Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera
Fréttir 7. ágúst 2026

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa fengið veglegan Evrópustyrk vegna sjálfbærrar uppbyggingar gagnavera á Suðurlandi. Styrkurinn nemur 124.280 evrum, sem jafngildir um 18 milljónum íslenskra króna.

Elísabet Björney Lárusdóttir.

„Það er mikil ánægja hjá okkur með þennan styrk. Samkeppnin um Evrópustyrki er hörð og því er þetta bæði viðurkenning á því starfi sem hefur verið unnið á Suðurlandi og mikilvægt tækifæri fyrir sveitarfélögin á svæðinu. Það er alltaf ákveðin óvissa í svona umsóknarferli og því var mjög ánægjulegt að fá þær fréttir að verkefnið hefði verið valið til styrktar,“ segir Elísabet Björney Lárusdóttir, verkefnisstjóri hjá SASS, en samstarfsaðilar í verkefninu „DC NEST“, eins og það heitir, koma frá Finnlandi, Írlandi og Svíþjóð, en öll þessi lönd búa yfir víðtækri reynslu af sjálfbærri stýringu stórra tækniverkefna.

Nýttur á næstu 30 mánuðum

Elísabet segir að styrkurinn verði nýttur á næstu 30 mánuðum til að byggja upp þekkingu og verkfæri, sem styðja sveitarfélög við að taka upplýstar ákvarðanir um mögulega uppbyggingu gagnavera.

SASS muni leiða íslenska þáttinn í verkefninu og vinna náið með sunnlenskum sveitarfélögum að greiningu, samráði og miðlun reynslu frá öðrum norðurslóðasvæðum sem hafa staðið frammi fyrir sambærilegum tækifærum og áskorunum.

Gagnaver og framtíðin

En eru gagnaver framtíðin að mati Elísabetar, eða hvað?

„Já, gagnaver eru líklega hluti af framtíðinni því eftirspurn eftir stafrænni þjónustu og gagnavinnslu fer vaxandi og Ísland hefur ákveðna styrkleika, meðal annars endurnýjanlega orkugjafa, hagstætt loftslag og góða innviði. En það skiptir máli að uppbyggingin sé unnin af ábyrgð og með þarfir samfélaganna að leiðarljósi. Spurningin er því ekki bara hvort gagnaver séu framtíðin, heldur hvernig við tryggjum að þau skili raunverulegum ávinningi fyrir íbúa og atvinnulíf á Suðurlandi,“ segir Elísabet og bætir við: „Það sem við viljum helst leggja áherslu á er að sveitarfélög hafi góðar upplýsingar og þekkingu til að meta bæði tækifærin og áskoranirnar sem fylgja svona uppbyggingu. Markmiðið er að þau geti tekið ákvarðanir út frá eigin forsendum og þeirri framtíðarsýn sem þau hafa fyrir sín samfélög.“

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f