Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Jóhann, Vignir, Sigurður Bragi frá Green Diamond og Björn.
Jóhann, Vignir, Sigurður Bragi frá Green Diamond og Björn.
Líf og starf 7. júlí 2026

Skáksumarið hafið

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Skáksumarið 2026 er hafið með pomp og prakt. Teflt er mikið hérlendis ásamt því að Íslendingar eru duglegir að tefla erlendis. Nefna má þátttöku Lenku Ptacnikova á Evrópumeistaramóti kvenna, þátttöku Jóhanns Hjartarsonar, Þrastar Þórhallssonar, Margeirs Péturssonar og Henriks Danielsen á Evrópumóti öldunga, og loks þátttöku Birkis Hallmundarsonar og Guðrúnar Fanneyjar Briem á heimsmeistaramóti barna. Öll þessi mót fara fram í beit og Íslendingar láta sig ekki vanta þar sem keppt er um heims- og Evrópumeistaratitla.

Skemmtilegt boðsmót var haldið fyrir skömmu af þeim félögum í hlaðvarpinu Chess After Dark, Birki Karli Sigurðssyni og Leifi Þorsteinssyni. Boðsmótið var haldið í samstarfi við fyrirtækið Green Diamond sem framleiðir skósóla í Kína. Menn náðu einmitt að sóla sig í góða veðrinu á mótsdegi, þann 20. júní. Tíu af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar tefldu allir við alla, og eftir það fóru fjórir efstu í undanúrslit, þar sem sá sem hafði flesta vinninga mátti velja sér andstæðing. Fór svo að Vignir Vatnar Stefánsson, sem hafði mikla yfirburði í mótinu sjálfu, valdi Örn Leó Jóhannsson. Þá tefldu Jóhann Hjartarson og Björn Þorfinnsson. Að endingu vann Vignir, eftir sigur gegn Erni og síðan Jóhanni, og Björn náði þriðja sætinu eftir sigur gegn Erni. Jóhann í öðru sæti.

Mótið var sýnt beint og fórust tæknimál vel úr hendi hjá Daða Ómarssyni, og Alexander Oliver Mai, mönnunum á bak við tjöldin. Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson, héldu uppi stemningunni í útsendingunni og fengu til sín góða gesti til að spá í spilin, þar á meðal Leif Þorsteinsson.

Í stöðunni sem hér fylgir hafði Björn Þorfinnsson svart gegn sjálfum Jóhanni Hjartarsyni. Smekkleg mannsfórn Björns, 14. … Rd4 snýst um að rýma d4 reitinn til að stugga við riddaranum á e3. Eftir að riddarinn færir sig, eins og gerðist í skákinni, gefst færi á að drepa peðið á g2 með skák og flóðgáttirnar opnast að hvíta kónginum. Birni tókst að vinna þá stöðu. Tölvurnar benda á vörn með 14. …Rd4 15. cxd4 exd4 16. Bb2! Dg5 17. Rf3 Rxg2+ 18. Ke2 Rg2+ með þráskák. Það er þó alls ekki augljóst og var þetta langbesta skák Björns gegn Jóhanni í mótinu, en þeir mættust aftur í undanúrslitum.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...