Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 mánaða.
Slegið við Egilsstaðabýlið 12. júní síðastliðinn.
Slegið við Egilsstaðabýlið 12. júní síðastliðinn.
Mynd / sá
Fréttir 30. júní 2025

Bændur bera ljá í gras

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Heyskapur er víðast hvar langt kominn eða við það að byrja. Bændablaðið tók stöðuna hjá nokkrum bændum í kringum landið og voru allir bjartsýnir á að ná góðum heyfeng í ár.

Laufey Bjarnadóttir, kúabóndi á Stakkhamri í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, sagðist vera búin að slá heimatúnin og önnur betri tún í samtali við blaðamann á föstudaginn. Fyrstu túnin voru slegin að kvöldi 12. júní, sem er fyrr en í venjulegu ári. „Við erum bara að bíða eftir þurrki til að klára,“ segir hún, en sumir kúabændur í sveitinni voru þegar búnir með fyrsta slátt í síðustu viku.

Hún segir kuldakastið í vor geta haft neikvæð áhrif á gæði uppskerunnar. „Sprettan stóð í stað og það var svo mikil vindkæling að vallarfoxgras í nýræktun hér í kring kól og sölnaði.“ Þá segir hún bændurna búa við mikinn ágang álfta, sem hún telur bíta hátt í helming uppskerunnar.

Helga Guðný Kristjánsdóttir, kúabóndi á Botni í Súgandafirði, segir fyrstu túnin í hennar sveit hafa verið slegin um miðjan mánuðinn. Í samtali á mánudaginn sagði hún heyskap víðast hvar vera kominn af stað í nágrenni við hana, þó að fæstir hafi verið langt komnir. Hún reiknar með að fara í slátt af fullum krafti á allra næstu dögum. Inni á milli sjáist að túngrösin hafi þornað upp og orðið bláleit eftir kuldakastið í vor.

Beðið eftir þurrki

Ólafur Magnússon, sauðfjárbóndi á Sveinsstöðum í Þingi í Húnabyggð, sagðist ekki vera byrjaður að slá í samtali á mánudaginn. „Við gætum eflaust slegið núna en það eru alltaf einhverjar skúrir eða rigningar í kortunum. Sauðfjárbeitin í vor var frábær, en ég held að túnin hafi aldrei verið svona snemma til. Svo stoppaði sprettan mikið til í kuldatíðinni í byrjun júní,“ segir Ólafur. Margir séu byrjaðir að slá í hans nágrenni, en kúabændurnir séu lengst komnir. Hann er bjartsýnn á að fóðrið verði næringarríkt, þó svo að sums staðar séu túngrösin hjá honum byrjuð að skríða.

Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir, nautgripabóndi á Leyningi í Eyjafjarðardal, sagðist ekki vera byrjuð að heyja í samtali á mánudaginn. „Það er kominn tími á það, en það rignir bara. Maður vill hafa þurrt í þrjá daga, eða svo, þannig að við bíðum bara eftir því. Við hefðum getað byrjað í síðustu viku ef það hefði verið veður,“ segir Hafdís. Sprettan hafi verið mjög góð og urðu þau ekki fyrir áhrifum af kuldakastinu í júní. „Í kringum mig eru margir kúabændur langt komnir og sauðfjárbændurnir eru að bíða eftir þurrki.“

Ærnar taka fyrsta sláttinn

„Það hefur enginn borið ljá í gras hér enn þá,“ sagði Einar Ófeigur Björnsson, sauðfjárbóndi á Lóni í Kelduhverfi, í samtali við Bændablaðið á föstudaginn. Hann telur sennilegt að heyskapur fari af stað í kringum mánaðamótin. „Rollurnar taka fyrsta sláttinn. Þær eru á túnunum alveg fram undir þessar mundir hjá okkur sauðfjárbændum. Það er afar sjaldan slegið í júní hér.“ Sprettan á túnunum hjá Einari er góð og gerir hann sér vonir um góða uppskeru.

