð, jafnvel leggings ... Þegar fólk neyddist til að vinna heiman frá sér hurfu jakkaföt og hælaskór nánast yfir nótt en við tók ofangreindur fatnaður.

Í dag mætti segja að þessi þróun sé komin á lokastig. Þegar horft er yfir síðustu hundrað ár er ljóst að ljótu og þægilegu fötin hafa unnið stríðið gegn þröngum og óþægilegum klæðnaði – ljót og þægileg föt eru ekki lengur andóf, heldur sjálf tískan. Fatnaður hefur breyst úr því að vera félagsleg brynja yfir í að stuðla að því að fólki líði vel í eigin skinni. Föt ætluð íþróttum eða við heimilisstörf eru í dag orðið að einhverju sem mætti flokka undir tískustrauma samtímans, og ekkert bendir til þess að sú flokkun breytist ... a.m.k. ekki enn. 

Skylt efni: tíska

Sex útskrifaðir úr járninganámi
Fréttir 22. júní 2026

Sex útskrifaðir úr járninganámi

Fyrsta brautskráning úr nýju járninganámi við Háskólann á Hólum fór fram 23. maí...

Verknámshúsið stækkað
Fréttir 22. júní 2026

Verknámshúsið stækkað

Mikil ánægja er í Skagafirði þessa dagana því nýlega skrifuðu Inga Sæland mennta...

Matvöruverð rætt í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 19. júní 2026

Matvöruverð rætt í Útvarpi Bændablaðsins

Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Benedi...

Boðað til aukabúnaðarþings í ágúst
Fréttir 19. júní 2026

Boðað til aukabúnaðarþings í ágúst

Stjórn Bændasamtaka Íslands hefur boðað til aukabúnaðarþings sem haldið verður í...

Sumarlestur barna
Fréttir 19. júní 2026

Sumarlestur barna

Nú þegar börn í grunnskólum stíga inn í sumarfríið er ekki úr vegi að minna á mi...

Framkvæmdir hafnar við þjónustuhús Bláa Lónsins
Fréttir 18. júní 2026

Framkvæmdir hafnar við þjónustuhús Bláa Lónsins

Fyrsta skóflustunga var tekin í vikunni að nýju þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árne...

Umfang glýfosatnotkunar á Íslandi
Fréttir 18. júní 2026

Umfang glýfosatnotkunar á Íslandi

Bændur þurfa að hafa annað en eigin orð fyrir gæðum framleiðslu sinnar, segir ga...

Neytendur velja frekar gott en hollt
Fréttir 18. júní 2026

Neytendur velja frekar gott en hollt

Nýtt norrænt samstarfsnet hefur það markmið að auka hlutfall jurtafæðis á matard...