Maður er manns gaman
Árið 2025 hóf aðflutti Mývetningurinn hún Anna Dagbjört Andrésdóttir verkefni sem hún nefndi Maður er manns gaman. Markmiðið var að bjóða upp á viðburði í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit með það fyrir augum að auðga menningu í Þingeyjarsveit, íbúum að kostnaðarlausu. Verkefnið gekk vonum framar og hlaut Anna menningarverðlaun Þingeyjarsveitar nú í ár.
Nú stendur til að opna listasýningu í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit, en um ræðir samsýningu átján aðila, ólíks listafólks sem hefur það sameiginlegt að tengjast Þingeyjarsveit á einhvern hátt. Listafólkið vinnur með ólíka miðla, en má nefna eitt þeirra, Ólaf Sveinsson sem kemur víða við í list sinni. Hann bæði teiknar, málar, ristir í tré og þrykkir á silki ásamt því að tálga fugla og skera út, en verk hans einkennast af lífsgleði og nákvæmni þegar kemur að því að fanga líðandi stund.
Auk þess að sækja oft innblástur í náttúruna eða upplifanir segist Ólafur oft heillast af gömlum farartækjum og vélar, en skemmtileg dæmi um slík augnayndi finnst gjarnan í verkum hans. Hann minnist veru sinnar á Patreksfirði í kringum tvítugt þar sem hann gerði vatnslitaseríu af sundurtekinni loðnubræðslu „..fallega ryðguð raunsæum rómantískum blæ..“ Bætir við að kona eigandans hafi að lokum keypt af honum seríuna, þakkað fyrir að nú væri þetta rusl ódauðlegt, og því loks hægt að henda því!
Fyrir áhugasama er vert að heimsækja Mývatnssveitina, sýningin stendur yfir dagana 14-15 nóvember á milli klukka 12-16 báða daga. Vert er að taka fram að Maður er manns gaman er heiti á menningarviðburðum Mývetnings sem eru haldnir reglulega í Skjólbrekku, styrktir af Þingeyjarsveit og Landsvirkjun.