Björgvin Gunnarsson, kúabóndi á Núpi í Berufirði, sagðist vera við það að klára fyrsta slátt þegar Bændablaðið náði tali af honum á föstudaginn í síðustu viku. Heyskapur hófst 30. maí, sem Björgvin segir vera fyrr en nokkru sinni áður. „Hér er alveg haugagras,“ segir Björgvin og telur hann það vera af miklum gæðum. Yfirleitt hafi allra fyrstu túnin verið slegin í kringum 17. júní. „Þá prufar maður tækin á einhverjum spariblettum.“ Hann segir tíðina hafa verið óhentuga, en það hefur skipst á með regni og þurrki. „Við erum úti á annesjum, þannig að hér er oft þokuloft,“ bætir hann við. Björgvin reiknar með að annar sláttur hefjist í kringum mánaðamótin, en hann slær túnin þrisvar.

Aldrei jafnmikil spretta

Stefán Freyr Stefánsson, sauðfjárbóndi á Freysnesi í Öræfum, sagðist ekki vera byrjaður að heyja í samtali við blaðamann síðastliðinn föstudag. Hjá honum hefst sláttur yfirleitt ekki fyrr en í kringum mánaðamótin júní–júlí og stefnir allt í að upphaf heyskapar verði á hefðbundnum tíma. „Það hefur aldrei verið jafnmikil spretta og núna,“ segir Stefán og þakkar hann góðu vori.

Í samtali á föstudaginn sagðist Sveinn Hjartarson, kúabóndi á Brjánsstöðum í Grímsnesi, gera ráð fyrir að heyskapur færi af stað í þessari viku. „Það gæti jafnvel verið á sunnudag eða mánudag samkvæmt spánni.“ Í fyrra hófst heyskapur í lok júní og byrjar hann því viku til tíu dögum fyrr en vanalega hjá Sveini. Hann hefur orðið var við að nágrannar hans hafi þegar slegið hluta af sínum túnum. Sveinn íhugaði að hefja heyskap í þurrki sem var um daginn, en þá þótti honum grösin ekki vera nógu sprottin.

Hvað þýðir aðild að ESB?: „Svínaræktin myndi ekki standast breytingarnar“
Fréttir 12. júní 2026

Hvað þýðir aðild að ESB?: „Svínaræktin myndi ekki standast breytingarnar“

Ingvi Stefánsson, formaður svínabænda, segir í nýjasta þætti Útvarps Bændablaðsi...

Opnar á nýja möguleika í fóðurtilraunum
Fréttir 12. júní 2026

Opnar á nýja möguleika í fóðurtilraunum

Á Hesti í Borgarfirði, sem er sauðfjárbú rekið af Landbúnaðarháskóla Íslands, he...

126 milljónum úthlutað  til landbúnaðarverkefna
Fréttir 12. júní 2026

126 milljónum úthlutað til landbúnaðarverkefna

Alls hlutu 42 verkefni styrk úr Matvælasjóði 2026 upp á 479,4 milljónir króna. 1...

Framleiðsluvirði landbúnaðarins 100 milljarðar árið 2025
Fréttir 12. júní 2026

Framleiðsluvirði landbúnaðarins 100 milljarðar árið 2025

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2025 er áætlað 100 milljarðar sem er...

Mikill gangur í LED-væðingu
Fréttir 12. júní 2026

Mikill gangur í LED-væðingu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt fjármunum á undanförnum mis...

Tjón unnið á kjúklingabúi
Fréttir 11. júní 2026

Tjón unnið á kjúklingabúi

Brotist var inn í alifuglabúið að Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt 1. júní þar se...

Búvörusamningar framlengdir til 2027
Fréttir 11. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir til 2027

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...

Opnað fyrir umsóknir
Fréttir 10. júní 2026

Opnað fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslu jarðræktarstyrkja vegna ko...