Aðhaldsplan fjármálaráðherra
Leiðari 5. nóvember 2026

Aðhaldsplan fjármálaráðherra

Höfundur: Þröstur Helgason

Bændur þurfa stöðugleika eins og aðrir sem standa í rekstri. Ríkisstjórnin hefur haft tæp tvö ár til þess að ná tökum á verðbólgu og vöxtum en ekki tekist. Verðbólga stóð þó í stað í síðustu mælingu og kannski má loksins fara að búast við lækkun. Samt eru óveðursský á himni. Olíuverð fer enn hækkandi og framhaldið er óvíst eins og fram kemur í blaðinu í dag. Ákveðin stöðnunareinkenni eru líka komin fram með auknu atvinnuleysi og uppsögnum, minnkandi landsframleiðslu, samdrætti í byggingariðnaði og einkafjárfestingu. Spurningin er hvaða áhrif aðhald í ríkisfjármálum mun hafa á þetta ástand.

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur hóflegar áhyggjur af ástandinu. Í viðtali við Útvarp Bændablaðið segir hann ekkert benda til þess nú að íslenskt efnahagslíf stefni inn í samdráttarskeið. Hagvöxtur sé jákvæður, fjárhagsstaða heimila og fyrirtækja sterk og áfram sé veruleg fjárfesting í útflutningsatvinnuvegunum. Hann hafi mestar áhyggjur af byggingargeiranum. Hækkun olíuverðs hafi hins vegar ekki jafnslæm áhrif á íslenskt efnahagslíf og margir hafi óttast. Krónan hafi styrkst samhliða verðhækkuninni og viðskiptakjör Íslands raunar batnað þar sem verð á ýmsum útflutningsafurðum hafi einnig hækkað. „Auðvitað hef ég áhyggjur og myndi miklu frekar vilja sjá lækkandi olíuverð. Ég er bara að segja að þetta hefur ekki reynst eins vont og við óttuðumst,“ segir ráðherra.

Daði telur skilyrði fyrir lækkun verðbólgu óvanalega góð og hefur væntingar til þess að hún muni lækka tiltölulega hratt þegar líður á haustið og í upphafi næsta árs. Vonandi rætist úr, því varla verður meira lagt á heimili og fyrirtæki þessa lands í bili. Bændur standa nú í þokkabót frammi fyrir hækkandi áburðarverði eins og fram kemur í frétt á forsíðu. Vísbendingar eru um að köfnunarefnisáburður gæti hækkað um hvorki meira né minna en 25–30% og NPK-áburður um 15–20%. Slíkar verðhækkanir gætu orðið íþyngjandi fyrir búrekstur íslenskra nautgripa- og sauðfjárbænda þar sem áburðarkaup eru einn stærsti einstaki útgjaldaliðurinn, eins og segir í fréttinni.

Rétt eins og hækkandi olíuverð stafa hækkanir á áburðarverði af utanaðkomandi aðstæðum sem ríkisstjórnin fær ekki við ráðið. En hafi þessar hækkanir óæskileg áhrif á þróun verðbólgu og vaxta þá verður spurningin um áherslu ríkisstjórnarinnar á hallalaus fjárlög óneitanlega enn meira aðkallandi. Og svo það sé endurtekið þá þola heimili og fyrirtæki, þar á meðal bændur, ekki frekari hækkanir á verðbólgu og vöxtum.

Brak og brestir heyrast víða úr stjórnkerfinu þessa dagana. Utanríkisráðherra tekur slaginn fyrir framkvæmdastjóra í Flokki fólksins sem sendir forseta Frakklands arfavitlaus skilaboð á Instagram. Fjármálaráðherra svarar fyrir stjórnsýslu stjórnar Landsvirkjunar og segist raunar í blaðinu í dag bera fullt traust til hennar þó að hún hafi kostað fyrirtækið forstjórann. Forsætisráðherra situr hjá og segir fátt. Og kannski er þetta bara ys og þys út af engu. Friðurinn verður þó endanlega úti ef aðhaldsplan fjármálaráðherrans fer ekki að skila árangri í baráttu við verðbólgu og vexti á næstu vikum og mánuðum. Þolinmæðina þrýtur fyrr en varir.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari | olíuverð

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...