Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
Góðir lesendur.
Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. Dapurleg var ákvörðun orku- og umhverfisráðherra og Alþingis að færa fyrirhugaðar virkjunarhugmyndir í Hamarsdal úr verndarflokki í biðflokk. Eins og kunnugt er skoraði Hamarsdalur hæst til verndar af þeim kostum sem til umfjöllunar voru af faghópum rammaáætlunar eins og víða hefur komið fram. Köld kveðja til allra sem unna náttúrunni og árás á faglega vinnu og sátt um rammaáætlun. Eftir áratuga umsátur hillti undir friðun þessa fallega dals.
Spyrja má hvort ekki verði að vera jafnvægi í ákvörðunum ráðherra, hann hlýtur að stytta alla ferla er lúta að verndun náttúrunnar og friðlýsingum. Jing og Jang hlýtur að gilda í ráðuneytinu, ekki satt? Eftir 20 mánuði í starfi hlýtur hveitibrauðsdögum umhverfisráðherra að vera lokið og alvaran tekin við. Ekki er hægt að benda nokkurs staðar á orkuskort á Austurlandi, frekar er hægt að tala um dreifingarskort og sleifarlag í þrífösun til neytenda. Rarik stendur sig vel en vantar pólitískan stuðning og fjármagn. Nýtt háspennuvirki á Hryggstekk gjörbreytir stöðunni til hins betra. Hvergi í veröldinni er framleitt meira rafmagn pr mann en á Austurlandi.
Nú er hins vegar skaðinn að koma fram af þessari misráðnu ákvörðun ráðherra. Annars vegar þingsályktun 93 sem lögð hefur verið fram á Alþingi og hins vegar frumvarp til laga um flýtiframkvæmdir vatnsaflsvirkjana (þingskjal 19 - 19. mál). Þingsályktun 93 gengur út á að færa fyrirhugaðar virkjanahugmyndir í Hamarsdal úr biðflokki í nýtingarflokk. Yfirgangurinn er alger og ekki í þágu almannahagsmuna þar sem fyrirtæki í erlendri eigu ásælist Hamarsdal. Heggur sá er hlífa skyldi, en flutningsmenn eru: Jens Garðar Helgason, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Adolfsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Dilja Mist Einarsdóttir, Jón Pétur Zimsen, Árni Helgason, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgrímur Sigmundsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Ingibjörg Isaksen og Ingvar Þóroddsson. Dapurlegt er að sjá stjórnarþingmann leggja lag sitt við þessa svívirðu.
Í greinargerð með þingsályktuninni er röng fullyrðing svohljóðandi: „Fyrir liggur að enginn ágreiningur er um virkjunina á meðal sveitarfélaga á svæðinu.“ Þetta er rangt og nægir að benda á umræðu og afgreiðslur funda sveitarstjórnar í Múlaþingi þar sem afgreiðslur mála falla oft 60/40 eftir meirihluta eða flokkslínum ekki síst. Ekki síst hafa Náttúruverndarsamtök Austurlands, Náttaust, mótmælt fyrirhugðum virkjunarhugmyndum harðlega og mælt með friðlýsingu Hamarsdals.
Varðandi þingskjal 19. frumvarps til laga um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana. Fl. : Jón Gunnarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jens Garðar Helgason, Jón Pétur Zimsen, Njáll Trausti Friðbertsson og Ólafur Adolfsson.
Þarna er mikil hætta á ferðum. Frumvarpið er stórárás á rammaáætlun og tekur náttúruvernd áratugi aftur í tímann. Sérstaklega vekur athygli að eins og oft áður er seilst lengra í viðkvæm svæði og daðrað í tilfelli Hamarsdals við 95 MW eða stærri virkjun með tilheyrandi skaða á Hamarsdal og víðernum Sviðinhornahrauns. Það er blautur draumur virkjunarsinna. Minnt skal á hin djúpu sár er Kárahnúkavirkjun hafði á náttúru Austurlands og loforð um að ekki skyldi gengið svo hart að náttúrunni framar.
Að lokum má minna á gamalt máltæki sem hefur lifað lengi í Hamarsdal og gamla Djúpavogshreppi. Í Tyrkjaráninu 1627 eltu ránsmenn vinnumann inn Hamarsdal, hann skellti sér yfir ána og bjargaði sér, en þeir lögðu ekki í hana á eftir honum. Köstuðu á eftir honum exi en hann slapp og heitir þar síðan Axarhylur. Var þá sagt: „Þeir biðu eins og hundtyrkir við Hamarsá.“ Nú má segja að óvinir náttúru Hamarsdal bíði eins og hundtyrkir við Hamarsá.
Ég ber þá von í brjósti að þessi þingsályktun og lagafrumvarp komi aldrei á dagskrá og Hamarsdalur verði friðaður fyrir harkalegum virkjunaráformum. Náttúran njóti vafans. Virðingarfyllst. Stefán Skafti Steinólfsson, félagi í Náttaust og ættaður úr Hamarsdal.
