Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Björgvin með verðlaunin, skál sem Jón Guðmundsson renndi.
Björgvin með verðlaunin, skál sem Jón Guðmundsson renndi.
Fréttir 27. mars 2026

Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hlýtur Hvatningarverðlaun skógræktar

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hlýtur Hvatningarverðlaun skógræktar 2026.

Vegferðin hófst þegar Björgvin var peyi að gróðursetja í Þjórsárdalnum. Hann hefur síðan þá kynnst öllum hliðum skógræktar og segir þörf vera á mikilli sérþekkingu í umhirðu skóga samanborið við þegar hann var að byrja sinn starfsferil þegar megináhersla var á að gróðursetja.

Gróðursetning og girðingarvinna

Vinna við skógrækt hefur fylgt Björgvini alla sína starfsævi en hann byrjaði að gróðursetja í Þjórsárdalnum sem smástrákur. Hann réði sig í sumarvinnu hjá Skógræktinni á unglingsaldri og eitt leiddi svo af öðru.

„Þegar ég var að byrja sem pjakkur 1983 í Þjórsárdal, þá var skógrækt bara gróðursetning og gekk ekki út á neitt annað. Og girðingarvinnu, endalausa girðingarvinnu. Í dag er skógrækt orðin miklu meira, umhirða með vélum og tækjum og græjum, trjáfellingar og miklu þyngri umhirða þar sem þarf meiri þekkingu heldur en þurfti hérna áður þegar við vorum bara að gróðursetja og allir gátu tekið þátt.“

Björgvin hefur unnið víða í skógrækt. „Ég hef verið svo heppinn að vera líka í félagsmálakerfinu en ég er búinn að sitja í stjórn Skógræktarfélags Selfoss og Árnesinga, sem er sitthvort félagið og var formaður Skógfræðingafélags Íslands í nokkur ár. Þannig að maður hefur náttúrulega kynnist mörgum hliðum og áttar sig svolítið vel á því hvaða þekkingu og fræðslu vantar á hvaða stað.“ Björgvin segir stíganda hafa verið í öllum hópum sem nýta skógræktarþekkingu, hvort heldur er í landbúnaðinum, annars staðar í atvinnulífinu eða í heimilisgörðum.

Fræðsla og rétt vinnubrögð mikilvæg

Björgvin hefur tekið þátt í mörgum verkefnum með skógareigendum, Landssamtökum skógareigenda, Suðurlandsskógum og öðrum fagaðilum þar sem meðal annars voru búin til Evrópuverkefni til að kynnast skógrækt erlendis og flytja þekkingu á skógum og skógarumhirðu til Íslands en auk þess kynnast tálgun, húsgagnasmíði og fleiru sem tengdist skógarnytjum.

Grænir skógar var verkefni sem var sniðið að skógarbændum um allt land og Björgvin var ráðinn árið 2007 til Garðyrkjuskólans sem þá var hluti Landbúnaðarháskólans til að sinna því. Hann hefur síðan mikið sinnt fræðslu til skógarbænda og skógareigenda og ekki síst til nemenda bæði í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og í Garðyrkjuskólanum. Hann segir stöðuga aðlögun námsins hafa þurfti til að samræma við stígandann sem var í atvinnulífinu og í samfélaginu.

Skógrækt þá og nú

Margt hefur breyst í skógrækt á þessum rúmu fjórum áratugum og Björgvin segir að nú sé trjáfelling og umhirða orðin meiri sérþekking. „Það er ekki nóg að kunna að fella tré. Þú þarft alltaf að vita hvaða tré þarftu að velja og af hverju“. Hann segir mikilvægt að þeir sem stundi skógrækt af einhverju tagi sæki sér menntun og fræðslu, allt of mikið sé gert af mistökum sem séu óþörf. Krafan um að vinna hlutina rétt sé alltaf að aukast og með því að fylgja útgefnum leiðbeiningum eins og Land og skógur gefa út sé einnig hægt að spara tíma, fyrirhöfn og peninga. Hann bætir við að lyfta þurfi greininni á verðugri stað og að Garðyrkjuskólinn leiki þar lykilhlutverk, þar læri nemendur sem koma til með að vinna í skóglöndunum rétt vinnubrögð.

Björgvin menntaði sig í Noregi og Finnlandi og er nú námsbrautarstjóri við braut Skógar og náttúru við Garðyrkjuskóla FSu á Reykjum en kennir til dæmis trjáfellingar á fleiri námsbrautum. Hann er auk þess virkur í námskeiðahaldi og hefur komið að fjölda samstarfsverkefna sem hafa aukið þekkingu innan skógargeirans. Verðlaunin voru formlega veitt í Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi á alþjóðlegum degi skóga 21. mars en þeim er ætlað að hvetja til dáða einstaklinga, hópa, fyrirtæki, félög eða stofnanir sem vinna í þágu skógræktar á Íslandi. Að verðlaunum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og deild skógarbænda í Bændasamtökum Íslands.

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir
Fréttir 16. september 2026

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir

Metfjöldi nemenda er skráður í Háskólann á Bifröst í haust. Þetta er annað árið ...

Græðgin er óseðjandi púki
23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Fjögur sunnudagsskákmót
23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Hátíðin Hamraborg Festival
22. september 2026

Hátíðin Hamraborg Festival