Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Sverðburkni – svipmikil klassísk pottaplanta
Mynd / Aðsend
Líf og starf 23. mars 2026

Sverðburkni – svipmikil klassísk pottaplanta

Höfundur: Ingólfur Guðnason
Ingólfur Guðnason.

Sverðburkninn (Nephrolepis exaltata) hefur prýtt íslensk heimili um langan aldur. Tegundin er auðveld í umhirðu og allir sem hafa yndi af pottablóma- ræktun ættu að ná góðum árangri við ræktun þessarar fallegu plöntu. Burknar voru meðal vinsælustu „grænu stofublómanna“ alla síðaustu öld enda er fremur auðvelt að halda þeim við ef ræktunarskilyrðum er sinnt.

Fáanleg eru nokkur yrki sverðburkna. Munurinn felst aðallega í mismikilli lengd og skiptingu laufanna og umfangi plantnanna. Stórvaxna „Boston“- afbrigðið er líklega algengast í ræktun. „Teddy Junior“ er þéttvaxið afbrigði með dökkgræn lauf. „Marissa“ er annað þekkt dvergafbrigði. Íslenskir pottaplöntuframleiðendur eru um þessar mundir vel birgir af sverðburkna í gróðurhúsum sínum.

Heimkynni í rökum hitabeltisskógum

Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru skógar og deiglendi í Mið- og Suður-Ameríku, í Vestur-Indíum og hún hefur borist til Afríku. Upp af lágum jarðstöngli sverðburknans vex fjöldi langra bogsveigðra laufblaða sem gefur plöntunni lögun og form sem minnir á framandi gróður regnskóga og hitabeltis. Margskipt laufblöðin eru ljósgræn með fjöldamörgum hrokknum blöðkum, sem aftur geta skipst í enn fínlegri smáblöðkur. Á neðra borði laufanna geta myndast dökkar gróhirslur. Út frá plöntunni vaxa mislangar, grannar greinar sem plantan getur notað til að festa sig við undirlag og trjágreinar, en sverðburkninn getur bæði vaxið í jarðvegi og sem ásæta á trjám, við mikinn loftraka. Þar sem veðurfar gefur tilefni til getur sverðburkninn dreift sér ótæpilega og er hann t.d. álitinn ágeng framandi tegund í S-Afríku þar sem óheimilt er að rækta hann utanhúss.

Verður stór og glæsileg stofuplanta

Laufkrónan er fagurlega sveigð og myndar glæsilegt, nærri hnöttótt form sem sómir sér hvarvetna vel, jafnt á borði og blómastandi, í gluggakistu eða í hengipotti. Þótt umhirða sverðburkna sé ekki flókin þarf að uppfylla nokkur atriði til að hann haldi góðum þrifum. Loftraki þyrfti að vera talsvert hærri en algengt er í flestu húsnæði til að kjöraðstæður séu til staðar. Til að mæta því þarf að úða burknann reglulega með fínum vatnsúða og koma honum ekki fyrir nærri ofni eða öðrum hitagjöfum. Vöxturinn getur verið hraður frá vori og fram eftir sumri. Búast má við að plantan tvöfaldi umfang sitt árlega fyrstu tvö til þrjú árin en eftir það verður vöxturinn hægari.

Hár loftraki, miðlungs hita- og birtuþörf

Sverðburkni þolir venjulegan stofuhita en hann getur einnig þrifist við hita allt niður í 10 °C um tíma án þess að hljóta skaða af. Ef hitastigið er í hærra lagi þarf sérstaklega að huga að því að úða plöntuna oft með vatni til að halda nægilega háum loftraka, annars er hætt við að laufskemmdir verði. Birtukröfurnar eru hóflegar eins og títt er um burkna. Því má velja sverðburknanum stað þar sem nokkurs skugga gætir. Á of dimmum stað dregur þó töluvert úr vexti.

Fjölgun og umpottun

Auðvelt er að fjölga plöntunum um leið og umpottun er framkvæmd. Skornar eru smáar jarðrenglur úr pottahnausnum með áföstum smárótum og komið fyrir í litlum pottum sem haldið er vel rökum. Þetta er gott að gera nú þegar vöxtur fer af stað með hækkandi sól. Hentugur tími til umpottunar er mars. Veljið rakaheldna pottamold sem gjarnan má innihalda dálítið af fínsigtaðri safnhaugamold. Vel má minnka stórvaxnar, gamlar plöntur með skiptingu ef þær verða óþarflega umfangsmiklar.

Vökvun og næring

Huga þarf vel að vökvun og gæta þess að pottamoldin þorni aldrei um of. Á mesta vaxtartímanum er sverðburkninn vökvaður tvisvar til þrisvar í viku með daufri áburðarblöndu í annað hvert skipti. Til dæmis má nota algengan inniblómaáburð, einn tappa af áburði í 2 l af vatni frá mars til ágústloka. Á veturna er haldið áfram að vökva þannig að moldin í pottinum þorni aldrei alveg en áburðargjöf er óþörf í skammdeginu. Æskilegast er að vökva neðan frá í skál sem potturinn stendur í. Plantan getur orðið áratuga gömul ef þessum einföldu ráðum er fylgt. Lítið er um skaða af völdum meindýra í sverðburkna.

Höfundur er kennari við Garðyrkjuskóla FSu Reykjum.

Skylt efni: Blóm mánaðarins

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...