Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Bændur eiga rétt á vernd
Mynd / Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Leiðari 10. september 2026

Bændur eiga rétt á vernd

Höfundur: Þröstur Helgason

Undanfarna mánuði hafa reglulega borist fréttir af innbrotum í bú landsins. Svínabú, alifuglabú og minkabú hafa orðið fyrir barðinu á óboðnum gestum sem virðast telja sig hafa siðferðilegt umboð til að ryðjast inn í einkaeignir fólks. Í síðustu viku bættist svínabú Stjörnugríss í Saltvík í þann sorglega hóp.

Markmið þeirra sem standa að þessum aðgerðum kann að vera að vekja athygli á dýravelferð. En það er kaldhæðnislegt að afleiðingarnar virðast einna helst bitna á dýrunum sjálfum. Fréttir hafa borist af því að dýr hafi slasast eða drepist í tengslum við innbrotin. Þeir sem segjast ætla að standa vörð um velferð dýra verða að horfast í augu við þá staðreynd að aðferðir þeirra geta valdið þeim sama skaða og þeir segjast vilja koma í veg fyrir.

Í umræðunni hefur stundum gleymst að þarna er ekki aðeins ráðist inn í húsnæði. Þarna er ráðist inn í atvinnurekstur fólks, lífsviðurværi þess og heimili í víðari merkingu. Bændur vinna flestir á sínum eigin búum og þar mætast heimili og vinnustaður. Innbrot af þessu tagi eru því ekki einvörðungu eignaspjöll eða brot á eignarrétti heldur atlaga að öryggistilfinningu fólks sem hefur hingað til getað gengið út frá því að samfélagið virði lög og reglur.

Það vekur því furðu hversu ráðalaus lögreglan virðist standa frammi fyrir þessum brotum. Helstu skýringarnar sem heyrast eru að erfitt sé að upplýsa málin vegna þess að upptökur úr eftirlitsmyndavélum skorti. Það kann að vera rétt að slíkar upptökur auðveldi rannsóknir en það getur ekki orðið meginskýringin á því að brot af þessu tagi séu ekki upplýst.

Flestir bændur hafa einfaldlega ekki séð neina ástæðu til að breyta búum sínum í víggirt svæði með myndavélum og rafrænu eftirliti. Ísland hefur lengi verið samfélag þar sem fólk gat rekið atvinnustarfsemi sína án þess að þurfa að ganga út frá því að skipulagðir hópar brytust inn á eignir þess. Það væri einkennileg niðurstaða ef ábyrgðin á upplýsingu brota væri í reynd færð yfir á fórnarlömbin með þeim skilaboðum að þau hefðu átt að vera með fullkomið eftirlitskerfi.

Hlutverk lögreglu er að rannsaka afbrot og tryggja að lög gildi jafnt fyrir alla. Ef skipulagt mynstur innbrota hefur myndast á búum víða um land er eðlilegt að spurt sé hvort nægilega ákveðið hafi verið brugðist við. Bændur eiga ekki að þurfa að sætta sig við að það sé orðinn hluti af rekstrarumhverfi þeirra að ókunnugt fólk geti gengið inn í húsakynni þeirra og valdið tjóni án þess að það hafi afleiðingar.

Hvort sem menn eru sammála búrekstri viðkomandi bænda eða ekki, þá er grundvallaratriði í réttarríki að ágreiningur sé leystur með lögmætum hætti. Enginn hefur sjálfskipaðan rétt til að taka lögin í sínar eigin hendur. Þegar slíkt gerist verða stjórnvöld að sýna að þau ráði við verkefnið. Bændur eiga rétt á því að njóta sömu verndar á eignum sínum, atvinnu og öryggi og aðrir landsmenn.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari | innbrot

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...