Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Svein Sveinsson má telja meðal helstu brautryðjenda í nýsköpun íslensks landbúnaðar á ofanverðri 19. öld, svo víð voru þekkingar- og viðfangsefnasvið hans.
Svein Sveinsson má telja meðal helstu brautryðjenda í nýsköpun íslensks landbúnaðar á ofanverðri 19. öld, svo víð voru þekkingar- og viðfangsefnasvið hans.
Mynd / Aðsend
Líf og starf 27. apríl 2026

Bók um Svein búfræðing

Höfundur: Bjarni Guðmundsson
Bjarni Guðmundsson.

Maður er nefndur Sveinn Sveinsson (1849–1892), austfirskur. Svein má með réttu telja fyrsta íslenska búfræðinginn sem svo var almennt kallaður. Sem slíkur var hann mjög vel menntaður. Sveinn hafði numið í Noregi, Danmörku og raunar einnig í Skotlandi. Um árabil ferðaðist hann um sveitir sem ráðunautur og kenndi bændum nýja verkhætti við búskap – á sviði jarðyrkju og búfjárræktar, einnig á sviði mjólkurmeðferðar. Sérstaklega má nefna fjölda rækilegra fræðslugreina sem hann skrifaði um nýja búskaparhætti og búnaðarfræðslu, meðal annars kver um hvernig smíða skyldi ýmis búverkfæri sem til nýmæla töldust hérlendis.

Síðast en ekki síst barðist Sveinn fyrir stofnun búnaðarskóla á Hvanneyri. Lagði hann mikla vinnu í að laða samtök bænda í Suðuramtinu til samstöðu með stjórnvöldum um framtakið. Það tókst árið 1889 og varð Sveinn fyrsti skólastjóri Búnaðarskólans. 

Sveinn var dyggilega studdur til náms og starfa af Jóni Sigurðssyni forseta sem leit á umbætur í landbúnaði og öðrum atvinnuvegum þjóðarinnar sem mikilvæga forsendu fyrir árangri í sjálfstæðisbaráttu hennar. Þá var Sveinn liðsmaður Tryggva Gunnarssonar og með Eyfirðingum stýrði hann stórum tímamóta ræktunarframkvæmdum í Staðarbyggðarmýrum.

Sveinn búfræðingur skilaði miklu verki á skammri starfsævi. Hann mætti mótlæti, einkum þegar kom að því að hrinda af stað og móta fyrstu starfsár Búnaðarskólans á Hvanneyri. Sveinn náði ekki að brautskrá fyrstu nemendur sína. Hann bugaðist undan byrði heimsins og féll frá með voveiflegum hætti aðeins 42 ára gamall.

Því miður hefur mikið og merkilegt frumkvöðlastarf Sveins búfræðings í þágu landbúnaðar og raunar sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar ekki hlotið þá athygli sem það verðskuldar. Hann mátti í ýmsu búa við takmarkaðan skilning svo sem títt er um marga þá sem boða nýja hætti.

Tómás Helgason frá Hnífsdal hafði tekið saman vænt gagnasafn um Svein búfræðing og vakið athygli á ævistarfi hans með ýmsum hætti. Undirritaður vann úr gagnasafni Tómásar og fleiri heimildum handrit að bók um Svein sem nú hefur verið gefin út í röð rita Landbúnaðarháskóla Íslands. Bókina, sem nefnist Í slóð Sveins búfræðings og fyrsta skólastjóra á Hvanneyri, er að finna á heimasíðu skólans (www.lbhi.is). Hana má líka finna í rithlöðu undirritaðs. Bókin er aðeins gefin út á rafrænu formi – enn sem komið er.

Í eftirmála bókarinnar segir: „ Að verkinu loknu hef ég sannfærst um að rétt er það mat Tómásar Helgasonar frá Hnífsdal, að Sveinn Sveinsson búfræðingur hafi verið meðal allra merkustu brautryðjenda nútíma landbúnaðar hérlendis, þótt til þess gæfist honum aðeins hálf starfsævi. Þess vegna verðskuldar hann að saga hans sé sögð.“

Höfundur er fyrrverandi prófessor á Hvanneyri.

Skylt efni: bókaútgáfa | LbhÍ

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...